Greinar fimmtudaginn 30. janúar 2025

Fréttir

30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 327 orð | 7 myndir

Ári snáksins fagnað í Reykjavík

Mikið var um dýrðir á nýársfagnaði á vegum kínverska sendiráðsins í Háskólabíói síðastliðið föstudagskvöld. Skemmtunin var skipulögð í samvinnu við yfirvöld menningarmála í Shanxi-héraði og tóku um tuttugu listamenn þátt í sýningunni Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 1472 orð | 3 myndir

„Skemmtilegt að vera í viðskiptum þegar maður er sjálfs sín herra“

Viðurkenningarhátíð FKA er stórviðburður í íslensku viðskiptalífi. Að þessu sinni var það Geirlaug Þorvaldsdóttir, eigandi Hótel Holts, sem hlaut Þakkarviðurkenningu FKA árið 2025. Verðlaunin eru veitt fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnandi í atvinnulífinu Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 109 orð | 1 mynd

Bjarni í framboð til formanns VR

Halla Gunnarsdóttir, sitjandi formaður VR, er komin með mótframboð til formanns fyrir næsta aðalfund. Bjarni Þór Sigurðsson hefur tilkynnt framboð, en hann er stjórnarmaður í VR og hefur verið félagi þar í 30 ár, þar af í stjórninni frá árinu 2012 Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 70 orð | 1 mynd

Bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent í 36. sinn við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gærkvöldi. Þau Kristín Ómarsdóttir, Rán Flygenring og Guðjón Friðriksson hlutu verðlaunin að þessu sinni sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 774 orð | 8 myndir

Bragðið sem „landslýður þekkir“

Ýmsir hlutir, staðir og fyrirbæri eru fyrir löngu orðnir samofnir sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar. Má þar nefna sundlaugamenninguna, þorrablótin, kokteilsósuna, lopapeysuna, pulsu og kók og íslenska Brennivínið Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 716 orð | 3 myndir

Býður upp á bakaða lúðu með freyðandi karrísósu

Hann hefur sótt sér reynslu á erlendri grundu í sínu fagi og hefur mikinn áhuga á keppnismatreiðslu. Markmið hans er að halda áfram að keppa og ná árangri. „Ég er kominn til landsins eftir um fjögurra ára dvöl í Noregi þar sem ég fékk þann… Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 60 orð | 1 mynd

Einleikarinn Ari Þór frumflytur nýjan fiðlukonsert eftir Þórð

Nýr fiðlukonsert eftir Þórð Magnússon verður frumfluttur í Eldborgarsal Hörpu í kvöld, fimmtudag 30. janúar, klukkan 19.30, að því er segir á vef Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Segir þar jafnframt að efnisskrá tónleikanna sé einstaklega litrík og… Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 377 orð | 1 mynd

Engin fjárheimild fyrir Fossvogsbrú

Uppfærður samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins upp á 311 milljarða króna er ekki hluti af gildandi samgönguáætlun Alþingis til 15 ára, enda var aldrei lögð fram eða samþykkt samgönguáætlun á þingi þar sem gert er ráð fyrir fjárveitingum til hans Meira
30. janúar 2025 | Fréttaskýringar | 451 orð | 3 myndir

Enn skal glímt við Grynnslin

Dýpkunarskipið Tristão da Cunha er komið til Hornafjarðar þar sem það mun vinna að dýpkun í innsiglingunni að höfninni, Grynnslunum svonefndu. Vegagerðin auglýsti í fyrrasumar fyrir hönd Hornafjarðarhafnar verkið „Hornafjörður – dýpkun á Grynnslunum 2025“ Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 324 orð | 1 mynd

Fagna hækkun sektarfjárhæðar

„Ég fagna þessu mjög. Ég og fleiri lögreglumenn höfum verið að vekja athygli á þessu víða, því sektarfjárhæð fyrir vopnaburð hefur verið allt of lág og þetta er því mikið fagnaðarefni,“ segir Fjölnir Sæmundsson, formaður landssambands lögreglumanna Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 91 orð

Fossvogsbrúin ekki með fjárheimild

Alþingi hefur ekki veitt fjárheimildir til byggingar áformaðrar brúar yfir Fossvog, en framkvæmdir við landfyllingar að brúnni sem þegar eru hafnar eru þó sagðar innan heimilda. Svo segir Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar síðasta Alþingis Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 273 orð | 3 myndir

Framlag sjálfboðaliða er ómetanlegt

Fjölmennt var í húsakynnum Rauða krossins við Eyjafjörð þegar því var fagnað að 100 ár voru liðin frá stofnfundi Akureyrardeildar Rauða krossins. Deildin var fyrsta Rauðakrossdeildin sem stofnuð var hér á landi og hefur frá upphafi verið ein sú öflugasta Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 99 orð | 1 mynd

