Kokteilbarinn Amma Don, sem rekinn er samhliða hinum leyndardómsfulla veitingastað Óx við Laugaveg, sópaði að sér verðlaunum á barþjónakeppninni Bartenders Choice Awards sem haldin var í 14. sinn í Kaupmannahöfn á dögunum
Meira
Skráð atvinnuleysi á landinu var 3,8% í seinasta mánuði og lækkaði úr 3,9% frá febrúar. Er þetta í fyrsta skipti frá í júlí í fyrra sem atvinnuleysi minnkar á milli mánaða. Mest atvinnuleysi var á Suðurnesjum en þar minnkaði það þó frá mánuðinum á undan úr 6,9% í 6,5% í mars
Meira
„Ég sé Grindavík fyrir mér eins og hún var, fyrirmyndarsamfélag þar sem íbúar undu glaðir við sitt, sinntu sínum störfum, skiluðu drjúgum skerf í þjóðarbúið, voru glaðir á góðri stund, stóðu saman í gegnum þykkt og þunnt,“ sagði Guðni Th
Meira
Stjórnvöld í Sviss tilkynntu í gær að þau myndu standa að alþjóðlegri friðarráðstefnu vegna Úkraínustríðsins um miðjan júní. Viola Amherd forseti Sviss verður gestgjafi ráðstefnunnar, sem á að fara fram í nágrenni Luzern-borgar dagana 15.-16
Meira
Eftirpartí nefnist nýtt dansverk eftir Ásrúnu Magnúsdóttur unnið í náinni samvinnu við Forward Youth Company sem frumsýnt er í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. „Partíið er búið eða það er allavega alveg að klárast
Meira
Endurskipulagning er hafin á starfsemi Múlalundar, vinnustofu SÍBS, í breyttu umhverfi. Þetta segir Sveinn Guðmundsson, formaður stjórnar SÍBS. Um reksturinn verður stofnað félag og ráðgast verður við færan rekstrarmann
Meira
FH-ingurinn reyndi Ásbjörn Friðriksson segir að Hafnfirðingarnir ætli sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta en þeir spila fyrsta leik sinn í úrslitakeppninni gegn KA í Kaplakrika í kvöld. „Við ætlum okkur stóra hluti í vor og ætlum að vinna,“ segir Ásbjörn
Meira
Biskupskjör hefst á hádegi í dag og stendur yfir í fimm sólarhringa. Kosningu lýkur þ.a.l. á hádegi næstkomandi þriðjudag. Þrír prestar eru í kjöri; sr. Elínborg Sturludóttir prestur í Dómkirkjunni, sr
Meira
Tíðni sýkinga af völdum listeríu virðist fara vaxandi. Fram kemur í Farsóttafréttum sóttvarnalæknis að á fyrstu þremur mánuðum yfirstandandi árs hafi greinst fimm tilfelli af listeríu með blóðræktun á sýkla- og veirufræðideild Landspítala, hjá fjórum körlum og einni konu, öllum á aldrinum 70-85 ára
Meira
Hálf öld var liðin í gær frá því Bolungarvík fékk kaupstaðarréttindi en hinn 5. apríl árið 1974 hafði það verið lagt til á Alþingi. Bolvíkingar voru hófsamir í hátíðarhöldum í gær en bæjarbúar voru hvattir til að draga fána að húni og minnast tímamótanna
Meira
Kammerkórinn Hljómeyki var stofnaður 1974 og heldur upp á 50 ára afmælið með tónleikum í Hallgrímskirkju sunnudaginn 14. apríl og í Dómkirkjunni 17. júní. Nokkrir söngvarar úr Póýfónkórnum vildu syngja öðruvísi tónlist en þeir sungu þar og byrjuðu því með Hljómeyki til hliðar
Meira
Fyrstu tilfellin af kíghósta hér á landi í fimm ár greindust nýlega. Í síðustu viku greindust tveir einstaklingar með kíghósta á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt landlæknisembættinu. Í færslu embættisins segir að útbreiðsla sjúkdómsins hafi farið vaxandi …
