Inga Valborg Einarsdóttir fæddist í Menntaskólanum í Reykjavík 29. nóvember 1928. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans í Reykjavík 1. júlí sl. Foreldrar hennar voru Einar Ástráðsson, héraðslæknir á Eskifirði, f. 6.2. 1902, d. 6.8. 1967, og Guðrún Guðmundsdóttir (Dadda), f. 12.4. 1906, d. 2.10. 1971. Systir Ingu var Brynhildur Björk, f. 1930, d. 2003. Bróðir Ingu var Auðun Hlíðar, f. 1941, d. 2009. Uppeldissystir Ingu var Gunnhildur Eiríksdóttir, f. 1922, d. 2005. Inga giftist 27.5. 1950, Sveini Kjartani Sveinssyni, f. 1.6. 1924, d. 11.9. 2008. Foreldrar hans voru hjónin Sveinn M. Sveinsson, forstjóri Völundar og Soffía Emelía Haraldsdóttir. Ingu og Sveini varð sjö barna auðið: 1) Guðrún, f. 8.10. 1950, d. 2.3.1987, maki Ásmundur Gíslason. Börn þeirra eru a) Guðrún Dadda, f. 1972, maki Brynjólfur Hermannsson, börn þeirra eru Guðrún, Kolbeinn og Kjartan, b) Arna, f. 1975, maki Borgþór Egilsson. Synir þeirra eru Óskar og Heiðar Egill, c) Matthildur f. 1977, maki Hjálmar Sigurðsson. Börn þeirra eru Tómas Orri og Elín Ása, d) Kjartan, f. 1979. 2) Soffía Emelía, f. 25.10. 1951, fyrrverandi maki Ólafur Örn Jónsson, þeirra börn: a) Inga Valborg, f. 1967, maki Einar Eyjólfsson. Synir Einars úr fyrra sambandi eru Steinar og Grétar. Dóttir Ingu með Gunnari Jónassyni er Edda Rún, sambýlismaður Gylfi Björnsson, dóttir þeirra er Júlía Dís b) Freyja Margrét, f. 1975, dóttir hennar er Soffía Líf Freyjudóttir, c) Baldvin Örn, f. 1981, d) Ólafur Örn, f. 1986, sambýliskona Heiðrún Sigurðardóttir. 3) Sveinn Magnús, f. 15.10. 1953, sambýliskona Auður Elísabet Guðmundsdóttir, þeirra dætur eru: Elsa Valborg, f. 1984, Guðrún Tara, f. 1987 og Elísabet Birta, f. 1991. Sonur Sveins og Modestu Gonzales Cano er Ivan Kári, f. 1978, maki Amelia Samuel. 4) Guðmundur Gestur, f. 30.3.1955. Sonur hans og Ásrúnar Ásgeirsdóttur er a) Rúnar Geir, f. 1976, b) sonur hans og Ingu Þóru Stefánsdóttur er Stefán Freyr, f. 1977, sambýliskona Eygló J. Guðjónsdóttur, sonur þeirra er Hlynur Freyr, c) dóttir Guðmundar og Margrétar Ástu Guðjónsdóttur er Halldóra Rannveig, f. 1987, d) sonur hans og Eddu Waage er Steindór Gestur, f. 1998. 5) Einar, f. 3.10. 1956, sambýliskona Arnhild Mölnvik. Börn Einars og Katrínar Theódórsdóttur eru a) Sveinn Kjartan, f. 1982, sambýliskona Dong Huimin, b) Júlíana, f. 1986. Uppeldisdætur Einars, dætur Katrínar Theódórsdóttur af fyrra sambandi, eru Harpa og Ásta Sif Gísladætur, c) sonur Einars og Margrétar Garðars er Daníel, f. 1982. 6) Sigurður Valur, f. 5.3.1959, maki Sigríður Héðinsdóttir, börn þeirra eru: a) Auður, f. 1986, sambýlismaður Helgi P. Ásgeirsson, b) Styrmir f. 1991. 7) Þórlaug, f. 9.12. 1962, maki Guðmundur Vignir Friðjónsson, dætur þeirra eru: a) Salka, f. 1997 og b) Fanney, f. 1998. Sonur Þórlaugar og Júlíusar Hjörleifssonar er c) Jökull, f. 1990, unnusta Aldís Mjöll Helgadóttir. Inga ólst upp á Eskifirði á mjög erilsömu heimili. Hún hélt til Reykjavíkur til náms 1943 og bjó hjá móðurafa sínum og -ömmu. Hún varð stúdent frá MR 1949 og stundaði nám í læknisfræði í HÍ 1949-1950. Inga fór í leiðsögumannanám, m.a. til að svala ferðaáhuga og fróðleiksþorsta. Hún stundaði nám í Röntgentæknaskóla Íslands 1973-1976 og vann við fagið til 1998 og starfaði síðan í 10 ár hjá Krabbameinsfélaginu. Inga verður jarðsungin frá Langholtskirkju í dag, 10. júlí og hefst athöfnin kl. 13.
