Framkvæmdum við Svartsengi miðar vel áfram, en aðeins vantar um 500 metra upp á til þess að hægt verði að tengja varnargarðana tvo í kringum Svartsengi saman. Annar varnargarðanna liggur samsíða Sundhnúkagígaröðinni og Hagafelli, austan við Þorbjörn, og er hann nú um 1.400 metrar á lengd
Meira
Hæstiréttur Rússlands úrskurðaði í gær að banna ætti hina „alþjóðlegu LGBT-hreyfingu og undirdeildir hennar“ sem öfgasamtök. Sagði í úrskurðinum að öll starfsemi hinsegin-hreyfinga væri þar með bönnuð á rússnesku landsvæði
Meira
Rannsóknum á íslenskum alþýðuskáldum og verkum þeirra hefur lítt verið sinnt fyrr en nú að Þórður Helgason hefur opnað þennan heim með metnaðarfullu fræðiriti. Alþýðuskáldin á Íslandi. Saga um átök, í útgáfu Hins íslenska bókmenntafélags, er afrakstur fimm ára rannsóknarvinnu Þórðar
Meira
Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ógilt ákvörðun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna um að lækka áunnin lífeyrisréttindi yngri sjóðfélaga mismikið eftir aldurshópum en hækka hjá þeim sem eldri eru
Meira
Baltasar Kormákur Baltasarsson, eigandi RVK Studios, hefur gert samning við bandaríska tæknifyrirtækið Apple. Þetta tilkynnti hann á morgunverðarfundi Kompanís, viðskiptaklúbbs Morgunblaðsins, í gærmorgun
Meira
Byggðasafn Skagfirðinga stendur fyrir útgáfuhófi og aðventugleði í Glaumbæ sunnudaginn 3. desember kl. 16. Auk aðventunnar er tilefnið bókin Vetrardagur í Glaumbæ, sem er framhaldssaga barnabókarinnar Sumardagur í GlaumbæMeira
Greint var frá því í gær að Henry Kissinger, fyrrv. utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefði látist á heimili sínu í Connecticut á miðvikudaginn, 100 ára að aldri. Fáir hafa markað jafndjúp spor í utanríkisstefnu Bandaríkjanna og Kissinger, en Richard …
Meira
Kristján Jónsson kris@mbl.is Á þessum árstíma hellist kvíði yfir einhverja þegar þeir átta sig á því að aftur sé komið að þeirri stund þar sem hengja skal upp jólaseríuna. Ófáa Íslendinga hefur maður séð á barmi taugaáfalls í glímunni við seríuna.
Meira
Fimm djasssöngkonur bjóða til tvennra jólatónleika í Salnum í Kópavogi þar sem andi Ellu Fitzgerald mun svífa yfir vötnum. Fyrri tónleikarnir fara fram í kvöld kl. 20 og síðari tónleikarnir á sama tíma annað kvöld
Meira
Alls verða 84 fulltrúar Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP28, sem hófst í gær í Dúbaí. Fulltrúar Íslands eru ýmist á vegum ríkis, borgar, samtaka eða einkafyrirtækja og þar af skipa tólf formlega sendinefnd
Meira
Hryðjuverkasamtökin Hamas lýstu í gær yfir ábyrgð sinni á skotárás sem framin var í Jerúsalem fyrr um daginn. Tveir byssumenn hófu þá árás við strætóstoppistöð í vesturhluta borgarinnar. Þrír féllu og átta særðust áður en tveir hermenn, sem voru á frívakt, skutu byssumennina sjálfa til bana
Meira
„Innan okkar aðildarfélaga fóru 26 einstaklingar í mismunandi úrræði á hjúkrunarheimilum,“ segir Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, spurður að því hvað hafi orðið um þá einstaklinga sem…
Meira
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir heilbrigðisráðuneytið þurfa að kynna sér betur niðurstöður viðamikillar úttektar verkfræðistofu sem skilað hefur frá sér skýrslu um ástand húsnæðis Reykjalundar, en í gær var ákveðið að loka skyldi hluta þess vegna bágs ásigkomulags
Meira
Ísfirðingar eru ekki af baki dottnir þótt Skaginn 3X hafi tilkynnt í ágúst að starfsemi fyrirtækisins á Ísafirði yrði hætt. Í dag tekur til starfa nýtt fyrirtæki í bænum, Ístækni ehf., sem fest hefur kaup á tækjum og framleiðslubúnaði Skagans 3X auk …
Meira
Grindvíkingar mótmæltu í höfuðstöðvum Gildis lífeyrissjóðs og Landssamtaka lífeyrissjóða í gær. Var markmiðið að þrýsta á lífeyrissjóði að koma betur til móts við Grindvíkinga sem nú þurfa að finna sér nýtt húsnæði með tilheyrandi kostnaði en krafan …
Meira
Baksvið Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Fjárfesting alþjóðlega innviðasjóðsins Ardian, eiganda Mílu, í gagnaversfyrirtækinu Verne Global, sem sagt var frá fyrr í vikunni, er frumraun fyrirtækisins á sviði fjárfestinga í gagnaversiðnaði.
