Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Guðjón Arnar Elíasson. starfsmaður hjá Landhelgisgæslunni, er eini karlmaðurinn í íslensku POWERtalk-samtökunum, áður Málfreyjunum, og annar karlinn sem kosinn hefur verið forseti Fífu, deildar samtakanna í Kópavogi, sem var stofnuð 1986. „Mikið má læra af konunum, ekki síst skipulag og tímastjórnun,“ segir hann og hvetur karlmenn til að bætast í hópinn. „Augljóslega er nægt pláss fyrir fleiri og ég hvet fólk til að mæta á kynningarfundinn annað kvöld.“
Meira