Parmigiano Parmesanostagerð er vandasamt verk.
Parmigiano Parmesanostagerð er vandasamt verk. — Ljósmynd/ Parma – Musei del cibo
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eftir Hönnu Friðriksdóttur Mikið mæðir á Ítölum þessa dagana og ímynd þeirra út á við hefur ekki verið með besta móti undanfarið.

Eftir Hönnu Friðriksdóttur

Mikið mæðir á Ítölum þessa dagana og ímynd þeirra út á við hefur ekki verið með besta móti undanfarið. Ólestur í ruslmálum í Napólí, allt í hönk í pólitíkinni og innviðir þjóðfélagsins á mörgum sviðum að sligast undan vaxtahamlandi kerfum og gildum. Það er leitt að öll þessi neikvæðni hefur líka bitnað á málaflokkum sem eru að flestu leyti til fyrirmyndar þar í landi, s.s. matvælaframleiðslu og eftirliti með henni og túristaiðnaðinum.

Japanir settu innflutningsbann á mozzarellaost frá Campania-héraði í kjölfar endalausra og miður lystaukandi ruslfrétta þar úr héraði og hótel á Caprí og í Napólíflóa stóðu hálftóm um páskana, en venjulegast er þar krökkt af túristum á þeim tíma. Þrátt fyrir mikið svekkelsi þjóðarinnar með ástandið hafa Ítalir (sem eru nú þekktir fyrir sína léttu lund) þó verið að grínast sín á milli með það og menn talað um að siga hinum „hættulega“ mozzarella frá Campania á fólk sem hagi sér miður vel.

Virðing fyrir hráefninu

Ítalir búa að aldalangri hefð fyrir sérhæfðri framleiðslu landbúnaðarvara heima á bæjum og mikilvægi matarframleiðslu í héraði er gífurlegt og mikil áhersla lögð á hana. Til vitnis um þetta eru hin fjölmörgu upprunavernduðu matvæli DOP sbr. Parmigiano reggiano-osturinn, Parmaskinkan, Campania mozzarella-osturinn, balsamedikið frá Modena, Gorgonzolaostur o.fl. Í þessum efnum gætu Íslendingar og aðrar þjóðir lært mikið af Ítölum.

Ítalir bera mikla virðingu fyrir mat og eru afar stoltir af sínum héraðsbundnu hráefnum og þar með afurðum sem úr þeim eru unnar. Parma er án efa ókrýnd höfuðborg svæðisbundinna gæðaafurða og Matvælaöryggisstofnun EFSA var valið aðsetur í Parma einmitt vegna hins góða orðspors sem af svæðinu fer á sviði matvælaframleiðslu og eftirlits. Allt árið um kring eru haldnir matarviðburðir, svokallaðar „sagre“, í öllum héruðum Ítalíu sem tileinkaðar eru hráefnunum og matarmenningunni í kringum þau. Hver „sagra“ er gjarnan tileinkuð einu hráefni í einu, sbr. hátíð fjallaspergilsins í Piegaro í apríl og Proseccovorsýningarnar í Conigliano og Valdobbiadene.

Matarsöfn og matarmenningarleiðangrar

En Ítalir láta sér ekki nægja að halda hátíðir tileinkaðar sínum frábæru hráefnum og afurðum, heldur helga þeim jafnvel heilu söfnin. Parma hefur vinninginn á þessu sviði, því þar eru fjögur söfn tileinkuð hinum þremur eðlu DOP-afurðum sem eru stolt héraðsins en það eru Prosciutto di Parma (Parmaskinkan), Parmigiano Reggiano (Parmesanosturinn) og Il Salame di Felino (salamípylsan frá Felino). Síðan er þar líka safn tileinkað einu af lykilhráefnum ítalskrar matargerðar, tómatinum.

Matarsöfnin á Ítalíu eru skemmtilegt innlegg í matarmenningu og ferðamannaiðnað landsins. Hér eru sérvalin svæðisbundin matvæli látin njóta sín og saga þeirra rakin í menningarlegu og efnahagslegu tilliti. Með þeim tvinnast matarmenningin á lifandi hátt inn í ferðaiðnað landsins og til verða matar- og víntengdar ferðaleiðir (enogastronomical tourism), en slík tenging hefur verið að ryðja sér braut í æ ríkara mæli undanfarin ár, sbr. tímarit eins og Vogue , Entertaining & Travel , hið bandaríska Food and Travel og hið ítalska Viaggi e Sapori. Matar- og víntengdir leiðangrar, hátíðir og viðburðir eru skemmtileg viðbót við hina klassísku ferðamöguleika, söfn o.fl. sem í boði eru fyrir í hverju héraði.

Heimasíða matarsafnanna í Parma www.museidelcibo.it Fleiri matarsöfn á Ítalíu www.museodellolivo.com www.museodellapasta.itwww.museodelgusto.it Hér er að finna lista yfir allar helstu matarhátíðir og -viðburði, „sagre“, á Ítalíu www.prodottitipici.com/sagre/Maggio/mese.ht