Meira
Alls hafa verið gerðar 1.790 liðskiptaaðgerðir á mjöðm og hné það sem af er árinu samkvæmt nýjum tölum sem embætti landlæknis hefur birt. Þar kemur fram að fyrstu 11 mánuði ársins hafa verið gerðar 1.018 aðgerðir á hné og 672 aðgerðir á mjöðm
Meira
Meirihluti velferðarnefndar Alþingis leggur til að gefinn verði fjögurra ára aðlögunartími að banni við að setja á markað tóbaksvörur með einkennandi bragði, einkum mentólbragði, en gert er ráð fyrir slíku banni í frumvarpi um breytingu á lögum um tóbaksvarnir
Meira
Stefnt er að því að hætta notkun Íslykilsins um áramótin en hann hefur hentað mörgum sem auðkenningaraðferð, sérstaklega þeim sem ekki hafa tök á því að nota rafræn skilríki. Í svari Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur fjármálaráðherra við…
Meira
Það er á ábyrgð rekstraraðila sjálfra að láta Reykjavíkurborg vita hvort gististarfsemi sé rekin í íbúðarhúsnæði sem og að sækja um leyfi fyrir slíku til sýslumanns
Meira
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í gær að gengið yrði til samstarfs við Samhjálp sem lið í vetraráætlun um opnun neyðarskýla. Gert er ráð fyrir að Kaffistofa Samhjálpar við Borgartún verði opin fyrir heimilislausa með miklar og flóknar þjónustuþarfir frá kl
Meira
Unnið er að því að leita leiða til þess að tryggja eins og kostur er að neysluvatns megi afla fyrir Vestmannaeyjar á meðan ekki hefur verið gert við neysluvatnslögnina sem skemmdist á dögunum
Meira
Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP, hófst í gær, hin 28. í röðinni. Að þessu sinni er hún haldin í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, og stefna skipuleggjendur ráðstefnunnar að því að hún verði sú stærsta til þessa
Meira
Unnið er að því að leita leiða til þess að tryggja eins og kostur er að neysluvatns megi afla fyrir Vestmannaeyjar á meðan ekki hefur verið gert við neysluvatnslögnina sem skemmdist á dögunum. Þar á meðal hafa stærstu sjávarútvegsfyrirtækin í Eyjum…
Meira
Framkvæmdir við varnargarðana í kringum Svartsengi ganga vel og eru þeir nú samanlagt rúmlega fimm kílómetrar að lengd. Að sögn Arnars Smára Þorvarðarsonar, byggingatæknifræðings hjá Verkís, vantar aðeins um 500 metra til að hægt sé að tengja þá saman
Meira
Breiðablik tapaði naumlega fyrir Maccabi Tel Aviv frá Ísrael í síðasta heimaleik sínum í Sambandsdeild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í gær. Blikarnir töpuðu þar með öllum þremur heimaleikjum sínum í riðlakeppninni með eins marks mun en þeir eiga…
Meira
Hrafnar Viðskiptablaðsins vöktu athygli á þeirri undarlegu og óþörfu stofnun sem kölluð er Fjölmiðlanefnd. Þeir sögðust hefðu haldið „að verðbólguþjakaðir landsmenn tækju nýafstöðnum tilboðsdögum fagnandi en Unnur Freyja Víðisdóttir, sérfræðingur í miðlalæsi hjá Fjölmiðlanefnd, var fljót að leiðrétta þann misskilning.
