Hafrannsóknastofnun gerir ýmsar athugasaemdir við fullyrðingar sem fram koma í greinargerð með frumvarpi Andrésar Inga Jónssonar alþingismanns o.fl. um bann við hvalveiðum. Segir stofnunin að í kaflanum „Hvalir eru mikilvægir í vistkerfi…
Meira
Ekki stendur til að leggja niður afrein sem liggur frá Reykjanesbraut að Álfabakka. Þetta kemur fram í svörum skrifstofu framkvæmda og viðhalds hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar við fyrirspurnum Morgunblaðsins
Meira
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í lok nóvember. Íslandi mistókst að tryggja sér þátttökurétt í gegnum undankeppnina, en fékk síðan úthlutað boðssæti og verður með …
Meira
Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands, baðst í gær afsökunar á þeim glæpum sem Þjóðverjar frömdu gegn íbúum Tansaníu þegar landið var hluti af nýlendum Þýskalands. Steinmeier heimsótti í gær Maji Maji-safnið í borginni Songea, en þar er…
Meira
„Uppbyggingin hér í miðbænum gengur mjög vel,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði. „Við erum að reyna að blanda skemmtilega saman nýjum byggingum með öllum nútímaþægindum við eldri byggð á þessum þéttingarreitum…
Meira
„Við höfum á síðustu árum verið að leggja til flugvélar Landhelgisgæslunnar til Frontex-verkefna en við ræddum á þessum fundi að þegar vélar eru að fara til ákveðinna landa með einstaklinga hafi löndin samráð sín á milli og nýti þær vélar þá…
Meira
Gagnrýnendur bresku dagblaðanna The Times, Sunday Times og The Guardian virðast á sama máli um að Bráðin eftir Yrsu Sigurðardóttur sé í hópi bestu glæpasagna nóvembermánaðar þar í landi
Meira
Daði Kristjánsson verður ekki látinn víkja sem dómari í hryðjuverkamálinu svokallaða en Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í gær kröfu héraðssaksóknara þess efnis. Ákæruvaldið íhugar að kæra niðurstöðuna til Landsréttar
Meira
Hekla Guðrún Þrastardóttir kom, sá og sigraði í keppninni í ár með glæsilegri frammistöðu. Hekla hóf ferli sinn á matvælabraut í Verkmenntaskólanum á Akureyri og fann hún fljótt að hún var á réttri hillu þegar hún prófaði bakarann á fyrsta ári
Meira
Lovísa Þórey Björgvinsdóttir náði glæsilegum árangri og lenti í þriðja sæti í keppninni. Lovísa er einungis 21 árs gömul og fædd og uppalin á Selfossi. Hún er ekki búin að ákveða hvort hún vill fara út í bakarann
Meira
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Stjórnvöld í Egyptalandi opnuðu í gær landamæri sín að Gasasvæðinu til þess að taka á móti særðu fólki og erlendum ríkisborgurum. Voru um 500 erlendir ríkisborgarar við landamærin í gær, og náðu 335 þeirra að fara yfir landamærin í gær samkvæmt egypskum stjórnvöldum.
Meira
Eiríkur Haraldsson, fv. kennari við Menntaskólann í Reykjavík, lést sunnudaginn 29. október síðastliðinn, 92 ára að aldri. Eiríkur fæddist í Vestmannaeyjum 12. mars 1931, sonur hjónanna Solveigar Soffíu Jesdóttur yfirhjúkrunarkonu og Haraldar Eiríkssonar rafvirkjameistara
Meira
Ferðastyrkur var nýverið afhentur 15 börnum og fjölskyldum þeirra, en alls hafa 740 fjölskyldur notið stuðnings úr sjóðnum Vildarbörn og meira en 3.500 manns ferðast á vegum hans. „Við erum mjög stolt af sjóðnum og þakklát viðskiptavinum okkar fyrir …
Meira
Verið er að steypa jarðhæð nýs bílastæða- og tæknihúss við nýjan Landspítala. Búið er að steypa þriggja hæða kjallara og má því segja að jarðhæðin sé fjórða hæð hússins. Það verður átta hæðir. Nánar tiltekið verður bílastæðahlutinn norðan megin átta …
Meira
Af 2.460 umsækjendum sem sóttu um iðnnám í haust var 556 hafnað eða hartnær fjórðungi umsækjenda. Þetta kemur fram í greiningu Samtaka iðnaðarins, SI, sem kynnt verður á mannvirkjaþingi samtakanna í dag
Meira
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í gær þátt í leiðtogafundi norrænna forsætisráðherra á þingi Norðurlandaráðs í Osló. Þar stýrði hún fundi forsætisráðherranna sem haldinn var í tengslum við fundinn
Meira
Þessa dagana standa Bændasamtökin fyrir nokkrum fræðslufundum á landsbyggðinni um riðu þar sem franski riðusérfræðingurinn dr. Vincent Béringue hefur kynnt rannsóknir sínar á næmi arfgerða sem finnast í sauðfé gegn riðu
Meira
Ekki fæst leyfi til að breyta notkun húseignar Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33 úr skrifstofuhúsnæði í gististað. Höfuðstöðvar Framsóknarflokksins hafa verið þar til húsa síðan árið 1998. Á fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur hinn 28
Meira
Baksvið Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Umhverfisstofnun telur að lagning Sundabrautar ofan á Gufuneshaugunum geti leitt af sér margháttuð vandræði, til dæmis vegna óstöðugs undirlags rotnandi úrgangs með gasmyndun.