Gaman hjá Giljaskóla á skíðum

Skíðasvæðin á landinu hafa flest verið opin síðustu daga, enda nóg af snjó og veðrið verið hið ágætasta. Miðað við spár fram undan gæti staðan breyst fljótt. Nemendur úr Giljaskóla á Akur­eyri fjölmenntu í Hlíðarfjallið í gær þegar haldinn var sérstakur útivistardagur í skólanum Meira
30. janúar 2025 | Fréttaskýringar | 630 orð | 2 myndir

Grænlendingar vilja ekki Bandaríkin

Skoðanakönnun sem danska blaðið Berlingske birti í gær sýnir að mikill meirihluti Grænlendinga, eða rúmlega 85%, er andvígur því að Grænland gangi úr ríkjasambandinu við Danmörku og verði í staðinn hluti af Bandaríkjunum Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 386 orð | 1 mynd

Hafði unnið á Maríuborg frá ágúst 2013

„Við, fyrrverandi starfsfólk leikskólans Maríuborgar, vísum ásökunum Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur formanns skóla og frístundaráðs Reykjavíkur alfarið á bug þar sem þær eiga sér enga stoð. Leikskólastjórinn hefur starfað á Maríuborg síðan í ágúst 2013 Meira
30. janúar 2025 | Erlendar fréttir | 255 orð | 1 mynd

Harmleikur á trúarhátíðinni

Sorg skyggði á hátíðahöld hindúa í borginni Prayagraj í gærmorgun, en að minnsta kosti 30 manns létu þá lífið þegar þeir tróðust undir mannþröng, sem vildi komast að hinum helgu fljótum, Ganges og Yamuna, um morguninn Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 235 orð | 1 mynd

Hlutafélag um flokkun og urðun

Íslensk stjórnvöld hafa fallist á að tryggja að hagnaðardrifin starfsemi Sorpu verði færð í hlutafélag sem sé tekjuskattsskylt. Í tilkynningu frá ESA, eftirlitsstofnun EFTA, segir að með ákvörðun ESA sé skuldbinding Íslands staðfest og sé hún því lagalega bindandi Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 327 orð | 2 myndir

Hundrað ár frá Halaveðrinu

Ýmislegt verður gert á næstunni í tilefni af því að dagana 7.-9. febrúar er liðin öld frá Halaveðrinu svonefnda og þeim skaða sem því fylgdi. Í ofsa þeim fórst með 35 mönnum togarinn Field Marshal Robertson sem var gerður út frá Hafnarfirði af útgerðarfélagi Hellyersbræðra í Hull í Bretlandi Meira
30. janúar 2025 | Fréttaskýringar | 777 orð | 2 myndir

Ítök Rússa í Mið-Austurlöndum í hættu?

Rússneska utanríkisráðuneytið sendi í gær frá sér yfirlýsingu um að Rússland styddi áfram við fullveldi og landsvæði Sýrlands, en Rússar sendu á þriðjudaginn sendinefnd til landsins til að ræða við hina nýju stjórnarherra þar Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 303 orð

Koma í veg fyrir frekari tafir

„Ég mun koma með frumvarp, væntanlega strax á fyrsta degi nýs Alþingis, og vonandi getum við fjallað um það og afgreitt á fáum sólarhringum,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við… Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 871 orð | 6 myndir

Lífsstílssjúkdómar vaxandi vandi

„Lífsstílssjúkdómar eru farnir að skapa verulegan þunga á allt heilbrigðiskerfið, það er kvillar sem eru ekki af völdum slysa eða sýkinga,“ segir Kjartan Hrafn Loftsson læknir. Sjúkdómar sem leiða af lífi og daglegri breytni fólks voru… Meira
30. janúar 2025 | Fréttaskýringar | 649 orð | 3 myndir

Lögreglan treystir á rafmagnið

Fram hefur komið að nýlega var útboð haldið á vegum lögreglunnar við endurnýjun á neyðarakstursbifreiðum. Áður hafði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boðið út og auglýst eftir ökutækjum sem brenna jarðefnaeldsneyti en ekkert tilboð barst Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 182 orð | 1 mynd

Mikil viðvera á skrifstofunni

Grindavíkurbær er nú með skrifstofur á tveimur stöðum, í Tollhúsinu í Reykjavík og á gömlu skrifstofunum í Grindavík. Fannar Jónasson bæjarstjóri segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um að flytja starfsemina að fullu aftur til Grindavíkur Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 422 orð | 2 myndir