Meira
„Þessi hugmynd kom upp á síðasta ári, að setja upp barnaóperu því að okkur fannst skorta framboð á óperusýningum fyrir yngstu kynslóðina. Krakkarnir þekkja það kannski flestir að fara í leikhús en mun færri hafa kynnst töfrum óperunnar og þess …
Meira
Leikkonan Cynthia Nixon, sem þekkt er úr Sex and the City, var í hópi áhrifafólks sem stóð fyrir mótmælafundi fyrir utan Hvíta húsið í Washington fyrr í vikunni. Þessu greinir Hollywood Reporter frá
Meira
Elísabet Skagfjörð Guðrúnardóttir hlýtur styrk til framhaldsnáms í leiklist úr Leiklistarsjóði Brynjólfs Jóhannessonar. Forseti Íslands afhenti föður Elísabetar Valgeiri Skagfjörð skjal þess efnis á Bessastöðum í gær
Meira
Purrkur Pillnikk kemur fram í Smekkleysu á morgun, laugardag, milli kl. 17 og 19 í tilefni af útgáfu heildarsafns verka sveitarinnar Orð fyrir dauða. Í tilkynningu frá Smekkleysu sem gefur út segir að í heildarsafninu sé meðal annars að finna áður…
Meira
Handskrifaður texti tveggja laga Davids Bowie verður boðinn upp í næstu viku. Samkvæmt frétt BBC er talið að blaðið verði selt fyrir 100 þúsund pund eða tæpar 17,4 milljónir ísl
Meira
Dansstuttmyndirnar Vestdalsfoss eftir Helga Örn Pétursson og Sjoppa – Together eftir Ísak Hinriksson hafa verið valdar til sýninga á alþjóðlegu danshátíðinni Festival de…
Meira
Íslendingar munu ekki hafa um viðbrögð að segja, t.d. bólusetningar, rafræn vottorð, ferðafrelsi, innilokanir, grímuskyldu barna og frelsi til athafna.
Meira
Landið okkar varð eitt af þeim farsælustu í heimi með því að gefa framtakssömu fólki frelsi til athafna samfélaginu öllu til heilla. Lífskjör hér eru með þeim bestu sem þekkjast á byggðu bóli og afkoma hins opinbera er gríðarlega sterk í alþjóðlegum samanburði
Meira
Jón forseti var Íslendingur en hann var líka heimsborgari í fegurstu mynd þess orðs. Hann var þess tíma kyndilberi frjálslyndis og frjálsra viðskipta.
Meira
Markmið Bjarmahlíðar er að efla fræðslu og umfjöllun um eðli og afleiðingar ofbeldis, ásamt því að gefa skýr skilaboð um að ofbeldi sé ekki liðið.
Meira
Væri ekki ráð að skýra fyrir starfsfólki MDE að dómurinn hafi ekkert dómsvald á Íslandi til að segja Íslandi fyrir verkum með „bráðabirgðaúrskurðum“?
Meira
Björn Reynir Jónsson fæddist 7. desember 1955 á Skorrastað í Norðfirði. Hann lést 7. október 2023.Útför Reynis fór fram 31. október 2023.