Meira
Hún fékk að ráða þemanu í veislunni og koma með sínar tillögur að veitingum. Einnig valdi hún fermingarkjólinn sinn sjálf og út frá litunum í honum voru litir veislunnar hafðir í forgrunni. „Dagurinn var bjartur og fallegur, athöfnin dásamleg…
Meira
Halldór var fjármálaráðherra Í umfjöllun um fyrri fjármálaráðherra Framsóknarflokksins í blaðinu í gær var ekki getið um Halldór E. Sigurðsson, sem var fjármálaráðherra á árunum 1971 til 1974
Meira
„Tónlist gerir lífið skemmtilegra og nám á því sviði gefur börnum mikið. Þetta er þáttur í samfélaginu sem er mikilvægt að gefa gaum og sveitarfélögin þurfa að styðja vel við tónlistarmenntun í landinu,“ segir Júlíana Rún Indriðadóttir, skólastjóri Tónskóla Sigursveins D
Meira
Fumio Kishida forsætisráðherra Japans heimsótti í gær Hvíta húsið ásamt Yuko eiginkonu sinni, en þar tóku Joe Biden Bandaríkjaforseti og Jill Biden forsetafrú á móti þeim. Leiðtogarnir ræddu þar ýmis álitamál í alþjóðamálum, líkt og stöðu Úkraínu og Taívan-eyju
Meira
Aðeins eitt mál var á dagskrá Alþingis í gær og var það yfirlýsing Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og umræður um hana. Bjarni sagði fjögur helstu málin vera efnahagsmál, útlendingamál, orkumál og örorkumál
Meira
Líf og fjör var í gær þegar ráðherrar ríkisstjórnarinnar skiptust á lyklum og mátuðu sig í fimm ný ráðuneyti. Þegar Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson höfðu skipst á lyklum í forsætisráðuneytinu ræddu þau stuttlega saman áður en Katrín ávarpaði fjölmiðla og fór svo út á vit nýrra ævintýra
Meira
Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sumarið 2019 sagði Viðskiptablaðið frá því að samningar hefðu verið undirritaðir um uppbyggingu á 10 hektara landi á Ártúnshöfða.
Meira
Á undanförnum árum hafa um 26 þúsund fermetrar húsnæðis í eigu ríksins verið teknir úr notkun vegna myglu og rakaskemmda. Hefur vandamálið farið hríðversnandi. Árið 2018 voru fermetrarnir aðeins 325
Meira
„Ég verð nú að segja að umræðan um að stytting náms til stúdentsprófs virðist vera á algjörum villigötum,“ segir Ársæll Guðmundsson skólastjóri Borgarholtsskóla og vísar þar í umræðu sem hefur verið talsverð undanfarin, ekki síst á háskólastiginu
Meira
Með blöndu af ríkisframlagi og einkafjármögnun mætti hraða jarðgangagerð á Íslandi um marga áratugi. Jafnframt tryggja að hægt yrði að aka á láglendi um allt Ísland og komast þannig hjá illfærum heiðum og fjallvegum, ekki síst að vetrarlagi
Meira
Á undanförnum árum hafa um 26 þúsund fermetrar húsnæðis í eigu ríksins verið teknir úr notkun vegna myglu og rakaskemmda. Hefur vandamálið farið hríðversnandi. Þessar upplýsingar fékk Morgunblaðið hjá Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum (FSRE)
Meira
„Þarna er rík krafa frá eiganda um að notfæra sér mikilvægt innviðafyrirtæki borgarinnar sem einhvers konar óþrjótandi botnlausan sparibauk, þegar illa árar í rekstri borgarinnar. Það blasir við að eðlilegra væri að hagræða í rekstrinum, grípa …
Meira