Mun setja svip á bæinn

„Þetta eru svakalega flottar hugmyndir og mjög spennandi verkefni,“ segir Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri í Vesturbyggð. Hún skrifaði í vikunni undir samning um úthlutun lóðar fyrir hótelbyggingu við höfnina á Bíldudal Meira
30. janúar 2025 | Fréttaskýringar | 946 orð | 2 myndir

Mun þrengja mjög að fyrirtækjum

Miklar breytingar standa fyrir dyrum á skipulagi Suðurlandsbrautar í kjölfar þess að svæðið verður lagað að þörfum borgarlínu. Þetta má glögglega sjá á drögum að aðalskipulagi fyrir svæðið en í liðinni viku rann út frestur til þess að skila… Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 286 orð | 1 mynd

Nýtt hlutverk Laugavegshúss

Við Laugaveg 71 stendur reisulegt hús með átta íbúðum sem leigðar hafa verið til ferðamanna í skammtímaleigu. Nú hyggst eigandinn, Svala apartments ehf., breyta þeim í almennar íbúðir til langtímaleigu og hefur sent fyrirspurn þess efnis til Reykjavíkurborgar Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 244 orð | 1 mynd

Orkumál garðyrkju rædd í ríkisstjórn

„Ég hef þungar áhyggjur af stöðu garðyrkjubænda. Þeir eru nú að súpa seyðið af ójafnvægi sem ríkir í raforkukerfinu sem stafar bæði af því að orkuöflun og uppbygging raforkukerfisins hefur ekki gengið nógu hratt og ekki haldið í við vaxandi… Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 121 orð | 1 mynd

Óttast afleiðingar af skertu aðgengi

Fyrirtækjarekendur við Suðurlandsbraut lýsa miklum áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum á aðalskipulagi Reykjavíkur sem miða að því að koma borgarlínunni fyrir á svæðinu þar sem nú er Suðurlandsbraut Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 121 orð

Óveður hefur áhrif næmni mælanets

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi á Reykjanesskaga og kvikusöfnun heldur áfram á svæðinu. Er það mat sérfræðinga á Veðurstofu Íslands að magn kviku sem safnast hefur undir Svartsengi nálgist nú það magn sem kom upp í síðasta gosi Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 519 orð | 1 mynd

Óvíst með starfsleyfi fyrir landeldi

Í umsögn Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna fyrirspurnar um matsskyldu vegna landeldis á Grundartanga kemur fram að matvælafyrirtæki skuli ekki staðsett nálægt atvinnurekstri sem geti haft mengandi áhrif á starfsemina Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 941 orð | 2 myndir

Predikanir skila SÞ ekki árangri

Dr. Bertrand G. Ramcharan sótti Ísland heim í vikunni en hann starfaði um áratugaskeið að mannréttindamálum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Merkilegur maður sem braust úr fátækt til mennta og lauk doktorsprófi í lögfræði í London en bætti einnig við sig á efri árum gráðum í sagnfræði og heimspeki Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 195 orð | 1 mynd

Sindri í 8. sæti á Bocuse d'Or

Sindri Guðbrandur Sigurðsson náði 8. sæti í Bocuse d'Or, heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu, sem haldin var í Lyon í Frakklandi í byrjun vikunnar. Alls kepptu 24 þjóðir til úrslita eftir að hafa unnið sér inn þátttökurétt í undankeppnum í sínum heimsálfum Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 227 orð | 1 mynd

Skera úr um lögmæti á morgun

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðar um lögmæti verkfallsaðgerða kennara á morgun, föstudag. Hópur foreldra leikskólabarna höfðaði mál gegn Kennarasambandi Íslands vegna verkfallanna. Aðalmeðferð fór fram í gær Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

Skynja jákvæða áru yfir þessu liði

Handknattleiksþjálfarinn Erlingur Richardsson segir að 9. sætið á HM karla sé ásættanlegur árangur. HSÍ þurfi hins vegar að fara að vinna eftir markvissari hugmyndafræði og þjálfarinn Snorri Steinn þyrfti að vera með fleiri plön í gangi í vörn og sókn Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 562 orð | 2 myndir

Snúið og skorið í 13 ár

Félag trérennismiða á Íslandi hefur dafnað síðan Örn Ragnarsson tók við formennskunni 2021 og eru nú 294 manns í félaginu. Þar á meðal er 11 manna hópur, sem kallar sig Snúið og skorið og leigir saman aðstöðu í Dalshrauni í Hafnarfirði Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 502 orð | 1 mynd

