Greinar fimmtudaginn 25. júlí 2024

Fréttir

25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 260 orð | 1 mynd

Antoni Sveini gæti gengið vel

Ragna Ingólfsdóttir keppti á leikunum í badminton árin 2008 í Peking og 2012 í London. Hún segist alltaf fylgjast vel með Ólympíuleikunum þegar þeir fara fram, og segist hafa mikla trú á íslenska liðinu í ár Meira
25. júlí 2024 | Erlendar fréttir | 126 orð | 1 mynd

Auka samvinnu í varnarmálum

Varnarmálaráðherrar Bretlands og Þýskalands hafa skrifað undir sameiginlega yfirlýsingu um aukna samvinnu í öryggis- og varnarmálum. Er það í samræmi við stefnu nýrrar ríkisstjórnar Verkamannaflokksins í Bretlandi um að endurstilla samskiptin við… Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 311 orð | 1 mynd

Ákvæðið eigi að túlka þröngt

Sigríður Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra segir óljóst hvaða undanþága frá lögum um mannanöfn hafi gert afbrotamanninum Mohamad Th. Jóhannessyni, sem áður hét Mohamad Kourani, kleift að breyta kenninafni sínu Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 1235 orð | 3 myndir

„Það var aldrei tími til að æfa íþróttir“

„Ég ólst upp í Andakílnum, fyrst á Ytri-Skeljabrekku, en svo fluttumst við, foreldrar mínir og systkini, upp á Mið-Fossa upp úr 1980,“ segist Kristínu Gísladóttur frá, fyrrverandi aflraunakonu, ef svo mætti orða það, liðtækum kúluvarpara … Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 73 orð

Fengu heiðursorður

Í Morgunblaðinu í gær var sagt að Pétur Urbancic væri fyrstur Íslendinga til að fá orðu frá Vatíkaninu. Hið rétta er að hann er fyrstur Íslendinga til að fá þessa tilteknu heiðursviðurkenningu sem stofnuð var af Leó Xlll Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 236 orð | 1 mynd

Fer til Parísar að horfa á leikana

Þórey Edda Elísdóttir, sem keppti í stangarstökki á Ólympíuleikunum árin 2000, 2004 og 2008, stefnir á að fara út að fylgjast með leikunum í ár, en hún gegnir nú stöðu 1. varaforseta framkvæmdastjórnar ÍSÍ Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 64 orð | 1 mynd

Fjórir Evrópuleikir á Íslandi í kvöld

Íslensku liðin fjögur sem leika í Sambandsdeild karla í fótbolta spila öll heimaleiki sína í 2. umferð í kvöld. Valsmenn mæta St. Mirren frá Skotlandi, Víkingar mæta Egnatia frá Albaníu, Stjarnan mætir Paide frá Eistlandi og Breiðablik mætir Drita frá Kósovó Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 127 orð | 1 mynd

Fjöldi tungumála áskorun

Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að styðja megi betur við nemendur af erlendum uppruna í sveitarfélaginu. „Það er enda mikilvægt fyrir börn af erlendu bergi brotin að fá góða móðurmálskennslu af því að það er undirstaða … Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 91 orð | 1 mynd

Fjölmennt á sirkussýningu

Vel var mætt á sirkussýninguna Springum út, sem Sirkus Ananas stóð fyrir á túninu við Vesturbæjarlaug í gær. Springum út er barna- og fjölskyldusýning, en Sirkus Ananas samanstendur af þeim Urði Ýri, Daníel og Kristni Karlssyni Meira
25. júlí 2024 | Erlendar fréttir | 401 orð | 1 mynd

Framsalskrafa á hendur Watson hefur ekki borist

Japönsk stjórnvöld sögðust í gær lengi hafa þrýst á lönd að handtaka Paul Watson, sem nú situr í gæsluvarðhaldi í Nuuk á Grænlandi og verður hugsanlega framseldur til Japans. Watson, sem er 73 ára gamall og hefur lengi barist gegn hvalveiðum, þar á meðal hér á landi, var handtekinn í Nuuk sl Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 94 orð | 1 mynd