Sveinn Magnús Sveinsson
Inga Valborg Einarsdóttir móðir mín var víðförul ævintýrakona sem lifði fjölbreyttu lífi og átti marga vini á öllum aldri. Á Eskifirði þar sem hún ólst upp var hún þekkt semI nga læknisins", en faðir hennar starfaði þar til marga ára. Inga var honum ætíð innan handar og þegar mikið lá við og langt var að fara lét hann mömmu keyra, en hún ar góður bílstjóri og fór nokkuð hratt yfir. Hvenær sem við systkinin eigum leið um Austurland standa okkur yfirleitt allar dyr opnar ef við nefnum nafn hennar. Inga var góð við alla og hvar sem hún kom var hún óðara farin að spjalla við bláókunnugt fólk af einlægni og meðfæddum léttleika og jákvæðni. Hún var yfirleitt ekki að velta hlutunum of mikið fyrir sér heldur fylgdi hjartanu og lenti oft í skondnum og skemmtilegum uppákomum. Eitt sinn fór hún í stuttan sunnudagsbíltúr í Reykjavík með Sveini manni sínum og var hún á inniskónum. Ferðin endaði hjá frænku hennar á Seyðisfirði um 10 tímum síðar. Í annað skipti bankaði hún upp á hjá Guðrúnu dóttur sinni á Hornafirði á hagkaupssloppnum, en þá hafði hún skutlað manni austur fyrir fjall og datt í hug að halda bara áfram. Mamma var þekkt sem Inga af Íslandi í Færeyjum þar sem þau hjónin áttu marga vini. Hún fór síðustu ferð sína til Færeyja í tilefni af áttræðisafmæli sínu í fyrra sumar þar sem hún var borin á höndum um víðan völl. Heimili hennar í Sigluvoginum stóð öllum opið sem og sumarbústaðurinn Sveinsstaðir við Elliðavatn og vikum við börnin oft úr rúmum fyrir erlendum gestum eða bændum í kaupstaðaferð, sem margir hverjir voru sérstakir og miklir persónuleikar sem allir elskuðu Ingu. Hún hafði gaman af lífinu og fólki leið vel í návist hennar. Inga var orðin 7 barna móðir 33 ára. Hún hafði sérstaka gáfu og greindi yfirleitt alla sjúkdóma sem herjuðu á hennar fólk rétt og oft skipti það sköpum þegar læknar höfðu haldið öðru fram.
Inga Sveins í Völundi stóð sig einnig vel í forstjórakonu hlutverkinu og fylgdi manni sínum víða um heim sem um íslensk fjöll og firnindi á hestum. 1963 reið hún ásamt Sveini og Þorláki Ottesen vini þeirra þvert yfir landið frá Suðvestri til Austurlands á 25 dögum. Þá var allt trúss og farangur borin á hestunum og sá hún auðvitað um allan mat. Börnin 7 voru í góðu yfirlæti heima í Sigló hjá norskum barnapíum á meðan. Svona var Inga, lét bara vaða eins og sagt er. Það var alltaf mikið líf og fjör í Sigluvoginum og vinir okkar barnanna urðu yfirleitt miklir vinir mömmu. Oft voru þeir í góðu yfirlæti inni á kontór með mömmu þegar maður kom heim úr skóla eða vinnu. Pabbi kunni vel að meta hvatvísi konu sinnar og ævintýraeðli, en nóg fannst honum um þegar þau voru á ferð í Mexíkó og hún komin á sjötugs aldur, er hún ákvað að prófa að láta draga sig upp í fallhlíf sem dregin var af hraðbáti. En Inga lét vaða, hljóp af stað á ströndinni, fleytti nokkrar kerlingar á haffletinum og sveif svo yfir vötnum Kyrrahafsins og ljómaði.
