Eftir Ólaf Guðstein Kristjánsson
Líkt og margir vita hefir Prenzlauer Berg í Berlín mikið aðdráttarafl fyrir listamenn og listunnendur. Hefir þessi borgarhluti verið það bæði á tímum Austur-Þýskalands, sem og eftir sameininguna, þótt áherslurnar hafi verið eitthvað ólíkar. Í Austur-Þýskalandi sáluga var vissulega að finna þar marga listamenn sem stóðu um margt fyrir andófi gegn yfirvaldinu. Andófið var til dæmis að finna í hinum tiltölulega þekktu kirkjum Gethsemanekirche og Zionskirche. En það er önnur saga...
Þessum greinarstúf er nefnilega ætlað að fjalla ögn um Kollwitzplatz í Prenzlauer Berg. Að vísu má auðveldlega tengja téðan stað við list og listamenn. Í nágrenni hans hafa einmitt fjölmargir slíkir aðsetur. Og hvað er órjúfanlegur hluti þess að leggja stund á listsköpun? Jú, það er lífsnauðsynlegt að hafa knæpur, kaffihús og veitingastaði í næsta nágrenni. Hvað það varðar er Kollwitzplatz og nágrenni tilvalinn. En einmitt sakir þess væri ekki úr vegi fyrir svanga og þyrsta íslenska ferðalanga að staldra þar við. Staðarúrvalið er mjög mikið og stemningin er þægileg og vingjarnleg auk þess sem nágrennið er afar aðlaðandi með tilheyrandi garði við Kollwitzplatz sem og nærliggjandi Wasserturmplatz, þar sem gamla vatnsturna er að finna. Svo er líka markaður þarna um helgar.
Góður staður fyrir dragbít
Einnig mætti mæla með því, sé staldrað við yfir helgi, að kíkt sé í „brunch“ á einhverjum staðnum. En slíkt nýtur talsverðra vinsælda meðal Berlínarbúa. Undirritaður gæti meira að segja gerst svo kræfur að mæla með einum; Bar Gagarin við Knackstraße 22/24. Þar er líkt og gefur að skilja rússneskt í öndvegi og flestallt vel útilátið og bragðgott. Mælt skal þó með að komið sé við í tíma, þar sem fljótt vill ganga á birgðirnar.Kollwitzplatz sjálft dregur nafn sitt af hinni þekktu berlínsku listakonu Käthe Kollwitz og er bæði þar að finna styttu af henni, sem og afsteypu af verki hennar Mutterliebe (móðurást). Einnig er þarna rétt hjá hið rómaða Kulturbrauerei . En þar má finna kvikmyndahús, diskó og veitingastaði svo eitthvað sé nefnt. Að auki er skemmtilegur jólamarkaður þar yfir hátíðarnar.
Alltént væri margt vitlausara en koma þarna við, til dæmis einhvern sunnudaginn. Og maður þarf ekkert endilega að vera listamaður eða listunnandi.
Bar Gagarin, Knackstraße 22/24 www.bar-gagarin.de