Gísli Guðmundur Ísleifsson hæstaréttarlögmaður fæddist í Reykjavík 18. maí 1926. Hann lést á Kumbaravogi 13. mars 2009. Foreldrar hans voru Ísleifur Árnason prófessor frá Geitaskarði í Langadal og Soffía Gísladóttir Johnsen stórkaupmanns og athafnamanns frá Vestmannaeyjum. Guðmundarnafn Gísla er í höfuð á „Muggi“ hins dáða listamanna og var vitjað í draumi. Systkini Gísla voru Hildur Sólveig og Ásdís, sem báðar eru látnar og Árni. Gísli kvæntist ungur að árum, Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur málarameistara frá Ísafirði og eru börn þeirra Ísleifur flugvirki, Finnbjörn kerfisfræðingur, og Sigríður skrifstofumaður. Gísli og Ragnhildur skildu. Síðari kona Gísla var Fjóla Karlsdóttir. Börn þeirra eru Örn Tryggvi vélvirki, Karl blikksmiður, Sigurður Kolbeinn, iðnrekstrarfræðingur og Guðrún Helga verslunarmaður. Gísli og Fjóla skildu. Gísli ólst upp í föðurhúsum og fetaði í fótspor föður sína og gerðist lögfræðingur og um síðir hæstaréttarlögmaður. Starfaði Gísli um alllangt skeið á lögmannsstofu Ágústar Fjeldsted og Benedikts Sigurjónssonar og varð það hans hlutskipti að verja landhelgisbrjótana. Gísli fór til Montreal í Kanada og lærði „flugmálarétt“ og starfaði svo að því loknu hjá Flugmálastjórn. Hann rak einnig um tíma eigin stofu. Í lokin vann hjá Verðlagsstofnun. Útför Gísla fór fram í kyrrþey.

Gísli bróðir ólst upp í föðurhúsum og fetaði í fótspor föður okkar og gerðist lögfræðingur og um síðir hæstaréttarlögmaður. Hann starfaði um alllangt skeið á lögmannsstofu Ágústar Fjeldsted og Benedikts Sigurjónssonar og varð það hans hlutskipti að verja landhelgisbrjótana, við litla hrifningu þeirra Þjóðviljamanna. Gísli fór til Montreal í Canada og lærði flugmálarétt" og starfaði svo að því loknu hjá Flugmálastjórn. Hann rak einnig um tíma eigin stofu og hlaut virðingu samborgara sinna. Í lokin vann hjá Verðlagsstofnun.

Gísla var margt til lista lagt. Hann lærði og stundaði svifflug. Einnig föndraði hann við frístundamálun og haglega útskorið KR merki hangir upp á vegg eftir hann. Hirðmaður Bakkusar konungs gerðist hann um tíma, sem og fleiri úr báðum þessum ættum. Það var jú stundum gaman en ekki til lengdar og gekk hann því úr vistinni.

Systkini Gísla voru Hildur Sólveig er lést fyrir aldur fram, Ásdís, sem einnig er látin og Árni sem þetta ritar og enn þreyir þorrann. Gísli bróðir var glaðsinna og óáleitinn. Samskipti okkar voru ekki eins mikil og ætla mætti á yngri árum, því undirritaður dvaldi um lengri tíma í sveit, en alltaf hefur verið hlýja og væntumþykja á milli okkar.

Gísli kvæntist ungur að árum, Ragnhildi Guðrúnu Finnbjörnsdóttur málarameistara frá Ísafirði og eru börn þeirra Ísleifur, Finnbjörn og Sigríður, Gísli og Ragnhildur skildu. Síðari kona Gísla var Fjóla Karlsdóttir. Börn þeirra eru Örn Tryggvi, Karl, Sigurður Kolbeinn og Guðrún Helga. Barnabörnin eru ófá, en verða ekki upptalin hér, Gísli og Fjóla skildu.

Fyrir nokkrum árum dró til veikinda hjá bróður mínum, sem birtist í einhverskonar uppgjöf og depurð. Síðustu árin hefur hann dvalið á hjúkrunarheimilum, fyrst á Ási í Hveragerði og síðan á Kumbaravogi, þar hlaut hann góða ummönnun fráb ærs starfsfólks sem hér með er þakkað. Gísli bróðir fékk hægt andlát í stólnum sínum að loknum morgunverði hinn 13. mars, sem áður er sagt. Hvíli hann í friði.

Árni Ísleifsson.