Meira
Barnaþing verður haldið í þriðja sinn í Hörpu 17. nóvember næstkomandi. Markmið þess er að auka lýðræðisþátttöku barna. Þingið er leið fyrir börn til að koma sínum sjónarmiðum og hugmyndum á framfæri við stjórnmálamenn
Meira
Jan Reckendorff ríkissaksóknari Danmerkur lýsti því yfir í gær að Claus Hjort Frederiksen, fyrrv. varnarmálaráðherra Danmerkur, og Lars Findsen, fyrrv. yfirmaður leyniþjónustu danska hersins, yrðu ekki sóttir til saka fyrir landráð
Meira
Isaac Kwateng vallarstjóri Þróttar er á leiðinni aftur heim til Íslands. Isaac er frá Gana en kom til landsins árið 2017. Hann sótti þá um alþjóðlega vernd en fékk höfnun. Honum var vísað úr landi í október síðastliðnum
Meira
Fagnað verður í Kársnessöfnuði í Kópavogi nk. þriðjudag, 7. nóvember, að Mál dagsins, samverustund sem er vikulega í safnaðarheimilinu Borgum, hefur verið 20 ár á dagskrá. Á hverjum þriðjudegi frá í september fram í maí kemur fólk saman kl
Meira
Alls hafa 14 smærri byggðarlög á landinu tekið þátt í verkefninu Brothættar byggðir frá því að því var ýtt úr vör fyrir rúmum áratug og er það í gangi í dag í fimm byggðarlögum. Eitt meginmarkmið þess er að sporna við viðvarandi fólksfækkun í smærri byggðarlögum sem staðið hafa höllum fæti
Meira
Sönghópur manna frá Álftagerði í Skagafirði gerði góða lukku á afmælistónleikunum sem Óskar Pétursson, sem gjarnan er kenndur við bæinn, hélt í Hörpu um síðustu helgi. Þekktur er kvartettinn Álftagerðisbræður þar sem með Óskari voru bræður hans þrír; Pétur, Gísli og Sigfús Péturssynir
Meira
Nýr meðferðarkjarni Landspítalans setur orðið mikinn svip á Þingholtin og nágrenni. Uppsteypa á húsinu er langt komin en gert er ráð fyrir að það verði tilbúið árið 2027 og tekið í notkun 15-18 mánuðum síðar
Meira
Fulltrúar 28 ríkja og Evrópusambandsins komu saman í Bletchley Park í Bretlandi í gær og undirrituðu þar sérstaka yfirlýsingu um hættur sem fylgt geta gervigreind (AI). Bandaríkin, Bretland og Kína voru á meðal ríkjanna 28, en Rishi Sunak forsætisráðherra Bretlands var gestgjafi ráðstefnunnar
Meira
Viðar Pálsson, dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands, bindur inn bækur í frístundum. Hann opnaði nýlega vefsíðu, bokband0.wordpress.com, til að vekja athygli á því að hann taki að sér að binda bækur fyrir aðra í vandað, hefðbundið skinnband
Meira
Samningar hafa tekist milli Vegagerðarinnar og Sæferða, dótturfélags Eimskips, um rekstur Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Öllum 22 starfsmönnum Sæferða var sagt upp störfum í júlí sl. þar sem óvissa ríkti um áframhaldandi rekstur
Meira
Morgunblaðið hefur gengið með þjóðinni í heila öld og tíu árum betur. Af því tilefni er í dag hleypt af stokkunum umfjöllun, þar sem rifjuð verður upp saga lands og þjóðar í 110 ár gegnum fréttir blaðsins
Meira
Afmælishátíð verður á Hvolsvelli næstkomandi sunnudag í tilefni af því að um þessar mundir eru liðin 90 ár frá því að þéttbýli tók að myndast í landi Stórólfshvols, eins og þá var komist að orði. Dagskrá hefst kl
Meira