Ráðherrar í nýrri ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar skiptust á lyklavöldum í ráðuneytum sínum í gær. Skipti fóru fram í fimm ráðuneytum. Hér er Sigurður Ingi Jóhannsson á leið í lyftu með fjölmiðlafólki til að skila lyklunum að innviðaráðuneytinu…
Meira
Atvinnuveganefnd sætir harðri gagnrýni í bréfi sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sendi nefndinni sl. mánudag þar sem bent er á ýmsa skavanka sem ráðherrann telur að sé að finna á nýsamþykktum breytingum á búvörulögum
Meira
Netöryggisfyrirtækið Defend Iceland, ásamt Rannís, Háskólanum í Reykjavík og Miðstöð stafrænnar nýsköpunar, efnir til hádegisfundar í dag í Grósku þar sem sjónum verður beint að forvirkum netöryggisráðstöfunum
Meira
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í fyrrakvöld að hann teldi að Benjamín Netanjahú og Ísraelsstjórn væru að gera mikil mistök með nálgun sinni á átökin á Gasasvæðinu. Skoraði Biden jafnframt á Netanjahú að blása strax til tímabundins vopnahlés í sex …
Meira
„Hlutverkið er að flögra um, fylgjast með og styðja við kirkjustarf,“ segir sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í Hruna og væntanlegur prófastur í Suðurprófastsdæmi. Hann tekur við því embætti á haustdögum en til þess er hann skipaður af biskup Íslands
Meira
Veturinn hefur verið sólríkur í Reykjavík. Þar mældust sólskinsstundirnar í vetrarmánuðunum fjórum 313,5 sem er 106,5 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Þetta er 4. sólríkasti veturinn í Reykjavík frá upphafi mælinga, en veturna 1947, 2023 og 1966 var sólríkara
Meira
„Í ljósi umræðu um inngrip í náttúru Eldfells með göngustígagerð viljum við fyrst og fremst vita almennilega hvernig listaverkið verði útfært í umhverfinu. Mörgum spurningum er ósvarað en svör ættu að vera sjálfsögð,“ segir Eyþór…
Meira
Baksvið Andrés Magnússon andres@mbl.is Stytting námstíma í framhaldsskólum úr fjórum árum í þrjú hefur verið nokkuð til umræðu upp á síðkastið. Styttingin átti sér stað skólaárið 2015-2016 og mæltist misjafnlega fyrir, í mörgum skólum lukkaðist hún vel, en í nokkrum skólum síður.
Meira
Fjöldi sjúkrabíla og slökkviliðsbíla var kallaður að byggingarsvæði við Áshamar á Völlunum í Hafnarfirði upp úr hádegi í gær, eða um hálftvöleytið. Þar varð starfsmaður verktaka undir þakplötu sem gaf sig er steypuvinna fór fram
Meira
Mikil verðmætasköpun hefur orðið í íslensku hagkerfi í tengslum við svokallaðan rafmyntagröft. Á þetta bendir Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku Digital Assets, sem heldur úti fjárfestingarsjóði sem sérhæfir sig í rafmyntum
Meira
Laxamýri | Víða er mjög mikið fannfergi uppi á heiðum og í fjallshlíðum á Norðausturlandi, en þar hefur snjó kyngt niður alveg síðan á páskum. Á Reykjaheiði hefur ekki verið svona mikill snjór í nokkur ár og hefur verið mikið verk að halda leiðinni að Þeistareykjavirkjun opinni
Meira
Ef marka má vitundarherferð Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, nýendurkjörins formanns Blaðamannafélagsins, má slá því föstu að „upplýst samfélag [þurfi] faglega blaðamennsku“ og þar er fullyrt að „blaðamennska [hafi] aldrei verið mikilvægari“.