MeiraKaupa minningabók
Jóhannes Birgir Sigurðsson skipstjóri fæddist í Neskaupstað 21. október 1929. Hann lést á hjúkrunardeild HSA í Neskaupstað 20. nóvember 2023. Foreldrar hans voru Sigurður Bjarnason verkamaður, f. 3. október 1885 á Fagurhólsmýri, Hofshreppi, d
MeiraKaupa minningabók
Jóhannes Rúnar Sveinsson fæddist 14. mars 1956. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 19. nóvember 2023. Foreldrar hans voru Guðjónína S. Jóhannesdóttir, f. 1929, d. 2017, og Sveinn Valdemarsson, f
MeiraKaupa minningabók
Úlfar Bjarki Hjaltason fæddist í Reykjavík 12. júlí 1969. Hann lést á heimili sínu 21. nóvember 2023. Foreldrar Úlfars Bjarka voru hjónin Hjalti Sigurjón Guðmundsson frá Vesturhópshólum, f. 24.5. 1924, d
MeiraKaupa minningabók
Þórður Sævar Pálmason fæddist í Reykjavík 18. september 1954. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi 25. nóvember 2023. Foreldrar Þórðar voru hjónin Pálmi Sævar Þórðarson skipskokkur og veitingamaður og Guðbjörg Eyjólfsdóttir húsmóðir
MeiraKaupa minningabók
Rannsóknasetur verslunarinnar (RSV) spáir 0,29% samdrætti í smásöluverslun þessi jól á föstu verðlagi. Ný könnun RSV og Prósents leiðir í ljós að landsmenn hyggjast eyða 12.000 krónum minna í jólagjafir í ár en þeir gerðu í fyrra
Meira
40 ára Arna er fædd á Ísafirði en ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Hún hefur búið í Kópavogi síðan 2006. Arna er með atvinnuflugmannspróf frá Oxford Aviation, diplóma í flugrekstrarfræði frá Tækniskólanum og er flugmaður hjá Icelandair
Meira
Arngrímur Hermannsson er fæddur 1. desember 1953 uppi í risi á Bergþórugötu 33 í Reykjavík en þegar hann var sjö ára fluttist fjölskyldan í Rauðagerði í Bústaðahverfi. „Ég fór í sveit níu ára til Moniku á Merkigili í Austurdal í Skagafirði
Meira
Streymisveitan Netflix hefur farið hamförum í gerð jólakvikmynda undanfarin ár og virðist ekki ætla neitt að gefa eftir. Úrvalið af C- og D-klassa jólamyndum hefur sennilega aldrei verið breiðara en þetta árið
Meira
Kópavogur Aníta Björk Elmarsdóttir fæddist 28. janúar 2023 kl. 21.15 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún vó 3.215 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Dagný Valdimarsdóttir og Elmar Freyr Emilsson.
Meira
Hallmundur Kristinsson yrkir á Boðnarmiði: Ólíklegt að yrkja vísu geti af því ég er illa haldinn af leti. Í snjóleysinu og hlýindunum yrkir Gunnar J. Straumland: Frost: Norðan bylur næðir ótt, nístir, dylur, seiðir
Meira
Bubbi Morthens gaf út plötuna Ljós & skugga fyrr í haust og kynnti lag sitt Holuna í þættinum Íslensk tónlist með Heiðari Austmann. Í þættinum er íslenskri tónlist gert hátt undir höfði hvort sem það er frá ungum og upprennandi tónlistarmönnum eða þeim þekktari
Meira
Daniel Love, nýjasti leikmaður Hauka, fór mikinn þegar liðið hafði betur gegn Hetti, 93:85, í 9. umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Ólafssal í Hafnarfirði í gær en Love skoraði 26 stig, tók sex fráköst og gaf eina stoðsendingu í leiknum
Meira
Íslenska liðið má vera sátt með margt í leiknum í gær, eftir að liðið losaði sig við hrollinn sem hrjáði liðið í upphafi leiks. Spennustigið var of hátt í byrjun og gerði íslenska liðið allt of mörg mistök, sem er refsað fyrir þegar komið er á lokamót HM
Meira