Sumarið í fyrra var með þeim blautustu

Sumarið 2024 fær ekki háa einkunn hjá Veðurstofu Íslands í nýbirtu tíðarfarsyfirliti ársins. Ekki er úr vegi að rifja upp þetta leiðindasumar nú þegar landsmenn eru farnir að horfa vonaraugum til sumarsins 2025 Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 296 orð | 1 mynd

Tíðrætt við norrænu kollegana

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist í samtali við Morgunblaðið eiga í nánum samskiptum við kollega sína á Norðurlöndum, þótt hún hafi ekki verið við kvöldverð norrænna leiðtoga á sunnudag. Athygli vakti að forsætisráðherra Íslands var ekki … Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 425 orð | 2 myndir

Togast á um vistarverur í Alþingishúsi

Þingflokkur Samfylkingar hefur gert kröfu um að fá úthlutað stærsta þingflokksherberginu í Alþingishúsinu í krafti stærðar sinnar, en svo vill til að það er þingflokksherbergi Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðismenn taka þessu fjarri, segja enga þörf á… Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 248 orð | 1 mynd

Útsýnisíbúðin fékk grænt ljós

Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur fallist á beiðni um að breyta samkomusal á 13. hæð í Austurbrún 2 í leiguíbúð. Snýr hann þar með við fyrri ákvörðun sinni, þar sem beiðninni var hafnað. Austurbrún 6 stendur efst í Laugarásnum og þetta verður því ein glæsilegasta útsýnisíbúð borgarinnar Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

Varað við asahláku og bleytu

Eftir fannfergi og frostakafla að undanförnu eru veðrabrigði í loftinu. Hitastig fer lækkandi og strax í dag fer að rigna á láglendi með hvassri suðaustanátt. Er fólk hvatt til að huga að niðurföllum við hús og götur er hálkan brestur á með tilheyrandi bleytu Meira
30. janúar 2025 | Innlendar fréttir | 207 orð | 1 mynd

Þrjú tilboð í veg um Vestfirði

Þrjú tilboð bárust í verkið Vestfjarðavegur (60) um Dynjandisheiði, 3. áfangi, en tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni sl. þriðjudag. Borgarverk ehf. Borgarnesi bauð lægst eða krónur 1.482.160.020. Var það 84% af áætluðum verktakakostnaði, sem var krónur 1.761.824.081 Meira

Ritstjórnargreinar

30. janúar 2025 | Leiðarar | 193 orð

Autt sæti við borðið

Ríkisstjórnin verður að sinna utanríkishagsmunum Íslands af alvöru og kappi Meira
30. janúar 2025 | Staksteinar | 172 orð | 2 myndir

Er það geymt eða gleymt?

Bresk yfirvöld höfðu ákveðið að Mandelson lávarður skyldi verða sendiherra Breta í Washington. En lávarðurinn var þekktur á stjórnmálaárum sínum fyrir að hafa verið alræmdur og óvarkár „kjaftur“ og látið margt vaða um andstæðinga sína, innanlands og utan Meira
30. janúar 2025 | Leiðarar | 392 orð

Hiti vegna hælisleitenda

Morð í almenningsgarði í Þýskalandi veldur uppnámi og eldveggurinn gegn AfD rofnar Meira

Menning

30. janúar 2025 | Menningarlíf | 929 orð | 4 myndir

„Erum eins og fimm höfða dreki“

Rómantísk hrollvekja hreiðrar um sig á Stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld. Um er að ræða sýninguna Árið án sumars eftir leikhópinn Marmarabörn og er lokaþáttur í því sem þau kalla hamfara-þríleik en hópurinn hefur áður sýnt verkin Að flytja… Meira
30. janúar 2025 | Menningarlíf | 3325 orð | 6 myndir

„Innilega hrærð og þakklát“

Kristín Ómarsdóttir, Rán Flygenring og Guðjón Friðriksson hlutu í gærkvöldi Íslensku bókmenntaverðlaunin 2024 úr hendi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í 36 Meira
30. janúar 2025 | Tónlist | 527 orð | 5 myndir

„Þetta er ekki ég, elskan“

Mér finnst stundum, og ég brosi í kampinn, eins og fólk gleymi því að þetta er fyrst og síðast bíó. Þetta eru ekki heimildarmyndir búnar til af rannsóknarfólki í háskólum. Meira
30. janúar 2025 | Fjölmiðlar | 193 orð | 1 mynd

Einstæð móðir með barn í vinnu

Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti skipar sérstakan sess í hörtum Íslendinga og voru vinsældir þáttanna um Vigdísi á Rúv eftir því. Þjóðinni hefur þótt vænt um Vigdísi allt frá því hún braut blað í sögunni er hún var kjörin forseti Íslands fyrst kvenna Meira
30. janúar 2025 | Fólk í fréttum | 467 orð | 12 myndir

