Greinar föstudaginn 9. ágúst 2024

Fréttir

9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 241 orð | 2 myndir

470 milljóna aðgerðaáætlun

Á sama tíma og búist er við eldgosi í nágrenni við Grindavík á hverri stundu hefur Grindavíkurnefnd lagt fram aðgerðaáætlun um framkvæmdir upp á 470 milljónir króna. Þar af mun Grindavíkurbær greiða 30 milljónir en ríkið 440 milljónir Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 186 orð | 1 mynd

Borgin í sitt fínasta púss

„Að sjálfsögðu er Reykjavíkurborg sett í sitt fínasta púss þegar það er hátíð. Maður tekur til áður en maður býður gestum heim,“ segir Aðalheiður Sveinsdóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 135 orð | 1 mynd

Gagnrýnir stefnu Seðlabankans

Það má velta því fyrir sér hvort Seðlabankinn sé með óbreyttri vaxtastefnu að endurtaka fyrri nálgun þegar hátt vaxtastig var notað til að viðhalda óraunhæfu gengi krónunnar á sama tíma og almenningur og fyrirtæki voru hrakin í lántökur í verðtryggðum krónum og erlendum myntum Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 176 orð | 1 mynd

Gamla brúin verður að reiðbrú

Gömlu vegbrúnni yfir Stóru-Laxá verður breytt í reiðbrú. Brúin stendur við hlið nýju brúarinnar yfir ána sem formlega var tekin í notkun á síðasta ári. Vegagerðin og sveitarfélögin Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur gerðu í júní… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 316 orð | 3 myndir

Guðrún klökk eftir Íslendingadaginn

Tugir þúsunda komu saman um síðustu helgi í Gimli í Kanada til að fagna árlegum Íslendingadegi en hátíðin hefur lengi verið mikilvægur viðburður fyrir Íslendinga í Vesturheimi. Um fimmtán þúsund Íslendingar flúðu land á ofanverðri 19 Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 129 orð

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgar

Íbúum Reykjavíkurborgar fjölgaði um 2.149 á tímabilinu frá 1. desember 2023 til 1. ágúst sl. að því er fram kemur á vef Þjóðskrár. Íbúum Kópavogsbæjar fjölgaði á sama tímabili um 715 íbúa. Íbúum Akureyrarbæjar fjölgaði á tímabilinu um 184 íbúa, í… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Jafntefli gegn Flora en Víkingar sigurvissir fyrir síðari leikinn

Íslands- og bikarmeistarar Víkings úr Reykjavík máttu láta sér jafntefli, 1:1, gegn Eistlandsmeisturum Flora Tallinn að góðu verða í fyrri leik liðanna í 3. umferð Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu karla á Víkingsvelli í gærkvöldi Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 95 orð | 1 mynd

Kunna ekki að meta námsgögnin

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur áhyggjur af gjaldfrjálsum námsgögnum í grunnskólum á landinu. Í pistli í Morgunblaðinu í dag segir Áslaug frá samtölum sem hún hefur átt við kennara undanfarin misseri… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 487 orð | 2 myndir

Langaði í ævintýri og að skoða heiminn

„Það væri gaman að geta hvatt aðrar stelpur,“ segir Rúna Birna Finnsdóttir, 45 ára Sauðkrækingur, flugmaður, rafvirki og nýútskrifaður rafiðnfræðingur, sem kennir rafvirkjun við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 271 orð | 1 mynd

Launþegum í Grindavík hefur fækkað um 17,8%

Af þeim 2.600 manns sem störfuðu hjá vinnuveitendum með aðsetur í Grindavík í október fengu rúmlega 2.200 manns enn laun frá þeim í lok maí. Því eru um 17,8% færri launþegar í Grindavík nú en í október Meira
9. ágúst 2024 | Erlendar fréttir | 224 orð | 1 mynd

Leituðu ákaft að Puigdemont

Spænska lögreglan leitaði í gær ákaft að Carles Puigdemont, leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna, eftir að hann birtist óvænt aftur á Spáni, þrátt fyrir að vera enn eftirlýstur þar. Puigdemont var forseti Katalóníuhéraðs árið 2017 þegar… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Lögregla með viðbúnað í Hornafirði