Frumraun Þorleifs á Bayreuth

Óperusöngvarinn Ólafur Kjartan Sigurðarson syngur hlutverk Kurwenals í óperunni Tristan og Ísold eftir Richard Wagner í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar sem frumsýnd verður á Bayreuth-hátíðinni í Þýskalandi í dag, fimmtudag, kl Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 246 orð | 1 mynd

Fylgist mest með sundinu

Lára Hrund Bjargardóttir, sem keppti á Ólympíuleikunum í skriðsundi árin 2000 og 2004, segist helst ætla að fylgjast með sundinu í ár. Þá segir hún íslensku keppendurna, þau Anton Svein McKee og Snæfríði Sól Jórunnardóttur, hafa alla burði til að standa sig vel á mótinu Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 605 orð | 1 mynd

Gagnrýnir stefnuleysi

Óskar Arason, eigandi ferðafyrirtækisins Iceguide, segir uppbyggingu ferðaþjónustunnar í Hornafirði og við Jökulsárlón ábótavant. Fyrirtæki Óskars býður upp á kajakferðir í Jökulsárlóni og Heinabergslóni ásamt leiðsögn en Óskar kveðst hafa verið sá… Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 1363 orð | 2 myndir

Gatnakerfið komið að þolmörkum

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir aukna bílaumferð í sveitarfélaginu munu kalla á uppbyggingu umferðarmannvirkja á næstu árum. Gert sé ráð fyrir áframhaldandi íbúafjölgun á næstu árum. Íbúar Reykjanesbæjar voru alls 23.759 um síðustu mánaðamót og hafa aldrei verið fleiri. Hefur þeim fjölgað um 3,2% milli ára eða um tæplega 800 manns. Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 801 orð | 2 myndir

Heitasta óskin að eldgosum linni

Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir nýtt hættumat og það að hættustigi hafi verið lýst yfir í bænum lýsa mjög alvarlegri stöðu. „Við höfum áður horft fram á þann möguleika að það geti gosið innan varnargarðanna umhverfis Grindavík og … Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Icelandair flýgur í sumar á Bíldudal

Í sumar sinnir Icelandair verkefnum í innanlandsflugi fyrir Norlandair og athygli vakti að sjá Dash 8 Q200 frá félaginu á Bíldudal nú í vikunni. Vaxandi umsvif eru hjá Norlandair og því var leitað, svo svigrúm myndaðist, til Icelandair um að sinna nú í júlí og ágúst Bíldudalsflugi fjóra daga í viku Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 250 orð

Ísland orðið of dýrt

„Við getum ekki selt landið á þessum verðum sem nú er verið að bjóða. Tölum bara mannamál, þetta snýst um að vinda þarf ofan af dýrtíðinni,“ segir Guðmundur Kjartansson, forstjóri og aðaleigandi Iceland ProTravel Group samstæðunnar Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 186 orð

Kerfið féll á prófinu

Menntamálastofnun réð ekki við að leggja fyrir samræmd könnunarpróf með stafrænum hætti og því sá menntamálaráðherra sér ekki annan kost í stöðunni en að leggja þau niður árið 2021, þrátt fyrir að ekkert samræmt mat á námsárangri íslenskra grunnskólabarna tæki við Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 660 orð | 2 myndir

Milljarðasala á íbúðum í forsölu

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Seldar hafa verið 25 íbúðir af 82 í fyrsta áfanga á Heklureitnum í Reykjavík. Sætir það nokkrum tíðindum enda verða íbúðirnar ekki afhentar fyrr en haustið 2025. Þær eru hluti af fyrsta áfanga Heklureitsins á Laugavegi 168. Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 612 orð | 2 myndir

Naut lífsins nyrst í Noregi í 33 ár

Árni Björn Haraldsson landbúnaðarverkfræðingur fór ópólitískur til starfa í Tansaníu 1976 og gekk í hóp sósíalista, en flutti þaðan norður í Finnmörk í Noregi tveimur árum síðar og bjó í Pasvíkurdalnum á landamærum Noregs og Sovétríkjanna, síðar Rússlands, í 33 ár Meira
25. júlí 2024 | Fréttaskýringar | 1044 orð | 3 myndir

Ráðherrar íhuguðu að segja af sér

Baksvið Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Meira
25. júlí 2024 | Erlendar fréttir | 374 orð | 1 mynd