Meira
Amy Jade Winehouse var ensk söngkona og lagahöfundur sem fæddist í London hinn 14. september 1983. Hún var einna þekktust fyrir djúpa og kraftmikla rödd sína og fjölbreyttan tónlistarstíl, þar á meðal blús, reggí og djass
Meira
„Ég hef lengi haft sjúklega mikinn áhuga á nöglum og gerði ekkert annað en að fræða mig á netinu. Síðan kom kórónuveirufaraldurinn og ég leit á það sem tækifæri og skellti mér á námskeið, en ég útskrifaðist sem naglafræðingur í maí 2021,“ útskýrir Bryndís
Meira
Rick nokkur Norsigian, sem býr í Kaliforníu, datt heldur betur í lukkupottinn fyrir um áratug en áttaði sig ekki á því fyrr en í þessari viku. Norsigian keypti tvo kassa með ýmsum varningi á bílskúrssölu og setti þá í geymslu þar sem þeir stóðu óhreyfðir árum saman
Meira
Steindir gluggar eftir Ólaf Elíasson voru vígðir um helgina í dómkirkju heilags Nikulásar í Greifswald í Mecklenburg-Vorpommern í Þýskalandi. Gluggarnir eru settir saman úr 3.383 handblásnum bláum, gulum og rauðum einingum
Meira
Það er æskilegt að vita nöfn þeirra sem maður vill hrósa. Maður er nefndur Pétur Grétarsson og er þulur hjá Ríkisútvarpinu, auk þess að vera tónlistarmaður. Hann kynnir tónlist milli dagskrárliða á RÚV og gerir það einstaklega fallega og laumar að manni fróðleiksmolum
Meira
Hróðmar Sigurðsson gítarleikari og Ingibjörg Turchi bassaleikari koma fram á tónleikum í Hljóðbergi í Hannesarholti í kvöld, fimmtudag, kl. 20, en gengið er inn frá Skálholtsstíg. „Ingibjörg og Hróðmar hafa verið í samstarfi um árabil í ýmsum hljómsveitum
Meira
Gyrðir Elíasson opnaði um síðustu helgi sýningu á myndverkum sínum í Garðinum, Suðurnesjabæ, þar sem hann sýndi afrakstur síðustu fimmtán ára, alls um tólf hundruð myndir. Sem er þó aðeins hluti af þeim myndum sem hann hefur gert eins og ég kemst að …
Meira
Evert Víglundsson, eigandi CrossFit Reykjavík, er mikill frumkvöðull þegar kemur að því að koma nýjum íþróttum til landsins. Hann var þátttakandi í því þegar Boot Camp byrjaði hér á landi og opnaði fyrstu CrossFit-stöðina árið 2008
Meira
„Við erum eldgamlir vinir. Við kynntumst á lítilli knæpu í New York árið 2007, þannig var mitt 2007. Við urðum góðir vinir og hann ýtti mér út í burlesque á þeim tíma. Hann reddaði mér áhorfendaprufum og stóð þétt við bakið á mér,“ segir …
Meira
Hámódernískar „hreingerningar“ í miðborginni Um miðjan 6. áratuginn fór skipulagsdeild bæjarins að leita nýrra leiða til að fjármagna og stuðla að endurskipulagningu í miðbænum. Tillögur um breytingar á skipulagslögum sem tryggðu…
Meira
Harpa La Stravaganza ★★★★★ Tónlist: Antonio Vivaldi, Carl Philipp Emanuel Bach, Johann Georg Pisendel og Georg Philipp Telemann. Leiðari og einleikari: Rachel Podger. Hljómsveit: Arte dei Suonatori. Konsertmeistari: Aureliusz Goliński. Tónleikar í Norðurljósum Hörpu þriðjudaginn 26. mars 2024.