Lögregluaðgerð stóð yfir á hafnarsvæðinu á Höfn í Hornafirði í gærkvöldi vegna vegna lítils báts sem kom þangað til hafnar fyrr um daginn. Þetta staðfesti Garðar Már Garðarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 72 orð | 1 mynd

Margrét Eir á Jómfrúnni á morgun

Elleftu tónleikar sumardjasstónleikaraðar veitingastaðarins Jómfrúarinnar við Lækjargötu verða haldnir á morgun, laugardag. Þar kemur fram söngkonan Margrét Eir. Með henni leika Börkur Hrafn Birgisson á gítar, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Óskar Þormarsson á trommur Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 106 orð

Markaður með greiðslumark í mjólk

Markaður fyrir greiðslumark mjólkur verður haldinn 2. september. Að hámarki er hægt að óska eftir 50.000 lítrum til kaups á hverjum markaði, eða alls 150.000 lítrum árlega. Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurð.is Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 332 orð | 1 mynd

Nafnbreytingar útlendinga 1.803

Útlendingur sem er með lögheimili á Íslandi getur fengið nafni sínu breytt, enda þótt hann sé ekki íslenskur ríkisborgari. Þegar útlendingur sest að hér á landi fær hann „kerfiskennitölu“, þ.e Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 469 orð | 1 mynd

Ráðist í kostnaðarsamar viðgerðir

Áætlaður kostnaður við nýja aðgerðaáætlun Grindavíkurnefndar er metinn 470 milljónir króna en þar af greiðir Grindavíkurbær 30 milljónir og ríkið 440. Áætlunin felur meðal annars í sér viðgerðir á innviðum í bænum, jarðkönnun á svæðinu og gerð mannheldra girðinga Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 456 orð | 1 mynd

Rækti upp skóg fyrir þann sem verður felldur

Land og skógur fer fram á að landeigendur á Eiðum rækti aftur upp þann skóg sem til stendur að fella vegna byggingar sumarhúsabyggðar á jörðinni Eiðum. Í umsögn sinni í skipulagsgátt, þar sem breytingatillögur á aðalskipulagi Fljótdalshéraðs fyrir… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 529 orð | 1 mynd

Selur bíla og brotajárn til Furu í stórum stíl

Þorbjörn Steingrímsson, ábúandi á Garðsstöðum utan Súðavíkur, er með stórt safn bíla á einkalóð sinni. Sérfræðingar frá Umhverfisstofnun fóru í svokallað fyrirvaralaust eftirlit að Garðsstöðum árið 2020 vegna ábendingar sem barst stofnuninni um að á bænum færi fram óheimil brennsla úrgangs Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

Síðasti sláttur sumarsins í Skorradal

Bændur eru nú margir hverjir í óðaönn að klára seinni eða síðasta slátt sumarsins líkt og í Skorradal þar sem myndin að ofan var tekin. Veðráttan hefur verið upp og ofan í sumar og margir bundu vonir við að veðrið færi að skána eftir… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 207 orð | 1 mynd

Skemmdarverkin þjöppuðu fólki saman

„Nú vonum við bara að þetta fái að vera friði. Annars verður fáninn sennilega bara lengdur á morgun og við þurfum að mála allan heiminn á endanum,“ segir Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi hjá Hveragerðisbæ… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 203 orð | 1 mynd

Styttist í verklok á heiðinni

Rúmur mánuður er þar til vinnu við annan áfanga Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði lýkur. Framkvæmdir hafa gengið vel, að sögn Guðmundar Ólafssonar verkefnastjóra hjá Suðurverki. Mikið þarf að sprengja til að leggja nýja veginn og átti fréttaritari… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 222 orð | 1 mynd

Sýndi engin merki um iðrun

Héraðsdóm­ur Reykja­vík­ur tel­ur að það hafi ekki vakað fyr­ir Dag­björtu Guðrúnu Rún­ars­dótt­ur að bana sam­býl­is­manni sín­um í aðdrag­anda and­láts hans. Tel­ur dóm­ur­inn að draga megi þá álykt­un að Dag­björt hafi í fyrstu beitt mann­inn… Meira
9. ágúst 2024 | Fréttaskýringar | 530 orð | 2 myndir