Sala á jólabjór hefst í Vínbúðum ÁTVR í dag, fimmtudaginn 2. nóvember. Samkvæmt samantekt Morgunblaðsins má búast við því að allt að 95 tegundir jólabjórs verði á boðstólum í ár, að því gefnu að þær skili sér allar í hillur Vínbúðanna
Meira
Menntakerfi landsins hefur mistekist að sinna þeirri mannauðsþörf sem hlotist hefur af vexti iðnaðarins á síðustu árum, að mati Samtaka iðnaðarins, SI
Meira
Í dag, fimmtudaginn 2. nóvember 2023, eru liðin 110 ár frá því að Morgunblaðið var stofnað. Síðustu 32 vikurnar hafa Morgunblaðið og Icelandair glatt heppna áskrifendur Morgunblaðsins með gjafabréfum í formi flugmiða frá Icelandair í tilefni af 110…
Meira
Allar einnota plastflöskur og önnur einnota drykkjarílát úr plasti sem sett verða á markað hér á landi frá og með 3. júlí á næsta ári, skulu vera með áfasta tappa eða lok, þ.e.a.s vera föst við flöskuna eftir opnun hennar
Meira
Geir Áslaugarson geir@mbl.is „Til að þessi tengiflug okkar virki þarf samstarf og áhuga, en áhuginn er fyrst og fremst á beina fluginu, sem hefur auðvitað áhrif á framtíðaráform í þessu,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair spurður út í áhrif millilandaflugs frá Akureyri á tengiflug Icelandair frá Akureyri til Keflavíkur.
Meira
„Sú ákvörðun sem hefur verið tekin hjá dómstólnum er tímabundin ráðstöfun sem er bindandi að þjóðarétti fyrir íslenska ríkið. Skilyrði þess að þetta sé gert er að yfirvofandi sé óbætanlegur skaði fyrir viðkomandi,“ segir Kári Hólmar…
Meira
„Salan hefur verið ágæt og í takt við okkar væntingar,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair um tengiflug sem félagið hefur verið með í tilraunaskyni frá Akureyri til Keflavíkur þrisvar í viku
Meira
Morgunblaðið hafði aðeins komið út í hálfan mánuð þegar heldur betur dró til tíðinda. Á forsíðu blaðsins 17. nóvember 1913 var fyrirsögnin: „Bróðurmorð í Reykjavík. Júlíana Jónsdóttir byrlar bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, eitur, sem verður…
Meira
Skjálftavirkni við Svartsengi á Reykjanesskaga hefur verið talsverð undanfarna daga, en hún færðist yfir í Eldvörp í fyrrinótt. Svæðin tvö eru í sama eldstöðvakerfi. Frá miðnætti í gær fram að kvöldi höfðu um 770 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga
Meira
Opin samverustund var haldin í Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði klukkan 18 í gær vegna banaslyss sem varð á Ásvöllum á mánudaginn þegar átta ára gamall drengur lést. Slysið varð við bifreiðastæði á milli Ásvallalaugar og íþróttahúss Hauka
Meira
Umræður um komandi kjarasamninga eru farnar af stað og undirbúningur hafinn fyrir nokkru hjá aðilum vinnumarkaðarins, bæði hjá Samtökum atvinnulífsins og launþegasamtökunum. Áherslur eru nokkuð ólíkar eins og gefur að skilja, en þó virðist beggja vegna borðsins vera skilningur á því að svigrúm fyrirtækja sé takmarkað. Þetta er þó vissulega misjafnt á milli aðila og sumir láta raunsæið ekki trufla umræðuna. Þá virðist vilji til langtímasamninga, sem er jákvætt enda þörf á þeim stöðugleika sem aðeins slíkir samningar geta veitt.
