Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta var bæði fallegur og góður dagur á Hólum,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, en viljayfirlýsing með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um að treysta starfsemi skólans var undirrituð á málþingi á Hólum sl. fimmtudag. Málþingið var haldið til heiðurs Jóni Bjarnasyni, fv. skólastjóra Bændaskólans á Hólum, og konu hans, Ingibjörgu S. Kolka.
Meira