Hátískuhús Chanel 110 ára

Franska tískuhúsið Chanel sýndi hátískulínuna (e. haute couture) fyrir árið 2025 í París fyrr í vikunni. Hátískuhluti fyrirtækisins var settur af stað af Gabrielle Chanel árið 1915 sem gera 110 ár síðan fyrstu hátískuflíkur Chanel litu dagsins ljós Meira
30. janúar 2025 | Menningarlíf | 103 orð | 1 mynd

Katla valin til þátttöku á Sundance 2025

Katla Sólnes var meðal þeirra 10 umsækjenda sem valdir voru til þátttöku í vinnusmiðju fyrir upprennandi handritshöfunda á Sundance-kvikmyndahátíðinni 2025. Segir á vef Deadline að mikill fjöldi hafi sótt um en alls bárust 3.380 umsóknir Meira
30. janúar 2025 | Menningarlíf | 108 orð | 1 mynd

Margt um að vera á Fimmtudeginum langa

Hreyfilistakonan Miriam Markl hefur um tveggja vikna skeið stundað rannsóknir á arkitektúr Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúss í gegnum hreyfingu og dans en lokaútkoman er gjörningur sem fluttur verður í kvöld, 30 Meira
30. janúar 2025 | Menningarlíf | 146 orð | 1 mynd

Móna Lísa færð um set til að auka aðgengi

Áform eru um að flytja málverkið af Mónu Lísu á nýjan stað innan Louvre-safnsins og er það hluti af miklum endurbótum sem gerðar verða á safninu á næstu árum. BBC greinir frá og segir að forseti Frakklands, Emmanuel Macron, hafi staðið fyrir framan… Meira
30. janúar 2025 | Menningarlíf | 331 orð | 1 mynd

Samband forms og rýmis

Einkennandi fyrir skúlptúra Roberts Jacobsen er jafnvægi milli þess óáþreifanlega og áþreifanlega, breytileg ásýnd mismunandi sjónarhorna sem öll eru áhugaverð líkt og í verkinu Minning um stein. Þar nýtir höfundurinn líka fleiri grunnstef… Meira
30. janúar 2025 | Fólk í fréttum | 593 orð | 7 myndir

Skotheld ráð fyrir orkumikla „lasarusa“

Janúar er að kveðja og febrúar rétt handan við hornið. Þótt margir séu farnir að hlakka til þess að sjá fyrstu vísbendingar um vorið í lofti, lætur veturinn enn finna fyrir sér – bæði með snjó og öðrum óþægilegum fylgifiskum sínum, eins og pestum Meira

Umræðan

30. janúar 2025 | Aðsent efni | 720 orð | 3 myndir

Er Hvammsvirkjun skref í lausn raforkuvandans?

Minnkandi innrennsli Þórisvatns hefur dregið úr öryggi raforkukerfisins, eins og skýrt kemur fram í rekstrarniðurstöðum síðustu fimm ára. Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 392 orð | 1 mynd

Hvert er brot Flokks fólksins?

Kveðið er á um meðalhóf í stjórnsýslulögum sem felur í sér að ekki má grípa til strangari aðgerða af hálfu ríkisins en brýn þörf er á. Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 390 orð | 1 mynd

Landsfundur nýrra tækifæra

Leiðin fram á við byrjar inn á við! Forystuafl eins og Sjálfstæðisflokkurinn barmar sér ekki, heldur spýtir í lófa og lætur hendur standa fram úr ermum. Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 619 orð | 1 mynd

Lengdu lífið og hægðu á tímanum

Við upplifum tímann á mismunandi hátt. Öll höfum við heyrt um aldurstengda upplifun en það er ekki það sem er að fanga hug minn. Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 157 orð | 1 mynd

Loðna, trönusíli og sandsíli við Ísland

Ég hef stundað sjómennsku frá 1958 og fylgst vel með lífríkinu á svæðinu frá Djúpavogi að Hrollaugseyjum. Fyrstu árin sást varla hnúfubakur, það er ekki fyrr en 1980-90 sem honum fer ört fjölgandi. Þá fór ég að fylgjast með honum og sá að hann lá í trönusíli og loðnu sem hann virðist fylgja Meira
30. janúar 2025 | Pistlar | 491 orð | 1 mynd