Ruslastríð Kóreuríkjanna harðnar

Loftbelgir fullir af rusli, sem sendir voru frá Norður-Kóreu yfir landamærin til Suður-Kóreu, lentu í gærmorgun við forsetahöllina í höfuðborginni Seúl og sprungu. Sérstök efnavonasveit var send á vettvang til að hreinsa svæðið Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 168 orð | 1 mynd

Sigurður Kristinsson

Sigurður Kristinsson, gítarleikari og akstursíþróttamaður, lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. júlí, 59 ára að aldri. Hann var fæddur 7. desember 1964 og ólst upp í Vestmannaeyjum fram að gosi en fluttist þá með fjölskyldu sinni til Eyrarbakka og seinna í Mosfellsbæ Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 208 orð | 1 mynd

Skemmtilegast að fylgjast með frjálsum

Hafsteinn Ægir Geirsson, sem keppti á Ólympíuleikunum í siglingum árin 2000 og 2004, segist alltaf fylgjast vel með leikunum og undirbúningi þeirra. „Ég fylgist náttúrulega aðallega með þeim greinum sem ég hef keppt í, siglingum Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 249 orð | 1 mynd

Spenntastur fyrir Duplantis

Jón Arnar Magnússon, sem keppti í tugþraut í Ólympíuleikunum árin 1996, 2000 og 2004, segist í samtali við Morgunblaðið ætla að fylgjast vel með leikunum í ár enda frambærilegir íþróttamenn í íslenska liðinu Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 547 orð | 1 mynd

Stafræna byltingin étur börnin sín

Elínborg Una Einarsdottir elinborg@mbl.is Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 188 orð | 1 mynd

Steinunn talar á Kvoslæk

Myndlistarkonan Steinunn Þórarinsdóttir flytur fyrirlestur um verk sín í Hlöðunni á Kvoslæk í Fljótshlíð næstkomandi laugardag, 27. júlí, klukkan 15. Að baki á Steinunn 45 ára feril í listinni. Hún hefur unnið að fígúratífum skúlptúr frá byrjun ferils sins, sem strax skapaði henni sérstöðu Meira
25. júlí 2024 | Fréttaskýringar | 845 orð | 2 myndir

Stofnunin réð ekki við verkefnið

Í brennidepli Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 829 orð | 3 myndir

Telja Ísland orðið allt of dýrt

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 66 orð | 1 mynd

Umfangsmesta mótið til þessa sett í Laugardalnum

146 lið keppa á fótboltamótinu Rey Cup sem fer fram í Laugardalnum næstu daga en um er að ræða metfjölda. Mótið var sett í 24. sinn með opnunarathöfn í gærkvöldi en að sögn framkvæmdastjóra keppninnar, Gunnhildar Ásmundsdóttur, er von á um 2.300 keppendum frá 13 löndum Meira
25. júlí 2024 | Innlendar fréttir | 226 orð

Þrettán sóttu um innviðaráðuneytið

Alls sóttu þrettán einstaklingar um stöðu ráðuneytisstjóra í innviðaráðuneytinu. Umsóknarfrestur var framlengdur um viku frá 12. júlí til 19. júlí. Þau sem sóttu um embættið eru: Anna Eivör Shvarova, skrifstofustjóri Björg Erlingsdóttir, fyrrverandi … Meira

Ritstjórnargreinar

25. júlí 2024 | Leiðarar | 705 orð

Gagnsæi þarf í grunnskólana

Eftir því sem biðin lengist fjölgar þeim árgöngum sem skólakerfið hefur brugðist Meira
25. júlí 2024 | Staksteinar | 195 orð | 2 myndir

Meiri ríkisútgjöld allra meina bót

Týr í Viðskiptablaðinu hefur áhyggjur af stjórnmálamönnum sem hafi ekki undan að finna ný vandamál til að „leysa“ með auknum ríkisútgjöldum. Ekkert sé þeim óviðkomandi og nefnir Týr viðbrögðin við því „að fæðingartíðni íslenskra kvenna sé nú sambærileg við það sem þekkist í öðrum þróuðum hagkerfum. […] Jú, auka ríkisútgjöld.“ Meira

Menning

25. júlí 2024 | Menningarlíf | 1714 orð | 4 myndir

„Samband okkar er tilfinningaríkt“

Ég held að tilfinningarnar í kvikmyndinni séu kannski það róttækasta við hana,“ segir Levy. Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 92 orð | 1 mynd

