Kaupmannahöfn getur, eftir útkomu Evrópubókar Michelin fyrir árið 2008, fagnað þeim áfanga að vera nú sú borg á Norðurlöndunum sem státar af flestum stjörnustöðum. Alls eru nú ellefu veitingastaðir í Kaupmannahöfn sem hafa verið prýddir...

Kaupmannahöfn getur, eftir útkomu Evrópubókar Michelin fyrir árið 2008, fagnað þeim áfanga að vera nú sú borg á Norðurlöndunum sem státar af flestum stjörnustöðum. Alls eru nú ellefu veitingastaðir í Kaupmannahöfn sem hafa verið prýddir Michelin-stjörnu. Stokkhólmur kemur næstur í röðinni með sjö staði.

Þrír nýir staðir bættust á listann í Kaupmannahöfn í ár og eru það veitingastaðirnir Geranium, Kiin Kiin og Bo Bech at Paustian. Norræni veitingastaðurinn Noma á Íslandsbryggju er þó eftir sem áður sá eini sem getur státað af tveimur stjörnum.

Michelin-stjörnustaðirnir í Kaupmannhöfn eru því nú þessir:

Noma (tvær stjörnur)

Bo Bech at Paustian

(ný stjarna)

Kiin Kiin (ný stjarna)

Geranium (ný stjarna)

Ensemble

Kongs Hans Kælder

Formel B

Era Ora

The Paul

MR

Søllerød Kro.