Meira
Tilkynnt hefur verið hvaða sex bækur komast á stuttlista alþjóðlegu Booker-verðlaunanna í ár. Fyrst ber að nefna Smáatriðin eftir Iu Genberg sem út kom í íslenskri þýðingu Þórdísar Gísladóttur í fyrra
Meira
Naxos í Danmörku gefur út kvikmyndatónlist Jacobs Groth við íslenska sálfræðidramað Natatorium eftir Helenu Stefánsdóttur sem var nýverið sýnt í kvikmyndahúsum hér á landi. „Útgáfan er sú fyrsta í seríu sem er tileinkuð kvikmyndatónlist eftir…
Meira
Hugleiðingar Þögn á öld hávaðans ★★★★· Eftir Erling Kagge. Magnús Þór Hafsteinsson íslenskaði. Ugla, 2024. Mjúk kápa, 143 bls.
Meira
Guðmundur Benediktsson lauk sveinsprófi í húsgagnasmíði árið 1944 og nam síðan við Myndlistarskólann í Reykjavík á árunum 1950-1956 og naut þar tilsagnar Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara. Hann steig fram á sjónarsvið íslenskrar listasögu þegar hann …
Meira
Koma þarf í veg fyrir að fulltrúar meirihluta borgarstjórnar nýti sjóði Orkuveitunnar sem óþrjótandi sparigrís þegar illa árar í rekstri borgarinnar.
Meira
Er það furða þó manni misbjóði sú valdníðsla valdhafanna sem við höfum orðið vitni að í kjölfar þess að Katrín Jakobsdóttir ákvað að hella sér í baráttuna um Bessastaði. Virðingarleysið gagnvart ábyrgðinni sem felst í því að tróna á toppi píramída…
Meira
Mótlæti gæti verið dulbúin blessun ef það verður til þess að horfst verði í augu við fjárhagsvandann og tekist á við hann af fullri alvöru. Með víðtæku aðhaldi og sparnaði væri unnt að láta af hallarekstri Reykjavíkurborgar og hefja niðurgreiðslu skulda.
Meira
Árni Stefán Norðfjörð fæddist á Akureyri 15. febrúar 1936. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 3. apríl 2024. Foreldrar Árna voru Wilhelm Norðfjörð kaupmaður, f. í Reykjavík 19. ágúst 1916, d
MeiraKaupa minningabók
11. apríl 2024
| Minningargrein á mbl.is
| 1607 orð
| 1 mynd
| ókeypis
Baldur Rafnsson bóndi á Vattarnesi fæddist í Reykjavík 25. febrúar 1954. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 3. apríl síðastliðinn. Foreldrar Baldurs voru Helena Hálfdanardóttir sjúkraliði, f. 23.6. 1935, d. 22.4.
MeiraKaupa minningabók
Baldur Rafnsson bóndi á Vattarnesi fæddist í Reykjavík 25. febrúar 1954. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 3. apríl 2024. Foreldrar Baldurs voru Helena Hálfdanardóttir sjúkraliði, f. 23.6. 1935, d
MeiraKaupa minningabók
Baldvin Jóhann Erlingsson fæddist 9. september 1946 á Húsavík. Hann lést 6. apríl 2024 á hjartadeild Landspítalans. Foreldrar hans voru Sigrún Baldvinsdóttir húsfrú og Erlingur Jóhannsson, bóndi og skógarvörður í Ásbyrgi í Kelduhverfi
MeiraKaupa minningabók
Baldvin Jóhannsson fæddist í Sandvík á Hauganesi 24. mars 1938. Hann lést á Hrafnistu Hafnarfirði 1. apríl 2024. Foreldrar hans voru Jóhann Friðrik Jónsson, f. 10. maí 1899, d. 4. október 1974, og Málfríður Baldvinsdóttir, f
MeiraKaupa minningabók