Draumar og óskir í Sigurjónssafni í kvöld

„Draumar, langanir, óskir og þrá – allt það sem fær hjartað til að slá“ er yfirskrift tónleika sem haldnir verða í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld, fimmtudag, kl. 20.30. Þar munu „Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og… Meira
25. júlí 2024 | Fólk í fréttum | 619 orð | 4 myndir

Einstök hátíð á Siglufirði

Á Trilludögum fær fólk einstakt tækifæri til að njóta Siglufjarðar og prófa að sigla og veiða við fjörðinn. Hátíðin fer fram nú á laugardaginn en hún hefst klukkan tíu að morgni og verður mikið um að vera í bænum í það minnsta til klukkan fjögur Meira
25. júlí 2024 | Bókmenntir | 907 orð | 4 myndir

Enn eitt stríðið hræðilegt stórslys

Minningar Lofgjörð til Katalóníu ★★★½· Eftir George Orwell. Guðmundur J. Guðmundsson íslenskaði og ritar eftirmála. Ugla, 2024. Kilja, 279 bls. Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 142 orð | 1 mynd

Fíbút leitar að dómnefndarfólki ársins

Skráning umsækjenda til setu í dómnefndum Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans er hafin. „Leitað er eftir fullorðnu fólki á öllum aldri með þekkingu og brennandi áhuga á bókmenntum, fjölbreyttan bakgrunn og… Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 163 orð | 1 mynd

Mannfólkið breytist í slím í 7. sinn

Tónlistarhátíðin Mannfólkið breytist í slím verður haldin í 7. sinn dagana 25.-27. júlí. „Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika norðlensks tónlistarfólks og að skapa sterka hefð fyrir öflugri menningarhátíð utan meginstrauma á Akureyri Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 70 orð | 1 mynd

Nýr skólastjóri Söngskólans

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona, stofnandi og stjórnandi Sönghátíðarinnar í Hafnarborg, hefur verið ráðin nýr skólastjóri Söngskólans í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Hún tekur við starfinu af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 791 orð | 5 myndir

Óræð fortíð í bæjarmyndum Þrándar

Andi liðinna tíma ræður ríkjum í verkum Þrándar Þórarinssonar listamanns eins og glöggt má sjá þegar komið er inn á vínstofuna Gilligogg í Austurstræti. Þar prýða veggina fjögur stór olíumálverk eftir Þránd sem sýna Reykjavík eins og hún var snemma… Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 286 orð | 1 mynd

Rómantískt landslag

Litirnir í þessu þekkta málverki eru nokkuð daufir eða dimmir, þar sem bláir og dimmgrænir litir eru einkar áberandi. Þetta er klassískt olíumálverk og myndefnið er grípandi, þar sem hesturinn, sem stendur í forgrunni fyrir miðju, fangar augað, líkt … Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 70 orð | 1 mynd

Skoffín kemur fram á Nasa annað kvöld

Hljómsveitin Skoffín heldur tónleika á Nasa annað kvöld kl. 20. „Á tónleikunum verður platan Skoffín hentar íslenskum aðstæðum leikin í heild sinni, ásamt glænýju og eldgömlu efni Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 85 orð | 1 mynd

Teiknimynda­persónur úr sandi

Alþjóðleg listahátíð tileinkuð skúlptúrum úr sandi var opnuð á Fulong-ströndinni í Taípei í Taívan fyrr í sumar og stendur fram í október. Á hverju ári laðar hátíðin þúsundir gesta á staðinn. Í ár gefst gestum og gangandi tækifæri til að sjá alls… Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 164 orð | 1 mynd

Torfi með útgáfutónleika í Iðnó í kvöld

Tónlistarmaðurinn og dansarinn Torfi heldur tónleika í Sunnusal Iðnó í kvöld kl. 21 til að fagna útgáfu plötunnar EITT sem kom út í apríl. Ásamt Torfa kemur tónlistarkonan Katla Yamagata fram en hún gaf nýverið út sitt fyrsta lag,… Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 81 orð | 1 mynd