Meira
Ugla gefur út 66 titla á árinu, þar af 24 glæpasögur, fjórar ljúflestrarbækur og 13 þýddar barnabækur. Fyrir jólin eru fyrirferðarmestar bækur um Depil og Múmínálfana ásamt þýddum fagurbókmenntum, ævisögum og fræðibókum
Meira
Bókaútgáfan Ormstunga gefur út fjórar skáldsögur í ár. Babúska eftir Hallveigu Thorlacius var fyrst á markað en þar fléttast nokkur mál saman í eina frásögn. Ung stúlka í Reykjavík verður fyrir bíl og lætur lífið
Meira
Sævar Helgi Bragason, oft kallaður Stjörnu-Sævar, segir sitt aðalstarf vera að fræða fólk. Einnig sinnir hann ritstörfum og dagskrárgerð og síðast en ekki síst heimsækir hann skóla og kennir börnum. Aðallega um stjarnvísindi
Meira
Hygge nefnist nýjasta kvikmyndin í leikstjórn Dags Kára Péturssonar sem frumsýnd var í Danmörku í síðustu viku. Um er að ræða danska útgáfu af ítölsku myndinni Perfetti sconosciuti (2016) sem íslenska myndin Villibráð (2023) byggðist líka…
Meira
Eins og greint var frá í blaðinu í gær hlaut Rán Flygenring Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2023 fyrir myndabókina Eldgos þegar þau voru afhent í Osló í fyrrakvöld
Meira
Þjóðlagasöngkonan og mannréttindafrömuðurinn Buffy Sainte-Marie hefur vísað á bug ásökunum um að hún hafi logið til um að vera af Cree-ættbálki, í kjölfar ásakana sem fram komu í fréttaskýringaþættinum The Fifth Estate í kanadíska ríkissjónvarpinu í þarsíðustu viku
Meira
Það er líklega enginn með svarið við því hvernig hægt er að framleiða og halda tískufyrirtækjum gangandi en biðja neytendur á sama tíma um að kaupa minna. Það er hinsvegar líklegra að fólk geti dregið úr innkaupum ef það kaupir færri og vandaðri flíkur
Meira
Iceland Airwaves hefst formlega í dag og stendur fram á sunnudag. Rúmlega 100 listamenn og hljómsveitir koma fram á hátíðinni sem fer fram á átta tónleikastöðum í borginni; Hafnarhúsinu, Fríkirkjunni, Gauknum, Gamla Bíó, Kolaportinu, Iðnó og Kex (bæði uppi og niðri)
Meira
Einleiksverk Goldberg-tilbrigðin ★★★★★ Verk eftir Johann Sebastian Bach. Víkingur Heiðar Ólafsson (einleikari á píanó). Deutsche Grammophon (DG) – 4864553, árið 2023. Heildartími: 74 mín.
Meira
Málþing til heiðurs skáldkonunni Vigdísi Grímsdóttur verður haldið í Hannesarholti um helgina. „Í tilefni af stórafmæli hennar í sumar verður bæði hátíð og myndlistarsýning í Hannesarholti í nóvember,“ segir í viðburðarkynningu, en Vigdís varð sjötug í ágúst síðastliðnum
Meira
Arnold Schwarzenegger greindi frá því í spjallþætti Grahams Nortons að hann hefði á sínum tíma ráðið raddþjálfara til að hjálpa sér að losna við sinn þykka austurríska hreim. „Ég réð til mín raddþjálfara til að hjálpa mér að losna við hreiminn
Meira
Sá einstaki sérviðburður verður á Iceland Airwaves-hátíðinni í Reykjavík í dag, fimmtudag, að lista-, tónlistar- og kvikmyndagerðarkonan Kira Kira, eða Kristín Björk Kristjánsdóttir, mun sigla með blásarasveit á seglskútunni Ópal að bryggjunni á bak við Hörpu
Meira
„Skammastu þín,“ hrópaði bandaríski leikarinn Robert De Niro að fyrrverandi aðstoðarkonu sinni, Chase Robinson, þegar hún bar vitni í réttarsal í New York í vikunni. Robinson sakar leikarann um að hafa beitt sig andlegu ofbeldi, óþarfa álagi og yfirgangi
Meira