Trjáplöntuframleiðsla í landi Gunnarsholts

Ríkið og einkafyrirtæki hafa komist að samkomulagi um að breyta 60 hektara landbúnaðarlandi í eigu ríkisins í Gunnarsholti í iðnaðar- og athafnasvæði. Forsaga málsins er sú að FSRE (Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir) gerði fyrir hönd ríkissjóðs… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 282 orð | 1 mynd

Vilja að notendur hugsi betur um hvar þeir leggja skútunum

Hopp Reykjavík hefur unnið að því að setja upp ný rafskútustæði, svokölluð HoppSpot, víðs vegar um höfuðborgarsvæðið, en verkefnið með þessu sniði hófst formlega í sumar. „Við erum að búa til skipulögð svæði þar sem við veitum afslátt af… Meira
9. ágúst 2024 | Innlendar fréttir | 305 orð

Vilja fjölga dómurum hjá EFTA

Fleiri dómarar, aukin lögsaga og nýtt verklag við skipun dómara eru helstu tillögur sem EFTA-dómstóllinn hefur sent utanríkisráðuneyti Noregs. Eitt af því sem ríkisstjórnarflokkarnir í Noregi tóku upp var að gera skýrslu um reynsluna af EES-samningnum Meira
9. ágúst 2024 | Erlendar fréttir | 595 orð | 1 mynd

Ætluðu að myrða fjölda tónleikagesta

Austurríska leyniþjónustan greindi frá því í gær að 19 ára öfgamaður og stuðningsmaður hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams hefði lagt á ráðin um sjálfsvígsárás á tónleika, sem bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift ætlaði að halda í Vínarborg Meira

Ritstjórnargreinar

9. ágúst 2024 | Staksteinar | 179 orð | 2 myndir

Hver hóf stríðið?

Blinken, utanríkisráðherra Bidens, sagði í fyrrakvöld að bæði Íran og Ísrael yrðu að draga úr spennu í Mið-Austurlöndum og tryggja að átök á svæðinu mögnuðust ekki. Enginn ætti að magna þessi átök,“ sagði hann, en minntist ekki á, að eftir hryllingsmorðæðið 7 Meira
9. ágúst 2024 | Leiðarar | 683 orð

Óöldin í Bretlandi

Rætur vandans þarf að ræða Meira

Menning

9. ágúst 2024 | Fjölmiðlar | 181 orð | 1 mynd

Gláp að gelgjuskeiðinu loknu

Á yngri árum var ég ekki áhugasamur um sjónvarpsefni frá hinum norrænu löndunum. Líklega þótti það ekki svalt á vissum aldri. Nú þegar ég er (ný)skriðinn af gelgjunni hefur þetta breyst. Hjá streymisveitunni Viaplay er hægt að finna efni sem ég hefði annars ekki rekist á Meira
9. ágúst 2024 | Menningarlíf | 51 orð | 5 myndir

Gleðigöngur hafa verið farnar víðs vegar um heiminn að undanförnu til að fagna hinseginleikanum

Hinsegin dögum er fagnað í Reykjavík þessa vikuna og nær dagskráin vafalítið hápunkti með Gleðigöngunni sem farin verður frá Hallgrímskirkju að Hljómskálagarði á morgun, laugardag, kl. 14. Gleðigöngur og baráttufundir hafa verið haldin víðs vegar um heim að undanförnu og hafa ljósmyndarar AFP fangað jafnt gleðina og baráttuandann á myndum sínum. Meira
9. ágúst 2024 | Menningarlíf | 117 orð | 1 mynd

Heimtaug marglaga í einfaldleika sínum

Heimtaug nefnist sýning sem Eirún Sigurðardóttir opnar í Listasafni Svavars Guðnasonar á Höfn á morgun, laugardag, milli klukkan 17 og 18.30. Að sögn Eirúnar er sýningin marglaga í einfaldleika sínum Meira
9. ágúst 2024 | Menningarlíf | 567 orð | 3 myndir