Þegar hún var 43 ára skellti hún sér í Röntgentækniskólann. Hún passaði vel inn í nemendahópinn þrátt fyrir talsverðan aldursmun. Ein bekkjarsystir hennar minnist þess þegar mamma gekk fyrst inn í skólastofuna í bleikum terlínbuxum og með hárkollu, datt þeim ekki í hug að hún ætti eftir að verða aðal forsprakkinn í félagslífinu og heimili hennar aðal samkomustaðurinn, en þannig varð það. Mamma las og las á meðan kartöflurnar og fiskurinn voru að sjóða og náði næst hæstu einkunn. Inga var mikið náttúrubarn og kynntist landinu bæði í hestaferðum og í starfi sínu þegar hún fór um landið í 10 ár og myndaði fyrir Krabbameinsfélagið. Eftirsóknarvert var fyrir samstarfsfólk að fara með henni í slíkar ferðir því alls staðar var þeim boðin frí gisting hjá vinum og kunningjum og var því hægt að finna betri not fyrir dagpeningana en eyða þeim í hótelkostnað. Hún tók ekki aðeins röntgenmyndir á ferli sínum heldur var einnig mikil áhugamanneskja um ljósmyndun og skilur eftir ómetanlegar minningar í hátt í 200 ljósmyndaalbúmum og á 5000 skyggnum. Hún hafði líka unun af garðrækt og var alltaf jafn spennt á vorin að sjá hvað kæmi upp í garðinum í Sigluvoginum af því sem hún sankaði að sér á ferðum sínum og hafði sett niður. Hún stundaði einnig talsverða trjárækt við sumarbústað þeirra í landi Grímsstaða, Skollhól þar sem þau eyddu mörgum stundum og stórfjölskyldan kom saman. Ingu var umhugað um öll börnin og barnabörnin sem hrifust snemma af mannlegum eiginleikum hennar og vílaði hún ekki fyrir sér að fara til Ameríku eða Þýskalands til að vera viðstödd fæðingu sumra barnabarna sinna, en alltaf tók hún þátt í slíkum stórviðburðum.
Þær eru margar góðar minningarnar og sögurnar af Ingu Valborgu og er ég glaður og þakklátur yfir að hafa átt svona lifandi og skemmtilega móður. Hún hafði einstakt lag á að sjá björtu hliðarnar í lífinu og hafði mikinn húmor fyrir sjálfum sér. Í þrítugsafmæli eins af fjölmörgum barnabörnum sínum fyrir stuttu var haft á orði hvað hún væri skvísulega klædd. Þegar hún kom heim hringdi hún óðara í mig og kom varla upp orði fyrir hlátri, því pilsið sem hún hafði ætlað í lá á stólbaki í stofunni. Maður gat alltaf leitað til mömmu varðandi ættfræði, bókmenntir, landafræði eða heilsufarsmál, alltaf var hún með svörin.
Sveinn og Inga. Í margra huga hljóma þessi nöfn sem eitt. Sveinn lést í september síðastliðnum og nú eru þau saman á ný ásamt elstu dóttur sinni sem lést löngu fyrir aldur fram. Það var yndisleg upplifun að verða vitni að því rétt áður en hún lagði í sína hinstu ferð þegar hún sagði þau hafa birst sér og væru að bíða eftir henni. Svipurinn og faðmlagið sem fylgdi á eftir gaf svo sterkt til kynna að hún væri sátt og hlakkaði til ferðarinnar og endurfundanna framundan. Góða ferð kæra móðir og takk innilega fyrir mig.
Glaður og reifur skyli gumna hver,
uns sinn bíður bana.
( Hávamál.)
Sveinn M. Sveinsson og fjölskylda.
Fallin er frá mikil og merkileg kona, tengdamóðir mín Inga Valborg Einarsdóttir. Ég kynntist Ingu fyrir 16 árum þegar ég og Þórlaug dóttir hennar kynntumst. Þá var Inga 65 ára.
Inga var ákaflega vel liðin af öllum sem þekktu hana. Ég hef stundum velt því fyrir mér hvað það var í fari hennar sem gerði hana svona vinsæla. Hún var einstaklega vel gefin, víðlesin og minnug á alla hluti. En umfram allt var hún skemmtileg. Inga var mjög félagslynd og naut sín best í góðra vina hópi. Hún ferðaðist mikið bæði innanlands og utan og fóru þau hjónin í ótal hestaferðir um landið. Hún var opin og ræðin og átti auðvelt með að kynnast nýju fólki.
Þessir eiginleikar gerðu það m.a. að verkum að hún var alltaf að upplifa skemmtilega atburði sem síðar urðu efni í skemmtilega frásögn.
Það var alltaf gaman að fá Ingu í heimsókn. Þá komu sögurnar hver af annarri. Inga hafði einstakt lag á fólki. Hún hrósaði mikið og sýndi fólki mikinn áhuga. Þess vegna var svo gaman að gleðja hana. Ég hélt t.d. á tímabili að ég væri besti kokkur í heimi.
Það var sérstaklega gaman að ferðast með Ingu til Færeyja á síðasta ári. Hún átti marga góða vini þar sem annarsstaðar og var henni hvarvetna höfðinglega tekið. Mér leið stundum eins og hirðmanni drottningar í þeirri ferð. Sveinn K. Sveinsson eiginmaður Ingu lést í september á síðasta ári. Blessuð sé minning þeirra hjóna.