Tónlist á þrettán tungumálum

Franski tónlistarhópurinn Les Itinérantes (Ferðalangarnir) kemur fram í Vallanesi í kvöld kl. 20 og Strandarkirkju á sunnudag kl. 14. Í viðburðarkynningu kemur fram að hópurinn sé „a capella tríó skipað þremur söngkonum“, það er þeim… Meira
25. júlí 2024 | Fjölmiðlar | 205 orð | 1 mynd

Veröld sem var, vesöld sem er

Yðar einlægur fór í listflug yfir Reykjavík um daginn. Það var gaman, en hitt leiðinlegra hvað borgin er skelfilega ljót ásýndar; bæði skipulag og hús. Litla Múrmansk. Það á auðvitað ekki við um borgina alla, því gömlu hverfin eru mun fallegri Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 227 orð | 1 mynd

Víkingur með fjórar plötur á topp 100-lista

Streymisveitan Apple Music Classical hefur birt lista yfir 100 vinsælustu klassísku plötur heims. Um er að ræða þær hundrað klassísku plötur sem mest er hlustað á samkvæmt þeim tónlistarþjónustum sem Apple fyrirtækið heldur úti í 165 ríkjum heims, þ.e Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 215 orð | 1 mynd

Víkingur með fjórar plötur á topp 100-lista

Streymisveitan Apple Music Classical hefur birt lista yfir þær 100 klassískar plötur sem mest er hlustað á samkvæmt þeim tónlistarþjónustum sem Apple-fyrirtækið heldur úti í 165 ríkjum heims, þ.e. streymisveitunum Apple Music‌ Classical og… Meira
25. júlí 2024 | Menningarlíf | 84 orð | 1 mynd

Ævar Þór heiðraður

Ævar Þór Benediktsson tók í vikunni við heiðursviðurkenningu Margaret Wise Brown-verðlaunanna fyrir bók sína Stranded! eða Strandaglópar!, en tilkynnt var um viðurkenninguna fyrr á árinu Meira

Umræðan

25. júlí 2024 | Aðsent efni | 491 orð | 1 mynd

Hærra stig opnunar í Kína

Þriðji allsherjarfundur 20. miðstjórnar Kommúnistaflokks Kína leggur áherslu á nútímavæðingu með kínverskum einkennum og friðsælli þróun. Meira
25. júlí 2024 | Aðsent efni | 169 orð | 4 myndir

Í bakkafullan lækinn

Það má vera líkt og að flytja uglur til Aþenu að bæta í umræðuna um nýlenskuna. Samt situr í mér grein þar sem talað var um turnana fjóra í íslenskri menningu og þeir taldir málfarslegir byltingarmenn, og því líkir nýlenskumönnum Það voru Snorri, Hallgrímur, Jónas og Halldór Meira
25. júlí 2024 | Pistlar | 425 orð | 1 mynd

Íslenskasta fyrirsögn gærdagsins

Krónuhelsið er ákvörðun um að Íslendingar búi við verri lífskjör en þeir annars þyrftu. Meira
25. júlí 2024 | Aðsent efni | 599 orð | 1 mynd

Skattastöðvun er skynsamleg

Æskilegast væri að lækka skatta. Að lágmarki þarf að gefa skýrt loforð um að opinberar álögur aukist ekki frekar. Meira
25. júlí 2024 | Aðsent efni | 656 orð | 2 myndir

Sýnum Laugarnesi virðingu

Fyrir 1150 árum byggði Ingólfur höfuðból sitt í Laugarnesi. Á þessum tímamótum eru skipulagsyfirvöld að stefna að umhverfisslysi austan Laugarness. Meira
25. júlí 2024 | Aðsent efni | 357 orð | 1 mynd

Verður Ísland stærsti ruslahaugur í Evrópu?