Elín Ragnarsdóttir fæddist í Reykjavík 5. janúar 1948. Hún lést á Landspítalanum 2. apríl 2024. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 11. apríl 2024, klukkan 13.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Steina Gamalíelsdóttir fæddist 19. ágúst 1937 á Stað í Grindavík. Hún lést á HSS í Reykjanesbæ 22. mars 2024. Foreldrar hennar voru Gamalíel Guðmundur Jónsson, f. 28.11. 1908, d. 4.3. 1964 og Guðríður Bjarney Guðbrandsdóttir
MeiraKaupa minningabók
Jimmy Torben Henrikson Sjøland fæddist í Hvidovre í Danmörku 8. september 1945. Hann lést 1. apríl 2024 á Landspítalanum. Foreldrar hans voru Ingrid Ragna Schwerdtlegen og Henrik Oskar Henriksson Sjøland
MeiraKaupa minningabók
Jóhannes Jón Eyleifsson fæddist á Akranesi 19. janúar 1944. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi 1. apríl 2024. Foreldrar hans, bæði frá Akranesi, voru Sigríður Sigmundsdóttir húsmóðir frá Ívarshúsum, f
MeiraKaupa minningabók
Jónína Árnadóttir fæddist á Syðri-Másstöðum í Skíðadal 7. ágúst 1924. Hún lést á dvalarheimilinu Dalbæ á Dalvík 30. mars 2024. Foreldrar hennar voru hjónin Árni Valdimarsson, f. 20. október 1894 á Syðri-Másstöðum í Skíðadal, d
MeiraKaupa minningabók
Kjartan Egilsson fæddist 26. febrúar 1955. Hann lést á heimili sínu 26. mars 2024. Kjartan fæddist í Reykjavík. Faðir Kjartans var Egill Óskarsson, f. 19. 7. 1929, d. 6.6. 1988, rennismíðameistari frá Reykjavík
MeiraKaupa minningabók
Margrét Viðarsdóttir fæddist 30. júní 1946 í Reykjavík og var þar uppalin. Hún andaðist 25. mars 2024 á heimili sínu. Foreldrar Margrétar voru Runólfur Viðar Sigurðsson, f. 27. febrúar 1915, d. 20. september 1985, og Guðný Berndsen, f
MeiraKaupa minningabók
Nú stendur yfir hönnun tveggja nýrra fiskiskipa fyrir Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum en til stendur að nýsmíðin leysi af hólmi nóta- og netabátinn Kap VE og togbátinn Drangavík VE. Um er að ræða umfangsmikla fjárfestingu sem hleypur á milljörðum…
Meira
Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing er enn undir þrýstingi eftir að uppljóstrari tilkynnti bandarískum eftirlitsstofnunum að fyrirtækið færi flýtileiðir í framleiðslu á Boeing 787- og 777-breiðþotum
Meira
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 173 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í mars metárið 2018
Meira
Kælismiðjan Frost ehf. hagnaðist um 76 milljónir króna á síðasta ári sem er nokkuð minna en árið á undan þegar félagið hagnaðist um 133 milljónir. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi félagsins. Eignir fyrirtækisins nema nú rúmum 1,3 milljörðum króna og jukust þær lítillega milli ára
Meira
Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Samskip telja að Eimskip hafi, með sátt sinni við Samkeppniseftirlitið (SKE) sumarið 2021, valdið félaginu umtalsverðu og fjölþættu tjóni.