Upplýst hefur verið um tilnefningar til Hönnunarverðlauna Íslands 2023 sem afhent verða í Grósku 9. nóvember. Í tilefni þess að verðlaunin verða nú veitt í 10. sinn hefur verðlaunaflokkum verið fjölgað í þrjá undir heitunum: vara, staður og verk
Meira
Í nóvember í fyrra boðaði ég til matvælaþings, fyrsta matvælaþings sem boðað hefur verið til hér á landi. Þar var umræðuefnið drög að matvælastefnu fyrir Ísland til 2040, og á þinginu komu saman fulltrúar þeirra margvíslegu hópa sem vinna að framleiðslu, sölu og dreifingu matvæla á Íslandi
Meira
Alda Kristjana Sigmundsdóttir fæddist í Syðra-Langholti í Hrunamannahreppi 16. júní 1933. Foreldrar hennar voru Þuríður Anna Jóhannesdóttir og Sigmundur Sigurðsson. Systkini Kristjönu eru Alda, f. 1930, d
MeiraKaupa minningabók
Anna Guðrún Auðunsdóttir fæddist á Landspítalanum 26. desember 1970. Hún lést á líknardeild Landspítalans 25. október 2023. Foreldrar hennar eru Sigurbjörg Guðmundsdóttir, f. 6.7. 1951, og Auðunn Hafsteinn Ágústsson, f
MeiraKaupa minningabók
Geir Geirsson fæddist í Reykjavík 4. maí 1939. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 19. október 2023. Foreldrar hans voru Rebekka Þorsteinsdóttir, f. 15.9. 1899 í Þormóðsey á Breiðafirði, d. 3.4. 1945, og Geir Magnússon, f
MeiraKaupa minningabók
Hrefna Ólafsdóttir fæddist á Strandgötu 43 í Hafnarfirði 5. maí 1943. Hún lést á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði 10. október 2023. Foreldrar hennar voru Dagbjört Guðjónsdóttir, f. 9. júlí 1920, d
MeiraKaupa minningabók
Jón Adolf Pálsson fæddist í Reykjavík 20. ágúst 1930. Hann lést 24. október 2023. Foreldrar hans voru Páll Norðmann Björnsson, f. 4.7. 1898, d. 29.4. 1987, og Sigríður Þorbjörg Jónasdóttir, f. 2.2. 1902, d
MeiraKaupa minningabók
Jónína G. Ragnhildur Ívarsdóttir fæddist 3. júní 1944. Hún lést 1. október 2023. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Ingólfsdóttir fæddist í Reykjavík 12. mars 1929. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir 19. október 2023. Foreldrar hennar voru Ingólfur Matthíasson loftskeytamaður, f. 15. september 1903, d. 18. júní 1950, og Unnur Sigríður Einarsdóttir húsmóðir, f
MeiraKaupa minningabók
Kristín Sigfúsdóttir fæddist á Öndólfsstöðum í Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu, 6. desember 1933. Hún lést 21. október 2023. Foreldrar hennar voru Sigfús Hallgrímsson, bóndi og organisti í Vogum Mývatnssveit (1883-1966), og Sólveig Stefánsdóttir frá Öndólfsstöðum í Reykjadal (1891-1967)
MeiraKaupa minningabók
Kristjana Þorbjörg Vilhjálmsdóttir (Systa) fæddist 3. júní 1941 á Brekku í Garði. Hún lést á HSS 21. október 2023. Foreldrar hennar voru hjónin Vilhjálmur Kristján Halldórsson frá Vörum í Garði, f. 5.7
MeiraKaupa minningabók
Óskar Marvin Svendsaas Helgason fæddist í Skálholti Neskaupstað 8. september 1943. Hann lést á fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað 25. október 2023. Foreldrar hans voru Jónína Hansdóttir Beck, f. á Sómastöðum 25
MeiraKaupa minningabók
Sigmundur Guðmundsson fæddist í Hofsósi í Skagafirði 12. júlí 1945. Hann lést 19. október 2023 á LSH, Fossvogi. Foreldrar hans voru Stefanía Guðrún Jónsdóttir, húsfreyja, fiskverka- og saumakona, f. 12