Hver verður næsta krafa um að taka við úrgangi í okkar hreina land? Er allt falt fyrir peninga? Meira

Minningargreinar

25. júlí 2024 | Minningargreinar | 1523 orð | 1 mynd

Anna Þuríður Ingólfsdóttir

Anna Þuríður Ingólfsdóttir fæddist í Reykjavík 25. júlí 1946. Hún lést á Hrafnistu við Hraunvang 12. júlí 2024. Foreldrar hennar voru Þuríður Hilda Hinriks, f. 23. nóvember 1921, d. 23. júní 2013, og Ingólfur Kristjánsson, rithöfundur og blaðamaður, f Meira  Kaupa minningabók
25. júlí 2024 | Minningargreinar | 1852 orð | 1 mynd

Halldór Ben Jónsson

Halldór Ben Jónsson fæddist í Skaftholti í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu 6. desember 1948. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 9. júlí 2024. Foreldrar hans voru Ingunn Halldórsdóttir, f. 16. september 1925, d Meira  Kaupa minningabók
25. júlí 2024 | Minningargreinar | 2099 orð | 1 mynd

Hanna Brynja Axelsdóttir

Hanna Brynja Axelsdóttir fæddist á Ólafsfirði 11. júlí 1949. Hún lést á Spáni 11. júlí 2024 í faðmi fjölskyldunnar. Foreldrar hennar voru Pétur Axel Pétursson sjómaður, f. 4.1. 1912 í Haganeshreppi Skagafirði, d Meira  Kaupa minningabók
25. júlí 2024 | Minningargreinar | 930 orð | 1 mynd

Jón Ellert Guðjónsson

Jón Ellert Guðjónsson fæddist í Reykjavík 23. mars 1936. Hann lést á Akureyri í faðmi barna sinna 11. júlí 2024. Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson, járnsmiður frá Þorpum í Strandabyggð, f. 1. maí 1902, d Meira  Kaupa minningabók
25. júlí 2024 | Minningargreinar | 1523 orð | 1 mynd

Nanna Jónasdóttir

Nanna Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur og fv. hjúkrunarframkvæmdastjóri, fæddist á Dalvík 16. júní 1939. Hún lést 15. júlí 2024. Foreldrar hennar voru hjónin Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri á Dalvík, f Meira  Kaupa minningabók
25. júlí 2024 | Minningargreinar | 1439 orð | 1 mynd

Steinunn Halldórsdóttir

Steinunn Halldórsdóttir fæddist 27. september 1930 á Akureyri. Hún lést í Sunnuhlíð 4. júlí 2024. Faðir hennar var Halldór Friðriksson, f. 16.1. 1895, d. 3.12 1967, og kona hans var Þorgerður Sigtryggsdóttir, f Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

25. júlí 2024 | Sjávarútvegur | 109 orð | 1 mynd

Nýtt uppsjávarskip væntanlegt árið 2025

Útgerðarfélagið Skinney-Þinganes býst við að fá nýtt uppsjávarskip afhent í október eða nóvember á næsta ári. Þetta segir Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess, í samtali við Morgunblaðið Meira
25. júlí 2024 | Sjávarútvegur | 477 orð | 1 mynd

Strandveiðar skiluðu 5 milljörðum

Nýafstaðnar strandveiðar einkenndust meðal annars af góðum fiski og afurðaverði, en 756 strandveiðibátar lönduðu tæplega 12 þúsund tonnum af þorski á strandveiðitímabilinu sem er frá 1. maí til 17. júlí Meira

Viðskipti

25. júlí 2024 | Viðskiptafréttir | 68 orð

Færri pantanir á öðrum fjórðungi hjá Marel

EBIT-framlegð Marels var 9,1% á öðrum ársfjórðungi sem er hækkun á milli ára. Hlutfall pantana var lágt, hlutfall þeirra á móti tekjum var 0,95 og samsvarar pantanabók 32% af tekjum síðustu 12 mánaða Meira
25. júlí 2024 | Viðskiptafréttir | 475 orð | 1 mynd

Nýtt hjúkrunarheimili rís

Undirbúningur er hafinn að stækkun og fjölgun íbúða á lóð Hrafnistu í Hafnarfirði, en tillagan gerir ráð fyrir byggingu nýs hjúkrunarheimilis fyrir um 125 íbúa. Auk þess er áformað að reisa 100 nýjar leiguíbúðir á vegum leigufélagsins Naustavarar á sama stað Meira
25. júlí 2024 | Viðskiptafréttir | 102 orð | 1 mynd