Raunsæis þörf í öryggismálum

Alþjóðamálin hafa ekki verið jafn þýðingarmikil í áraraðir og það reynir á ríkisstjórn Íslands að tryggja hagsmuni landsins. Það eru viðsjárverðir tímar. Enn sér ekki fyrir endann á hrikalegu stríði í Úkraínu Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 604 orð | 1 mynd

Reykvísk ungmenni hafa orðið

Dýrmætt er fyrir borgarstjórn að funda reglulega með fulltrúum Reykjavíkurráðsins og heyra sjónarmið þeirra milliliðalaust. Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 462 orð | 1 mynd

Réttindi opinberra starfsmanna á Alþingi

Þessi yfirburðastaða opinberra starfsmanna gagnvart fólki á almennum vinnumarkaði er hvorki sanngjörn né eðlileg. Meira
30. janúar 2025 | Aðsent efni | 724 orð | 1 mynd

Þöggun, þrælsótti og auðæfin í Vatnsmýri

Misvægið rænir meirihluta kjósenda réttmætri aðkomu að valdinu sem mótar örlög þegnanna en handhöfum aukins vægis atkvæða mikil og ómakleg völd. Meira

Minningargreinar

30. janúar 2025 | Minningargreinar | 2564 orð | 1 mynd

Agnes Helga María Ferro

Agnes Helga María Ferro fæddist 15. október 1988. Hún lést 10. janúar 2025. Útför Agnesar fór fram 29. janúar 2025. Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1451 orð | 1 mynd

Áslaug Benediktsdóttir

Áslaug Benediktsdóttir fæddist í Reykjavík 16. október 1942. Hún lést á sjúkrahúsi Akraness 15. janúar 2025. Áslaug var dóttir hjónanna Benedikts Jónssonar, f. 7. september 1910, d. 16. júlí 1991, og Elínar Þorsteinsdóttur, f Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1031 orð | 1 mynd

Egill Egilsson

Egill Egilsson fæddist í Reykjavík 10. nóvember 1969. Hann lést 16. desember 2024. Foreldrar hans eru Unnsteinn Egill Kristinsson, f. 22. maí 1947 og Guðný Helga Jóhannsdóttir, f. 18. september 1947 Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 266 orð | 1 mynd

Guðrún Jónsdóttir

Guðrún Jónsdóttir, kölluð Rúna, fæddist 12. nóvember 1932. Hún lést 5. janúar 2025. Útför hennar fór fram 20. janúar 2025. Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 419 orð | 1 mynd

Hafsteinn Jónsson

Hafsteinn Jónsson fæddist 14. október 1956. Hann lést 28. desember 2024. Útför Hafsteins var gerð frá Lindakirkju 14. janúar 2025. Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargrein á mbl.is | 1252 orð | 1 mynd | ókeypis

Herdís Viggósdóttir

Herdís Viggósdóttir fæddist í Rauðanesi á Mýrum 23. júní 1945. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 14. janúar 2025. Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 2536 orð | 1 mynd

Herdís Viggósdóttir

Herdís Viggósdóttir fæddist í Rauðanesi á Mýrum 23. júní 1945. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 14. janúar 2025. Foreldrar hennar voru Viggó Jónsson, f. 1908, d. 1999, og Ingveldur Rósa Guðjónsdóttir, f Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 364 orð | 1 mynd

Hrafnhildur Guðfinna Thoroddsen

Hrafnhildur Guðfinna Thoroddsen fæddist 18. apríl 1973. Hún lést 16. janúar 2025. Útförin fór fram 24. janúar 2025. Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1530 orð | 1 mynd

Kristjana Sigríður Ólafsdóttir

Kristjana Sigríður Ólafsdóttir fæddist á Siglufirði 26. janúar 1951. Hún lést á heimili Rúnu systur sinnar 25. desember 2024. Foreldrar hennar voru hjónin Ólöf Ólafsdóttir, f. 24.9. 1925, d. 29.8. 2009 og Ólafur Helgi Jónsson, f Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1643 orð | 1 mynd

Kristjana Sólbjört Guðmundsdóttir

Kristjana Sólbjört Guðmundsdóttir kennari fæddist í Reykjavík 9. janúar 1929. Hún lést á öldrunardeild Landspítalans í Fossvogi 13. janúar 2025 eftir stutta sjúkrahúslegu. Hún bjó að Týsgötu 4c ásamt foreldrum sínum, Guðmundi Ragnari Ólafssyni frá… Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1887 orð | 1 mynd

María Friðþjófsdóttir

María Friðþjófsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 18. september 1939. Hún lést á Landspítala við Hringbraut 15. janúar 2025. Foreldrar hennar voru Jóhanna Vilhjálmsdóttir frá Sandfellshaga í Axarfirði, f Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1782 orð | 1 mynd