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Ólafsdóttir fæddist á Akranesi 21. ágúst 1936. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands 23. október 2023. Hún var dóttir hjónanna Ólafs Veturliða Oddssonar, f. 1915, d. 1977, og Halldóru E. Sigurdórsdóttur, f
MeiraKaupa minningabók
Svavar Reynir Benediktsson var fæddur á Hömrum í Haukadal, Dalasýslu 18. mars 1935. Hann lést 19. október 2023. Foreldrar hans voru Benedikt Jónasson bóndi f. 19. febrúar 1888, d. 14. september 1948 og Guðrún Guðjónsdóttir f
MeiraKaupa minningabók
Samtök um bætta heilsu hafsins voru stofnuð á Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, sem haldið var 19. til 21. október í Hörpu. Samtökin fengu nafnið Hafbjörg og eru stofnendur þeirra stofnanir og fyrirtæki sem með einum eða öðrum hætti koma að…
Meira
Náttúruverndarsamtök Íslands leggja til að íslensk stjórnvöld banni notkun og flutning á svartolíu innan landhelgi Íslands, sem mun útiloka skip með svartolíu um borð frá því að koma nær landinu en 12 mílur
Meira
Bandaríski seðlabankinn ákvað í gær að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum í 5,25%-5,5%. Þetta er í annað skiptið í röð sem bankinn heldur vöxtum óbreyttum, eftir að hafa hækkað vexti ellefu sinnum frá því í fyrravar
Meira
Verg framleiðsla aðildarríkja Evrópusambandsins dróst saman um 0,1% á þriðja ársfjórðungi samkvæmt tölum frá Eurostat. Það er verri niðurstaðan en greiningaraðilar gerðu ráð fyrir, sem í flestum tilvikum höfðu gert ráð fyrir áframhaldandi stöðnun
Meira
Úrvalsvísitalan (OMXI10) lækkaði um 5,6% í október. Heildarviðskipti með hlutabréf í október námu 51,4 mö.kr. króna, sem er 20% lækkun frá fyrri mánuði. Milli ára drógust viðskipti saman um 33%. Mest viðskipti í mánuðinum voru með bréf Marels (8,3…
Meira
Ég hafði aldrei farið til Mið-Austurlanda, hvað þá Íraks, en ég sendi nokkra tölvupósta og svo bara fór ég upp á von og óvon. Ég fór fyrst í mars á þessu ári en ég var lengur núna í seinna skiptið og gat fyrir vikið kennt miklu fleiri konum
Meira
Þorvaldur Guðmundsson skrifar mér gott bréf: Ég sá fyrir löngu einhvers staðar að í umræðu um girðingar hefði séra Björn á Dvergasteini talað á móti girðingum og þá hefðu þessar vísur verið ortar: Þannig lít ég ætið á og það ber að virða
Meira
70 ára Drífa er fædd á Akranesi og ólst þar upp. Hún lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 1979 og BSc.-prófi í hjúkrunarfræði við HÍ 2005. Hún var ljósmóðir á Akranesi 1979-1994 og eftir það í Vestmannaeyjum
Meira
Steini Þorvaldsson fæddist 2. nóvember 1948 á Akranesi og ólst þar upp fyrstu árin og gekk í tímakennslu þar sex ára og Barnaskóla Akranes fyrstu þrjá bekkina. „Þegar ég er níu ára gamall flyst ég á fæðingarjörð föður míns að Narfastöðum í Melasveit í Borgarfirði
Meira
line-height:150%">Í gær leyfði maður sér að nota hina krúttlegu dönskuslettu grassera, sem nogle ældre mennesker minnast með hlýju eins og fleiri slettna
Meira
Óhætt er að mæla með heimildaseríunni Reframed: Marilyn Monroe sem Karen McGann leikstýrði og CNN framleiddi. Serían, sem telur fjóra þætti, var frumsýnd 2022 þegar 60 ár voru liðin frá því að Monroe lést aðeins 36 ára gömul
Meira
Í bókinni Reykjavík sem ekki varð segja sagnfræðingurinn Anna Dröfn Ágústsdóttir og arkitektinn Guðni Valberg frá stórbyggingum í Reykjavík sem enduðu á öðrum stað en ætlað var í upphafi.