Rauðglóandi Kauphöll eftir verðbólgutölur

Gengi allra félaga, að þremur undanskildum, lækkaði í Kauphöllinni í gær. Ekkert félag hækkaði í viðskiptum dagsins. Gengi bréfa í Skel lækkaði mest í gær, um 5,7%, en þó aðeins í um 30 milljóna króna viðskiptum Meira
25. júlí 2024 | Viðskiptafréttir | 228 orð | 1 mynd

Spá nú 6,2% verðbólgu í ágúst

Hagfræðideildir Landsbankans og Íslandsbanka spá 6,2% ársverðbólgu í ágúst. Verðbólga tók óvæntan kipp í júlí og mælist ársverðbólga 6,3% sem er hærra en báðar deildirnar gerðu ráð fyrir. Ársverðbólga mældist 5,8% í síðasta mánuði Meira

Daglegt líf

25. júlí 2024 | Daglegt líf | 700 orð | 2 myndir

Brautryðjandi í heimilisfræðum

Það var fyrir rúmum áttatíu árum á Þingvöllum, er Íslendingar komu saman til að fagna stofnun lýðveldisins, 17. júní. Örtröð bíla myndaðist á leiðinni enda vildi enginn missa af góðri skemmtun. Sama dag hjá 67 krökkum hófust hátíðarhöldin í miðborg… Meira

Fastir þættir

25. júlí 2024 | Í dag | 165 orð | 1 mynd

A250724

1. Rf3 g6 2. e4 c5 3. c4 Bg7 4. d4 cxd4 5. Rxd4 Rc6 6. Be3 Db6 7. Rb5 Da5+ 8. R5c3 d6 9. Be2 Db4 10. Dc1 Bd4 11. Bd2 Rf6 12. 0-0 Bg4 13. Bxg4 Rxg4 14. Ra3 Dc5 15. Rd1 De5 16. Bf4 Dxe4 17. Rb5 0-0 18 Meira
25. júlí 2024 | Í dag | 58 orð

Að höggva eftir e-u þýðir hvorki „að leita eftir e-u“ né…

Að höggva eftir e-u þýðir hvorki „að leita eftir e-u“ né „að leggja áherslu á e-ð“ heldur að veita e-u sérstaka eftirtekt. „Ég hjó eftir því að fjármálaráðherra minntist á skattsvik í ræðunni og hugsaði þá hvort ég ætti … Meira
25. júlí 2024 | Í dag | 798 orð | 4 myndir

Alltaf viljað hafa áhrif á samfélagið

Halldór Halldórsson fæddist 25. júlí 1964 í Kálfavík í Skötufirði. „Mamma bjó þar hjá foreldrum sínum og þar var ég fyrsta árið. Síðan fórum við til Reykjavíkur en foreldrar mínir fluttu í Ögur þegar ég var þriggja ára, en faðir minn var frá… Meira
25. júlí 2024 | Í dag | 282 orð

Á ferð um landið

Á sumrin leggja margir leið sína í eyðibyggðina á Hornströndum. Þorgeir Magnússon nefnir þessa náttúrustemmningu „Hesteyri“: Liggur hún út við lygnan mar ljómandi vafin þokka, litadýrðin er líkt og var á listsýningu á Mokka, klæðast í… Meira
25. júlí 2024 | Dagbók | 95 orð | 1 mynd

Bjó til „eldvörpu“ til að drepa geitung

Kristín Sif, þáttastjórnandi hjá K100, segist ekki beinlínis vera hrædd við geitunga en lýsir að skordýrin kveiki í einhvers konar brjálæði innra með henni. Kveðst hún meðvituð um vandamál sitt. „Mér finnst leiðinlegt að mér líður svona í garð … Meira
25. júlí 2024 | Í dag | 170 orð

Dularfullar sagnir. S-Allir

Norður ♠ ÁKD64 ♥ KG3 ♦ Á942 ♣ 10 Vestur ♠ G1032 ♥ 87 ♦ D63 ♣ D532 Austur ♠ 975 ♥ 64 ♦ KG85 ♣ ÁK87 Suður ♠ 8 ♥ ÁD10952 ♦ 107 ♣ G964 Suður spilar 7♥ Meira
25. júlí 2024 | Dagbók | 31 orð | 1 mynd