Hreyfing hversdagslegra hluta

Ásýnd hluta, rými, staðir og tengsl manns og umhverfis eru meginviðfangsefni Himnu, nýrrar sýningar í SÍM Gallery við Hafnarstræti. Þar má sjá verk eftir listakonurnar Önnu Jóa, Huldu Ágústsdóttur og Ragnheiði Guðbjargar Hrafnkelsdóttur Meira
9. ágúst 2024 | Menningarlíf | 135 orð | 1 mynd

Taugatrekkjandi Hvítidauði að mati rýnis

„Ragnar Jónasson er enginn venjulegur ­rithöfundur,“ segir Mark Sanderson, gagnrýnandi The Times, í dómi um Hvítadauða sem kemur út í Bretlandi þann 22 Meira

Umræðan

9. ágúst 2024 | Aðsent efni | 653 orð | 1 mynd

Af förufólki nútímans

Skattlagning ríkis og sveitarfélaga skal taka mið af þörfum hverju sinni. Fasteignaskattar GOGG námu 2/3 hlutum ráðstöfunartekna árið 2023. Meira
9. ágúst 2024 | Pistlar | 437 orð | 1 mynd

Hvað verður frítt næst?

Virðingin fyrir skóladótinu er orðin engin,“ sagði grunnskólakennari við mig í sumar þegar við ræddum um gjaldfrjáls námsgögn í grunnskólum landsins. „Ég skil hugsunina og hugmyndin er falleg, en þegar þau eiga hlutina ekki sjálf hverfur tilfinningin fyrir ábyrgð,“ bætti hún við Meira
9. ágúst 2024 | Aðsent efni | 588 orð | 1 mynd

Stolt, frelsi og umburðarlyndi

Við erum öll ólík hvert á sinn hátt. Við erum ekki jöfn eða eins. Hlutfallslegir yfirburðir einstaklinga hjálpa þeim að skara fram úr. Meira
9. ágúst 2024 | Aðsent efni | 851 orð | 1 mynd

Um samkeppni og smjörlíkishagfræði

Íslenskir neytendur geta dæmt um hve tvíkeppnisfyrirtækin Festi hf. og Hagar hf. eru nærri fullkominni samkeppni með 3-4% hagnað af veltu. Meira

Minningargreinar

9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 3073 orð | 1 mynd

Benedikt Þórir Ólafsson

Benedikt Þórir Ólafsson fæddist á Selfossi 10. apríl 1950. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 23. júlí 2024. Foreldrar hans voru hjónin Hugborg Þuríður Benediktsdóttir, f. í Dalasýslu 27. febrúar 1922, d Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 1107 orð | 1 mynd

Dúna Bjarnadóttir

Dúna Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 11. júní 1936. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 22. júlí 2024. Foreldrar hennar voru Bjarni Böðvarsson tónlistarmaður, einn af stofnendum og fyrsti formaður FÍH, f Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 1716 orð | 1 mynd

Guðrún Bjarnadóttir

Guðrún Bjarnadóttir kennari fæddist 30. janúar 1939 í Hafnarfirði. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 26. júlí 2024. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Guðmundsson frá Stóra-Nýjabæ í Krýsuvík, f Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 1862 orð | 1 mynd

Guðrún Elíasdóttir

Guðrún Elíasdóttir fæddist á Akranesi 6. mars 1941. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 20. júlí 2024. Foreldrar Guðrúnar voru Sigríður Viktoría Einarsdóttir, f. 1902, d.1993, og Elías Guðmundson skipstjóri, f Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 2891 orð | 1 mynd

Hjörtur Þórarinsson

Hjörtur Þórarinsson, fyrrverandi skólastjóri og framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, fæddist á Miðhúsum í Reykhólahreppi 10. febrúar 1927. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 23 Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 1156 orð | 1 mynd

Jónína Elísa Guðmundsdóttir

Jónína Elísa Guðmundsdóttir fæddist á Ísafirði 17. júlí 1949. Hún lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 30. júlí 2024. Hún ólst upp í foreldrahúsum á Ísafirði til nítján ára aldurs. Dóttir hjónanna Guðmundar Ingvars Salómons Guðmundssonar og Helgu Elísabetar Kristjánsdóttir Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 1776 orð | 1 mynd