Guðmundur V. Friðjónsson.
Hljóð og tóm er hjartans borg.
Heimsins svipur breyttur er.
Andi minn hann á ei sorg.
Alltaf lifir þú hjá mér
(Einar Benediktsson.)
Minningarnar streyma fram í huga mér. Ekki í réttri röð, en þær eru svo
margar.
Mín fyrsta minning af þér er í stóra hvíta tjaldinu, sem hafði engann botn.
tjaldið var fullt af hnökkum, beislum, trússtöskum og öllu því sem fylgir
hestaferðalagi. Tjaldið var á Skógarhólum og þú og amma Birta þarna inni að
smyrja haug af brauði fyrir öll börnin sem þið áttuð og hin sem fylgdu
með.
Það var mikið fjör, ég var nú samt smá smeyk við þig því þú varst með
gleraugu.
Það var aldrei nein lognmolla í kringum þig.
Ég er lánsöm að hafa átt þig að.
Ég votta aðstandendum og vinum Ingu djúpa samúð.
Takk fyrir allt.
Birta.
Það er primusmótor i þessum bekk þrumaði skólastjóri Röntgentæknaskóla Íslands yfir okkur nemendum haustið 1973. Við vissum ekki alveg hvað hann var að fara alveg strax en við áttuðum okkur fljótt á því. Inga Valborg var primusmótorinn okkar frá fyrsta degi. Hún var ein þeirra kvenna sem braut blað með því að setjast á skólabekk 45 ára gömul þegar yngsta barnið hennar af sjö var 12 ára. Inga var eldklár, ótrúlega hress og hláturmild. Hún var mamma okkar, amma okkar, systir, sálusorgari og allt þar á milli. Hún hafði endalausa orku og lífskraft. Sigluvogurinn varð annað heimili okkar allra. Eitthvert okkar virtist alltaf vera í heimsókn og oft var allur hópurinn saman kominn þar. Trúlega var oft lítið eftir í ísskápnum þegar heimilisfólk kom heim eftir hópheimsóknir okkar.
Á sólríkum sumardegi var allur hópurinn í sundlauginni og liðið var á daginn þegar Sveinn, maður Ingu, kom heim með viðskiptafélaga og spurði Ingu hvort hún væri ekki tilbúin. Hún átti að fara með honum út að borða með erlendum viðskiptavinum. Inga fullvissaði hann um að hún hefði ekki gleymt neinu, snaraði sér í kjól, setti á sig varalit, kom út að sundlaug og sagðist aldrei hafa lært að vera forstjórafrú. Hún fór og bað okkur að loka húsinu þegar við færum. Viðskiptavinirnir fengu sögu yfir kvöldverði um prófessora á Íslandi sem kenndu gjarnan í görðum á góðviðrisdögum. Þeir væru svo frjálslyndir og þennan dag hefðu þeir komið heim til hennar og kennt í sundlauginni. Hláturinn ískraði í Ingu þegar hún sagði okkur að þeir hefðu trúað þessu.
Inga var af þeirri kynslóð sem lærði aldrei hvað orðið erfitt þýðir. Ekki heldur leiðinlegt eða að vera þreytt. Hún var komin á fætur fyrir allar aldir og fór síðust i rúmið. Þegar eitthvert okkar þurfti á félagsskap að halda eða einhvern sem nennti að hlutsta var farið til Ingu. Hún fór á fætur, þess vegna um miðja nótt, gaf kaffi, hlustaði og viðkomandi gisti gjarnan.
Inga virtist geta gert allt í einu. Hún elskaði börnin sín út af lífinu og var stolt af þeim og barnabörnum. Hún átti fósturbörn af ýmsum gerðum og stærðum, hún sinnti öldruðum ættingjum og vinum um allt land. Hún fór í hestaferðir, ferðaðist til útlanda, tók slátur, úrbeinaði kjöt, eldaði og bakaði. Húsið var alltaf fullt af fólki, gestum og gangandi.
Við vorum mjög lánsöm að fá Ingu Valborgu í bekkinn okkar og fá að eiga hana að því það eru ekki til mörg eintök af slíku fólki. Hún hélt að sjálfsögðu útskriftarveislu fyrir bekkinn og fylgdist alltaf með okkur öllum eftir að skólanum lauk. Það voru okkar forréttindi að kynnast Ingu; hún gerði okkur að betri einstaklingum og betri vinum.
Að leiðarlokum kveðjum við Ingu Valborgu með ást, virðingu og þakklæti fyrir allt sem hún gaf okkur.
Ástvinum hennar öllum vottum við okkar dýpstu samúð.
Bekkjarfélagar frá Röntgentæknaskóla Íslands 1973-1976.