Grótta og Stjarnan náðu í gærkvöld í dýrmæt stig í úrvalsdeild karla í handknattleik en þá mættust innbyrðis fjögur af fimm neðstu liðum deildarinnar. Grótta vann Selfoss á Seltjarnarnesi, 32:25, þar sem Ágúst Ingi Óskarsson skoraði 10 mörk fyrir…
Meira
Janus Daði Smárason gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk fyrir Magdeburg og var markahæstur þegar liðið vann fjögurra marka sigur gegn Montpellier, 28:24, í…
Meira
Bandaríska körfuknattleikskonan Tynice Martin hefur yfirgefið herbúðir úrvalsdeildarliðs Njarðvíkur. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í…
Meira
„Það eru mjög blendnar tilfinningar en mest er ég ógeðslega svekkt. Við sögðum það fyrir leik og aftur í hálfleik að við ætluðum að vinna þennan leik. Það sáu allir hvað við vorum nálægt þessu. Við minnkuðum þetta í eitt mark, en svo fengu þær of…
Meira
Gísli Eyjólfsson skoraði mark Breiðabliks þegar liðið tók á móti Maccabi Tel Aviv í B-riðli Sambandsdeildar karla í knattspyrnu á Kópavogsvelli í gær
Meira
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mátti þola tap, 30:24, í fyrsta leik liðsins í D-riðli á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í Stafangri í Noregi í gær. Var leikurinn sá fyrsti hjá Íslandi á lokamóti HM í tólf ár og sá fyrsti á stórmóti í ellefu ár
Meira
Eftir ósigur Íslands gegn Slóveníu í gær og mjög nauman sigur Frakklands gegn Angóla, 30:29, gæti baráttan um annað og þriðja sætið í D-riðli heimsmeistaramótsins orðið snúin. Lið Angóla sýndi að það gæti hæglega náð öðru sætinu og ljóst er að…
Meira
Fræðirit Með verkum handanna: Íslenskur refilsaumur fyrri alda ★★★★★ Eftir Elsu E. Guðjónsson. Ritstjóri: Lilja Árnadóttir. Aðstoð við ritstjórn: Mörður Árnason. Þjóðminjasafn Íslands, 2023. Innb., 416 bls. Formálar eftir ritstjóra og þjóðminjavörð. Myndir, skrár, enskur útdráttur.
Meira
„Frá upphafi til enda er bókin sjálf ekkert lengra ferli en svona tvær vikur,“ segir Kristinn Óli S. Haraldsson um sköpunarferli fyrstu ljóðabókar sinnar, Maður lifandi. Hann segir bókina ekki hafa verið lengi að fæðast
Meira
Jón Erlendsson er þýðandi Paradísarmissis eftir John Milton (1608-1674). Kjarni verksins er syndafallið en frásögnin spannar sögu heimsins frá sköpun til dómsdags. Þessi útgáfa Paradísarmissis er vegleg og þar er fjöldi mynda eftir Gustave Doré
Meira
Skáldsaga 1 Um morguninn var komin Íslandsblá blíða með áþreifanlegu snemmsumarlyktinni. Mér var ekki til setunnar boðið, en ég hékk samt í hvíta sófanum lengur en ég er vön eftir svefninn, drakk mitt græna te og skoðaði leik öldunnar, sem var komin …
Meira
Skáldsaga 6 Prins var enn einu sinni farinn yfir í næsta líf og skildi ekkert eftir sig nema skelina. Nú lá hann innpakkaður í grænt flísteppi með tyggigúmmíbleikan varalit og ljósan augnskugga í kringum innfallin augun
Meira
Skáldsaga 3 Klukkan var að verða tíu og Högni var ennþá að reyna að einbeita sér að gögnunum á skrifborðinu, búinn að sitja við síðan klukkan níu. Hugurinn leitaði sífellt aftur til gærkvöldsins, þar sem hann sat á kontórnum sínum hjá…
Meira
Borg hinna dauðu er ellefta bók Stefáns Mána um lögreglumanninn Hörð Grímsson. Nítján ára stúlka hverfur og tuttugu árum síðar finnast mannabein við uppgröft. Hörður fer með rannsókn á hrollvekjandi máli
Meira
Rit almenns efnis Dauðinn: Raunsannar frásögur um sorgir og sigra við leiðarlok lífsins ★★★½· Eftir Björn Þorláksson. Tindur, 2023. Mjúkspjalda, 271 bls.