Meira
Emmsjé Gauti fer af stað um jólin með tónleikana Jülevenner sjötta árið í röð. Gauti ræddi sýninguna íÍslandi vaknar á dögunum. „Við erum að hugsa þetta sem meira en tónleika
Meira
Albert Guðmundsson var hetja Genoa er liðið tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í knattspyrnu með 2:1-heimasigri á Reggiana í Genoa
Meira
Körfuknattleiksdeild Hauka hefur tekið ákvörðun um að segja upp samningi leikmanns kvennaliðsins, hinnar finnsku Kaisu Kuisma. Í stuttri tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Hauka er greint frá ákvörðuninni og Kuisma þakkað framlag sitt til félagsins
Meira
Handknattleiksmaðurinn Tryggvi Þórisson hefur skrifað undir nýjan samning við topplið sænsku úrvalsdeildarinnar, Sävehof. Selfyssingurinn, sem leikur í stöðu línumanns og er sérstaklega sterkur varnarmaður, samdi við Sävehof sumarið 2022 og lék vel á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku
Meira
Kylfingar á Íslandi hafa aldrei verið fleiri en nú og hefur þeim fjölgað um 35% á síðustu fimm árum. Á heimasíðu Golfsambands Íslands er greint frá því að þann 1. júlí á þessu ári hafi félagsmenn sem voru skráðir í golfklúbba á landinu verið alls 24.201
Meira
Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir heimsmeistaramótið sem hefst í lok nóvember. Íslandi mistókst að tryggja sér þátttökurétt í gegnum undankeppnina, en fékk síðan úthlutað boðssæti og verður með …
Meira
Nú er bakvörður dagsins spenntur! Hann mætti á fund Arnars Péturssonar, landsliðsþjálfara kvenna í handbolta, í gær, þar sem átján manna hópurinn fyrir lokamót HM var opinberaður. Er um mjög spennandi hóp að ræða, sem leit vel út gegn Færeyjum og Lúxemborg í undankeppni EM í síðasta verkefni
Meira
Knattspyrnugoðsögnin Sir Bobby Charlton lést í kjölfar þess að hafa dottið illa á hjúkrunarheimili. BBC greinir frá því að rannsókn á vegum dánardómstjóra Cheshire hafi leitt í ljós að Charlton hafi látist af slysförum
Meira
Knattspyrnuþjálfarinn Þorlákur Árnason hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Damaiense, sem leikur í efstu deild í Portúgal. Fótbolti.net greinir frá því að Þorlákur hafi tekið við stjórnartaumunum hjá liðinu í síðustu viku og stýri sínum fyrsta leik í 1
Meira
Ný rannsóknarstofa námsbrautar íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands var opnuð í vikunni í Laugardalshöll. Rannsóknarstofan er búin fjölda nýrra rannsóknartækja sem stórauka möguleika til mælinga og rannsókna á líkamlegu atgervi íþróttafólks…
Meira
Í nánu sambandi getur líka hjálpað að hafa makann með frá upphafi, ekki vera að pukrast úti í horni á bak við makann heldur vinna í hlutunum saman, það hefur skilað betri árangri í kynlífsbatanum.
Meira
Eftir því sem menn eru yngri er þetta svakalegra högg og ekki bara högg heldur getur það orkað eins og árás á hugmyndina um það hver þú ert, breytt sjálfsmyndinni og samskiptum.
Meira
Þeir sem hafa krabbamein núna mjög nærri sér er alla vega hálf þjóðin. Það þýðir að fólk brennur fyrir því að fá að taka þátt í baráttunni fyrir þessum málstað. Það vill leggja sitt af mörkum og við reynum að tryggja fólki tækifæri til þess með ýmsum hætti.
Meira
Ef vel tekst til verður í framhaldinu til viðvarandi vettvangur þar sem menn ræða sín mál og fara yfir söguna sína, segja hana aftur og aftur og hlusta á aðrar sögur þeirra sem búnir eru að yfirstíga erfiðleikana.
Meira
Við vorum að ræða það að það fyrsta sem menn standa frammi fyrir þegar þeir greinast með blöðruhálskirtilskrabbamein er ótti,“ segir Guðmundur G. Hauksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins Framfarar, félags karla með…
Meira
„Eins og við vinnum í Ljósinu almennt horfum við á einstaklinginn út frá heildrænni nálgun, við erum heildstæðar manneskjur sem glíma við andlega, félagslega og líkamlega þætti og það er það sem við erum að sinna hér.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.