Kamölu Harris skipt inn á völlinn

Fjör hefur færst í forsetakosningar í Bandaríkjunum eftir banatilræði við Trump. Biden hætti við framboð en Kamala Harris varaforseti steig fram. Friðjón Friðjónsson og Hermann Nökkvi Gunnarsson ræða stöðu og horfur. Meira
25. júlí 2024 | Í dag | 204 orð | 1 mynd

Lena Hallgrímsdóttir

60 ára Lena Hallgrímsdóttir ólst upp á Akureyri, nánar tiltekið á Bautanum, en foreldrar hennar eru Hallgrímur Arason á Bautanum og Guðrún Ófeigsdóttir. Lena vann á veitingastað föður síns frá barnsaldri Meira

Íþróttir

25. júlí 2024 | Íþróttir | 431 orð | 2 myndir

Enski knattspyrnumaðurinn Jadon Sancho er í leikmannahópi Manchester…

Enski knattspyrnumaðurinn Jadon Sancho er í leikmannahópi Manchester United sem er á leið í æfingaferð til Bandaríkjanna en reiknað var með því að hann yrði seldur frá félaginu í sumar Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 744 orð | 3 myndir

Geta allir barist um verðlaun

Þótt Ólympíuleikarnir í París verði ekki formlega settir fyrr en á morgun fóru fyrstu viðburðir leikanna fram í gær er keppni í fótbolta og rúgbí í karlaflokki hófst. Í dag verður síðan rúgbíkeppninni haldið áfram og handbolti og fótbolti í… Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 70 orð | 1 mynd

Ítalinn á leiðinni til Arsenal

Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur samið við Bologna á Ítalíu um kaup á ítalska varnarmanninum Riccardo Calafiori. Hann er 22 ára miðvörður sem var í liði Ítalíu á EM í Þýskalandi í sumar og spilaði alla fjóra leikina eftir að hafa leikið sinn fyrsta A-landsleik í byrjun júní Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 93 orð | 1 mynd

Íþróttin aldrei fengið aðra eins athygli

Sjö manna rúgbí er ekki mjög þekkt íþrótt en fær talsverða athygli í upphafi Ólympíuleika. Fyrstu leikirnir fóru fram í Frakklandi í gær en þetta er í þriðja sinn sem íþróttin er á leikunum og lið Fidji-eyja vann gullið í tvö fyrstu skiptin, 2016 og 2021 Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 442 orð

Líkurnar íslensku liðunum í hag

Geta íslensku liðin fjögur öll slegið út mótherja sína í 2. umferð Sambandsdeildar karla í fótbolta? Möguleikarnir á því liggja betur fyrir eftir fyrri leikina sem allir fara fram hér á landi í kvöld en þegar viðureignir gegn þessum fjórum þjóðum,… Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 965 orð | 2 myndir

Meiri kröfur og væntingar á síðustu Ólympíuleikunum

„Þetta er orðið spennandi, kominn skemmtilegur fiðringur og pressa. Þetta er að fara að skella á,“ sagði sundmaðurinn Anton Sveinn McKee í samtali við Morgunblaðið. Anton keppir í 100 og 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í París og … Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 235 orð | 1 mynd

Ólympíuleikarnir, sú mikla íþróttahátíð, hefjast formlega í París annað…

Ólympíuleikarnir, sú mikla íþróttahátíð, hefjast formlega í París annað kvöld, enda þótt keppni sé þegar hafin í nokkrum greinum. Sveit okkar Íslendinga er ansi fámenn, enda strangar fjöldatakmarkanir í öllum greinum, en þau fimm sem keppa fyrir… Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 75 orð | 1 mynd

Salt Lake City fékk ÓL 2034

Bandaríska borgin Salt Lake City heldur vetrarólympíuleikana árið 2034 en það var frágengið með kosningu á fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar í París í gær. Þar fékk hún 83 atkvæði af 89 og var ein um hituna í lokin Meira
25. júlí 2024 | Íþróttir | 96 orð | 1 mynd

Tók fjóra tíma að ljúka fyrsta leik

Það tók rúmlega fjóra tíma að ljúka fyrsta leik knattspyrnukeppni karla á Ólympíuleikunum í gær þar sem Marokkó vann Argentínu, 2:1. Eftir 16 mínútna uppbótartíma virtist Argentína hafa jafnað og í kjölfarið þurfti að rýma völlinn vegna óláta… Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.