Viðar Geir Viðarsson

Viðar Geir Viðarsson fæddist á fjóðrungssjúkrahúsinu á Akureyri 2. apríl 1985. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu á Alicante þann 7. júlí 2024. Foreldrar Viðars eru Arna Ósk Geirsdóttir, f. 5. júní 1963, og Viðar Gunnarsson, f Meira  Kaupa minningabók
9. ágúst 2024 | Minningargreinar | 1094 orð | 1 mynd

Þórdís Þorkelsdóttir

Þórdís Þorkelsdóttir fæddist á Siglufirði 22. október 1952. Hún lést 30. júlí 2024. Hún var dóttir hjónanna Þorkels Benónýssonar, f. 15.9. 1920, d. 6.1. 1993, og Margrétar Brands Viktorsdóttur, f. 28.9 Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

9. ágúst 2024 | Viðskiptafréttir | 1076 orð | 1 mynd

Segir nauðsynlegt að lækka vexti

Nauðsynlegt er að byrja vaxtalækkunarferli strax á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans og tryggja þannig trú fólks og fyrirtækja á að við séum á rétti leið, sem mun svo leiða til lækkandi verðbólguvæntinga Meira

Fastir þættir

9. ágúst 2024 | Í dag | 243 orð

Af lundum, veiði og hinsegin dögum

Hinsegin dagar standa yfir þessa vikuna og munu eflaust setja svip á mannlífið. Pétur Stefánsson var fljótur að kveikja á perunni: Fjölbreytileika fagna ber, fúllyndi glittir vart í. Hér á landi hafið er Hinsegindagapartí Meira
9. ágúst 2024 | Í dag | 50 orð

„Dolfallinn aðdáandi“ er ekki óalgeng vera, sum átrúnaðargoð…

„Dolfallinn aðdáandi“ er ekki óalgeng vera, sum átrúnaðargoð koma aðdáendum sínum reglulega á óvart. En dolfallinn þýðir steinhissa, agndofa af undrun. Meiningin var hins vegar forfallinn aðdáandi, þ.e.a.s Meira
9. ágúst 2024 | Í dag | 78 orð | 1 mynd

Gunnar Jónsson

50 ára Gunnar er Reykvíkingur, ólst upp í Fossvogi til tíu ára aldurs og síðan í Ártúnsholti. Hann býr í Grafarholti. Gunnar er stúdent frá Versló og er forstöðumaður sölusviðs hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Learncove Meira
9. ágúst 2024 | Í dag | 556 orð | 4 myndir

Hlutlaus á bæjarstjórnarfundum

Jóhannes Ævar Hilmarsson er fæddur 9. ágúst 1954 á fæðingarheimilinu í Reykjavík. „Við fjölskyldan flökkuðum á milli staða og vorum á Siglufirði á sumrin, pabbi var að vinna þar en fast heimili varð síðan í Kópavogi þegar ég byrjaði í skóla 1960 Meira
9. ágúst 2024 | Í dag | 30 orð | 1 mynd

Jökuldalur Óskírð Guðmundsdóttir fæddist 31. júlí 2024 á sjúkrahúsinu á…

Jökuldalur Óskírð Guðmundsdóttir fæddist 31. júlí 2024 á sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún vó 3.818 g og var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir og Guðmundur Óli Guðmundsson. Meira
9. ágúst 2024 | Í dag | 186 orð

Óleysanlegt vandamál. S-NS

Norður ♠ G108 ♥ 8 ♦ ÁG983 ♣ D642 Vestur ♠ KD5 ♥ 1032 ♦ D762 ♣ K95 Austur ♠ Á732 ♥ 95 ♦ 1054 ♣ G873 Suður ♠ 964 ♥ ÁKDG764 ♦ K ♣ Á10 Suður spilar 4♥ Meira
9. ágúst 2024 | Í dag | 163 orð | 1 mynd

Skák

1. Rf3 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. d4 dxc4 5. e3 a6 6. a4 b6 7. Bxc4 Bb7 8. 0-0 Bb4 9. De2 0-0 10. Re5 Rbd7 11. Rxd7 Dxd7 12. Hd1 De7 13. f4 c5 14. Ra2 cxd4 15. Rxb4 Dxb4 16. b3 Dc3 17. Bd2 Dc2 18. Hac1 Df5 19 Meira
9. ágúst 2024 | Dagbók | 87 orð | 1 mynd