Narfi Hjartarson

Narfi Hjartarson fæddist að Mið-Meðalholtum í Gaulverjabæjarsókn 6. mars 1933. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 14. janúar 2025. Foreldrar hans voru Hjörtur Níelsson, f. 30.9. 1899, d. 17.7. 1970, og Guðlaug Narfadóttir, f Meira  Kaupa minningabók
30. janúar 2025 | Minningargreinar | 1868 orð | 1 mynd

Sigrún Magnúsdóttir

Sigrún Magnúsdóttir fæddist í Reykjavík 9. mars 1955. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans 5. janúar 2025. Foreldrar hennar voru Zanný Clausen og Magnús Steingrímsson, þau eru bæði látin. Sigrún var yngst fimm systkina Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

30. janúar 2025 | Sjávarútvegur | 435 orð | 1 mynd

Búnaður Hefring í 50 björgunarskip

Hátæknifyrirtækið Hefring Marine tilkynnti á dögunum að gengið hefði frá samningi við norska björgunarfélagið, Redningsselskapet (RS), um kaup og uppsetningu á snjallsiglingakerfinu IMAS í öllum flota björgunarfélagsins Meira
30. janúar 2025 | Sjávarútvegur | 212 orð | 1 mynd

Mæling breytir ekki miklu

Framhaldsmæling Polar Ammassak og Aðalsteins Jónssonar SU á loðnustofninum lýkur mögulega í dag eða á morgun. Endanlegt stofnmat Hafrannsóknastofnunar verður því líklega ekki kynnt fyrr en eftir helgi, en fátt bendir til að mæling skipanna skili… Meira

Viðskipti

30. janúar 2025 | Viðskiptafréttir | 164 orð | 1 mynd

Kjarasamningarnir mesta óvissan

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að verðbólga verði að jafnaði 3,6% á þessu ári. Þetta kemur fram í nýrri Þjóðhagsspá frá bankanum. Fram kemur að stöðugra verðlag erlendis, takmarkað launaskrið og stöðugt gengi krónu stuðli einna helst að þeirri hjöðnun Meira

Daglegt líf

30. janúar 2025 | Daglegt líf | 1535 orð | 4 myndir

Einlægur aðdáandi Jane Austen

Í nútímasamfélagi þar sem margt er þungt, streituvaldandi og erfitt, hvort sem við lítum okkur nær eða fjær í heiminum, þá er dásamlegt að eiga sem áhugamál einhvern heim sem hægt er að hverfa inn í og sækja sér þar raunveruleikahvíld Meira

Fastir þættir

30. janúar 2025 | Í dag | 62 orð

3930

Að skera sig úr er að stinga í stúf, vera áberandi. Að standa út er að skaga út úr: rörið stóð út (úr veggnum). To stand out: að skaga fram, vera áberandi (stinga í stúf) eða skara fram úr sést nú í seinni merkingunum tveimur: „Hallgrímskirkja … Meira
30. janúar 2025 | Í dag | 209 orð

Af sviðum, rengi og súrum pung og magál

Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstjóri Stuðlabergs með meiru átti afmæli 15. janúar og vaknaði með vísu á vörunum. Fátt er nú mér til meins mun ekki sakna neins; sæll og glaður, sjálfmiðaður, - áttatíu og eins Meira
30. janúar 2025 | Í dag | 179 orð

Báðar tölurnar N-NS

Norður ♠ Á9764 ♥ G7 ♦ 92 ♣ K863 Vestur ♠ K8 ♥ 109843 ♦ G753 ♣ ÁG Austur ♠ 102 ♥ KD62 ♦ KD6 ♣ 7542 Suður ♠ DG53 ♥ Á5 ♦ Á1084 ♣ D109 Suður spilar 4♠ Meira
30. janúar 2025 | Dagbók | 102 orð | 1 mynd

„Mörg tækifæri til að hætta“

Floni gaf út plötuna Floni 3 í október eftir fimm ára bið og heldur stórtónleika í Listasafni Reykjavíkur 21. febrúar. Í Ísland vaknar ræddi hann ferlið og hvernig föðurhlutverkið hefur breytt lífi hans Meira
30. janúar 2025 | Í dag | 33 orð | 1 mynd

Hafnarfjörður Röskvi Máni Hafþórsson fæddist 24. maí 2024 kl. 20.00 á…

Hafnarfjörður Röskvi Máni Hafþórsson fæddist 24. maí 2024 kl. 20.00 á Landspítalanum í Reykjavík. Hann vó 3.996 g og var 54 cm langur. Foreldrar hans eru Hafþór Már Hjartarson og Arndís Jóna Vigfúsdóttir. Meira
30. janúar 2025 | Í dag | 80 orð | 1 mynd