Meira
Ég hef lært í gegnum tíðina að treysta á innsæið, þegar maður gerir það þá tekst yfirleitt vel til,“ segir Sigrún Vala Valgeirsdóttir kvikmyndagerðarkona um það þegar hún, þrátt fyrir að hafa nánast ekkert þekkt hana, fékk Svanlaugu…
Meira
Brynjólfur Jón Baldursson fæddist 11. apríl 1974 í Reykjavík og fyrstu árin ólst hann upp á Sporðagrunni í Austurbænum. „Þegar ég var fjögurra ára flutti ég með foreldrum mínum í Vesturbæinn á Sólvallagötu og bjuggum við þá hjá afa mínum…
Meira
Gunnar J. Straumland hvetur til þess að fólk forðist rætni, níð og stóryrði í garð þess ágæta fólk sem býður sig fram í komandi forsetakosningum, sem og annarra: Tungukorða temja skal, taum og skorður finna
Meira
Það er margt í gangi hjá söngkonunni Diljá Pétursdóttur núna en hún er mest í að semja tónlist, er í námi og leikur í sjónvarpsseríunni Gestir. „Þetta eru svona rómantískir gamanþættir. Þetta er um stelpu og strák sem lenda í því að líkamar…
Meira
60 ára Eva er Reykvíkingur, ólst upp í Breiðholti og hefur búið þar nánast óslitið í 56 ár. „Ég hef nánast búið á sömu þúfunni mestallt mitt líf. Stekkirnir hafa verið mitt leiksvæði og Elliðaárdalurinn mitt útivistarsvæði alla tíð
Meira
Rafmyntagröftur var mikilvægur þáttur í því að hægt var að byggja hratt og vel upp öflugan gagnaversiðnað hér á landi. Þetta bendir Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Viska Digital Assets, á í viðtali í Dagmálum.
Meira
Sparsemi er okkur Íslendingum ekki beinlínis í blóð borin. Við erum vanari að eyða um efni fram. Um rausnarskap okkar eigum við orðasambandið það er ekkert til sparað: allt lagt fram sem til þarf og ríflega þaðMeira
Dómararnir voru talsvert í sviðsljósinu í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Athygli vakti að þeir notuðu spjöldin óspart og lyftu því gula samtals í 53 skipti í sex leikjum ásamt því að einn þjálfari og einn forráðamaður fengu rauða spjaldið
Meira
Elmar Erlingsson, handknattleiksmaðurinn efnilegi frá Vestmannaeyjum, hefur samið við þýska félagið Nordhorn um að ganga til liðs við það í sumar en hann var kynntur til leiks hjá félaginu í gær. Elmar er 19 ára leikstjórnandi og hefur þrátt fyrir…
Meira
Ísland náði sínum besta árangri á Norðurlandamóti í áhaldafimleikum í sögunni þegar íslensku keppendurnir sönkuðu að sér verðlaunum á NM 2024 sem fór fram í Ósló í Noregi um síðustu helgi. Á fyrri deginum á laugardag varð íslenska kvennalandsliðið…
Meira
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er óbrotin og fór ekki úr axlarlið í leiknum gegn Þýskalandi í Aachen í fyrradag. Morgunblaðið hefur fengið þetta staðfest en brotið var gróflega á Sveindísi eftir hálftíma leik þannig að hún þurfti að fara af velli
Meira
Ólafur Kristófer Helgason, markvörður Fylkis í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir til loka ársins 2027. Fyrri samningur Ólafs Kristófers átti að renna út í lok þessa árs en hann hefur verið aðalmarkvörður…
Meira
Ísland beið lægri hlut fyrir Kasakstan, 7:2, í 2. deild A á heimsmeistaramótinu í íshokkíi kvenna þegar liðin mættust í Andorra í gær. Laura-Ann Murphy og Katrín Björnsdóttir skoruðu mörk Íslands. Íslenska liðið er því með þrjú stig eftir einn sigur og tvö töp í fyrstu þremur leikjum sínum
Meira
Scottie Scheffler frá Bandaríkjunum, efsti maður heimslistans í golfi, er tilbúinn til að hætta keppni á Masters-mótinu í golfi sem hefst í Augusta í Bandaríkjunum í dag. Hann þykir sigurstranglegastur en á von á fyrsta barni sínu með Meredith eiginkonu sinni sem getur fæðst hvenær sem er
Meira
„Við spiluðum vel í deildarkeppninni í vetur og teljum okkur tilbúna í úrslitakeppnina,“ sagði reynsluboltinn Ásbjörn Friðriksson leikmaður FH í samtali við Morgunblaðið. FH hefur leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins í handbolta með heimaleik gegn KA í kvöld
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.