Var gripin af Erninum í sorginni

Þór­unn Hanna Gunn­ars­dótt­ir mun hlaupa í Reykja­vík­ur maraþon­inu til styrkt­ar Ern­in­um sem er minn­ing­ar- og styrkt­ar­sjóður fyr­ir börn og ung­linga sem hafa misst foreldri eða náinn ástvin Meira

Íþróttir

9. ágúst 2024 | Íþróttir | 512 orð | 2 myndir

Allt opið þrátt fyrir vonbrigði

Íslands- og bikarmeistarar Víkings gerðu jafntefli við Flora Tallinn frá Eistlandi, 1:1, í fyrri leik liðanna í 3. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar í fótbolta á Víkingsvellinum í Fossvogi í gærkvöldi Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 662 orð | 2 myndir

Besti árangurinn á stórmóti

Erna Sóley Gunnarsdóttir hafnaði í 20. sæti í kúluvarpi á Ólympíuleikunum í París í gær er hún keppti í undankeppninni á sínum fyrstu leikum. Var keppt á hinum magnaða Stade de France-leikvangi, þjóðarleikvangi Frakklands Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 362 orð | 1 mynd

Fimm fara á Paralympics

Fimm íslenskir íþróttamenn eru á leið á Paralympics sem verða settir í París 28. ágúst. Á blaðamannafundi í Toyota í Kauptúni í gær voru keppendurnir fimm kynntir til leiks. Hópurinn, sem inniheldur fjóra sundmenn og eina frjálsíþróttakonu, heldur utan til Parísar 24 Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 76 orð | 1 mynd

ÍA á meðal efstu liða eftir sigur

ÍA kom sér í góða stöðu í toppbaráttu 1. deildar kvenna í knattspyrnu með því að vinna botnlið ÍR, 3:2, í Breiðholti í gærkvöldi. Erla Karitas Jóhannesdóttir skoraði öll þrjú mörk ÍA, sem er í fjórða sæti með jafnmörg stig og Grótta og ÍBV í sætunum fyrir ofan Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 76 orð | 1 mynd

Keflavík upp í þriðja sætið

Keflavík lagði nágranna sína í Grindavík að velli, 2:1, þegar liðin áttust við í 1. deild karla í knattspyrnu í Keflavík í gærkvöld. Með sigrinum fór Keflavík upp í þriðja sæti deildarinnar. Oleksii Kovtun og Kári Sigfússon skoruðu fyrir Keflavík og Kwame Quee fyrir Grindavík Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 309 orð | 1 mynd

Letsile Tebogo frá Botsvana kom fyrstur í mark og vann til síns fyrsta…

Letsile Tebogo frá Botsvana kom fyrstur í mark og vann til síns fyrsta ólympíugulls í 200 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í París í gærkvöld. Tebogo, sem er 21 árs, hljóp á 19,46 sekúndum og skaut þannig þremur Bandaríkjamönnum ref fyrir rass Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 316 orð | 2 myndir

Markið brotið og leik frestað

Fresta þurfti leik HK og KR, síðasta leik 17. umferðar í Bestu deild karla í knattspyrnu, í gærkvöldi af ansi óvenjulegum ástæðum. Stuttu áður en leikurinn átti að hefjast klukkan 19.15 kom í ljós að annað markið í Kórnum í Kópavoginum væri brotið Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Sló heimsmet í bronsviðureign

Bandaríkjamaðurinn Sam Watson sló eigið heimsmet og um leið ólympíumetið í hraðklifri karla þegar hann hafði betur gegn Reza Alipour frá Íran í bronsviðureigninni á Ólympíuleikunum í París í gær. Watson klifraði á 4,74 sekúndum og sló þannig eigið… Meira
9. ágúst 2024 | Íþróttir | 52 orð | 1 mynd

Þórir og Noregur í úrslit á ÓL

Noregur, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, og gestgjafar Frakklands mætast í úrslitaleik handknattleiks kvenna á Ólympíuleikunum í París á morgun. Noregur lagði Danmörku í undanúrslitum í gærkvöldi, 25:21, og freistar Þórir þess að vinna sitt annað ólympíugull sem þjálfari Noregs Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.