Hafþór Már Hjartarson

40 ára Hafþór ólst upp í Breiðholti en býr í Hafnarfirði. Hann er menntaður margmiðlunarhönnuður og prentsmiður frá Tækniskólanum og starfar sem prentsmiður hjá Háskólaprenti. Áhugamálin eru grafísk hönnun, fiskveiðar og tölvuleikir og svo er Hafþór í hljómsveit þar sem hann spilar á gítar og syngur Meira
30. janúar 2025 | Í dag | 597 orð | 3 myndir

Náði að skyggnast inn í eldgamla tíma

Edda Margrét Jensdóttir fæddist 30. janúar 1955 á Landspítalanum í Reykjavík og ólst upp á Hagamel. Hún dvaldi á sumrin á Hvoli í Borgarfirði eystra frá fimm mánaða aldri til níu ára aldurs. „Þar var hvorki rennandi vatn né rafmagn, hvað þá… Meira
30. janúar 2025 | Í dag | 161 orð | 1 mynd

Skák

1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. Rf3 c5 5. e3 Rc6 6. a3 dxc4 7. Bxc4 cxd4 8. exd4 Rd5 9. 0-0 Rxc3 10. bxc3 Be7 11. He1 0-0 12. Dd3 Bf6 13. Bf4 b6 14. Rd2 Bg5 15. Bxg5 Dxg5 16. He3 Re7 17. Re4 Df5 18. Hf3 Dg6 19 Meira

Íþróttir

30. janúar 2025 | Íþróttir | 78 orð | 1 mynd

Byrjaður að æfa með United á ný

Enski knattspyrnumaðurinn Luke Shaw er farinn að æfa með liði Manchester United á nýjan leik eftir mikla fjarveru í vetur vegna meiðsla. Shaw hefur aðeins náð að spila þrjá leiki með Man. United á tímabilinu, síðast gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni 1 Meira
30. janúar 2025 | Íþróttir | 199 orð | 1 mynd

Ég fékk áhugavert símtal í vikunni. Gamall kunningi kvaðst vera ósáttur…

Ég fékk áhugavert símtal í vikunni. Gamall kunningi kvaðst vera ósáttur við aðkomu Gunnars Magnússonar, fyrrverandi aðstoðarþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta, að leik Íslands og Króatíu á HM á dögunum Meira
30. janúar 2025 | Íþróttir | 83 orð | 1 mynd

Frumraun fyrir Ísland á EM

Júlía Sylvía Gunnarsdóttir og Manuel Piazza urðu í gær fyrst til að keppa fyrir Íslands hönd í parakeppni á Evrópumóti í listhlaupi á skautum. Mótið fer fram í Tallinn í Eistlandi og þau tóku þátt í stutta prógramminu í gær Meira
30. janúar 2025 | Íþróttir | 1323 orð | 4 myndir

Getum ekki alltaf treyst á einstaklingsgæðin

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hafnaði í 9. sæti á heimsmeistaramótinu sem nú stendur yfir í Króatíu, Danmörku og Noregi. Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni, gegn Grænhöfðaeyjum, Kúbu og Slóveníu, og komst áfram í milliriðlakeppnina með fullt hús stiga eða fjögur stig Meira
30. janúar 2025 | Íþróttir | 124 orð | 1 mynd

Heimsmeistarar Danmerkur áfram

Ríkjandi heimsmeistarar Danmerkur höfðu auðveldlega betur gegn Brasilíu, 33:21, í átta liða úrslitum HM karla í handbolta í Ósló í Noregi í gær. Danmörk hefur orðið heimsmeistari í síðustu þrjú skipti Meira
30. janúar 2025 | Íþróttir | 868 orð | 2 myndir

Lengi langað í þetta

Telma Ívarsdóttir, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, tók í síðustu viku stórt skref á ferli sínum þegar hún samdi við skoska félagið Rangers og hélt þannig í atvinnumennsku í fyrsta sinn. Markvörðurinn var samningslaus eftir að hafa orðið… Meira
30. janúar 2025 | Íþróttir | 307 orð | 2 myndir

Ökuþórinn Lewis Hamilton, sem skipti nýverið frá Mercedes yfir til…

Ökuþórinn Lewis Hamilton, sem skipti nýverið frá Mercedes yfir til Ferrari, klessti bifreið sína á æfingu liðsins á Circuit de Barcelona-Catalunya-brautinni í Barcelona á Spáni í gær. Hamilton er ómeiddur eftir áreksturinn Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.