Meira
Skáldsaga Heaven ★★★★· Eftir Mieko Kawakami. Jón St. Kristjánsson þýddi. Maríanna Clara Lúthersdóttir ritar eftirmála. Angústúra, 2023. Kilja, 224 bls.
Meira
Ljóðabókin Undir mjúkum væng – myndir úr dagbók, eftir Matthías Johannessen, er síður en svo frumraun höfundar, en liðin eru 65 ár síðan fyrsta bók hans kom út árið 1958. Morgunblaðið ræddi við Þröst Helgason sem bjó bókina til prentunar
Meira
Þórarinn Eldjárn höfundur Hlustum frekar lágt Hvað hefur staðið upp úr nýlega? Margt á ég auðvitað ólesið en af því lesna nefni ég fyrst Heimsmeistara Einars Kárasonar þar sem höfundurinn sjálfur sýnir heimsmeistaratakta
Meira
„Í Einlífi er hið fullorðna sjálf stúlkunnar í Meydómi að líta yfir kvendóm sinn,“ segir Hlín Agnarsdóttir um bókina Einlífi – ástarrannsókn sem hún sendi nýverið frá sér
Meira
Það kom eflaust mörgum á óvart þegar spurðist að Auður Ava Ólafsdóttir myndi senda frá sér bók á þessu ári, enda kom Eden út á síðasta ári og hún hefur ekki haft það fyrir sið að gefa bók út árlega
Meira
„Armeló er í rauninni ferðasaga manneskju sem hatar að ferðast,“ segir rithöfundurinn Þórdís Helgadóttir um nýja skáldsögu sína. „Söguhetjan er dregin í „roadtrip“ með manninum sínum, eiginlega nauðug viljug
Meira
Spurð hvernig nýútkomin bók hennar hafi orðið til segir Bergþóra Snæbjörnsdóttir að sig hafi langað að skilja hvernig venjulegt fólk lendir í öfgakenndum aðstæðum – eins og því að ganga til liðs við sértrúarsöfnuð eða að vera heilaþvegið
Meira
Sýnisbók Dróttkvæði: Sýnisbók ★★★★· Eftir Gunnar Skarphéðinsson. Skrudda, 2023. Innb., 259 bls., skrár um heimildir, helstu atriðisorð, nöfn manna og vætta, skammstafanir og tákn.
Meira
Linda Ólafsdóttir og Ævar Þór Benediktsson gáfu nýverið út hvort sína barnabókina. Bók Lindu heitir Ég þori! Ég get! Ég vil! og bók Ævars Strandaglópar! Linda myndlýsti bók sína sjálf en Ævar vann með myndhöfundinum Anne Wilson
Meira
Húslestur ★★★½· eftir Magnús Sigurðsson. Dimma. „En Magnúsi tekst í víðsýnum prósaskrifum sínum alltaf að koma á óvart, að ögra formum á sinn háttvísa, yfirvegaða og menntaða hátt, og í margvíslegum og frumlegum textunum býr líka alltaf lævís…
Meira
„Ég skrifaði þessa bók sem seinna bindið í sögu Þorgerðar, en margir hafa spurt mig hvort ekki sé von á framhaldi þannig að ég ætla ekki sverja fyrir að ég muni skrifa meira um hana í framtíðinni
Meira
„Ég nýt þess mjög að skrifa og hef gert lengi og er auk þess búin að sitja í bókmenntafræði og ritlist á BA-stigi. Svo fór ég að sjá tengingar á milli textanna minna og prófaði að vinna þá saman svo úr varð bók sem ég svo lagði feimnislega á…
Meira
Hæfilega spennandi Lending ★★★½· eftir Hjalta Halldórsson. Bókabeitan, 2023. Innb., 168 bls. Hjalti Halldórsson er afkastamikill bókasmiður sem skrifað hefur fyrir börn og unglinga og iðulega notað minni úr íslenskum fornsögum í bókum sínum með góðum árangri
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.