Martin fæddist í Reykjavík 12.11. 1943. Hann lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 22. desember.s.l. Foreldrar Martins voru Bryndís Óskarsdóttir Meyer f. 21.12. 1922, d. 30.1. 2001 og Gerhard Meyer f. 15.9. 1909, d. 13.6. 1981. Bróðir Martins var Þráinn Birgir Meyer f. 24.2. 1956, d. 24.3. 2001. Martin giftist Unni Halldórsdóttur og eignuðust þau 2 börn, Bryndísi og Halldór. Þau skildu. Áður átti Martin eina dóttur, Ester. Börn Martins eru: Ester Martinsdóttir f. 29.4 1968, maki Vernharð Guðnason og börn þeirra eru Baldvin, Sigrún og Guðrún. Bryndís Liv Meyer f. 7.6. 1969, sambýlismaður Jón Indriði Þórhallsson. Börn Bryndísar eru Sandra Liv Sigurðardóttir og Jón Gísli Sigurðsson. Halldór Gerhard Meyer f. 22.6. 1970, sambýliskona Sif Svavarsdóttir og synir þeirra eru Kári, Logi og Máni. Útförin verður gerð frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 5. janúar og hefst athöfnin kl. 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði.

Minningargrein:

Með þessum orðum vil ég minnast föður míns, hans Martin Max Wilhelm

Meyer. Mamma og Pabbi skildu þegar ég var tveggja ára. Hann flutti til

Noregs þar sem hann bjó í nokkur ár en flutti síðan til Danmerkur og

bjó þar allar götur síðan fyrir utan 18 mánaða tímabil sem hann bjó á

Íslandi. Fjarlægðin á mili okkar varð til þess að lítið samband var á

milli okkar og urðum við ekki eins nánir og maður hefði viljað. Við

Bryndís systir heimsóttum hann þó tvisvar til Óðinsvé þar sem hann

bjó. Voru það í bæði skiptin eftirminnilegur og yndislegur tími sem

við áttum með honum. Einnig kom það fyrir að hann kom í heimsókn til

Íslands og áttum við með honum góðar stundir. Á ungaaldri er maður

ekki mikið að velta sér upp úr hlutunum. Þeir eru bara eins og þeir

eru og við því er ekkert að gera. Lítið sem ekkert samband var á milli

okkar frá því að ég var 9 ára til 19 ára. Þá ákvað hann að selja

búgarð sem hann átti úti og flytja heim. Það má segja að ég hafi

kynnst pabba mínum þá. Við hittumst reglulega og áttum oft mjög gott

spjall. Ég kynntist yndislegum manni sem var bæði fróður, hlýr og

hafði mikla kímnigáfu. En á sama tíma þá áttaði ég mig á því að pabbi

átti við geðhvarfasýki að stríða. Á þessum tíma sem pabbi bjó heima á

Íslandi var hann og hans persónuleiki heltekin af sýkinni. Hann hafði

verið að vinna sig út úr áfengissýki í gegnum samtök AA en það sem kom

í ljós var að áfengissýki var bein afleiðing af geðhvarfasýkinni sem

lítill skilningur var á, á þeim tíma. Það sem verra var að kerfið á

Íslandi brást honum nánast algjörlega og hafði hann engan aðran kost

en að flytja aftur út til Danmerkur sem má segja að hafi verið nokkrum

skrefum á undan okkur í meðhöndlun á veikinni. En eftir að hann flutti

aftur út, tók við annar eins kafli þar sem við höfðum lítið samband.

En svo kom að því að ég flutti sjálfur út til Danmerkur í nám og þrátt

fyrir að við byggjum á sitt hvorum endanum á Danmörku þá höfðum við

töluvert samband og bauð hann mér nokkrum sinnum upp til Struer þar

sem hann þá bjó. Þar kynntist ég Signe sem má segja að hafi verið

síðasta ástkona hans í lífinu og til fjölda ára. Þau bjuggu í fallegu

húsi með stórum garði. Pabbi hafði alltaf haft mikinn áhuga á garðrækt

og bar garðurinn þess merki. Fallegri garð hafði ég varla séð. Enn og

aftur áttum við góðum tíma saman. Við gátum talað opinskátt um

veikindi hans, um samband okkar og sambandsleysi og það sem var

mikilvægast var að við vildum báðir byggja upp traust samband á milli

okkar. Ég flutti heim til Íslands og eftir það héldum við góðu

sambandi þó svo að það hafi nánast eingöngu verið í gegnum síma. Hann

setti sig vel inní mín mál og sýndi strákunum okkar Sifjar mikinn

áhuga og talaði við þá oft á tíðum. Hann hafði náð má segja fullum

bata af veikindum sínum og átti pabbi mörg góð ár áður en hann lést.

Hann greindist með sykursýki 2 fyrir um hálfu ári og tók hann því eins

og hverju öðru viðfangsefni í sínu lífi. En tveimur mánuðum seinna

uppgötvaðist krabbamein í lifrinni og í briskirtli. Kom það fljótlega

í ljós að ekki yrði ráðið við meinið og honum ekki gefinn langur tími.

Hann tók fréttinni með eindæma ró, yfirvegun og æðruleysi. Hann hófst

handa við að ganga frá og selja húsgögn, pakka niður öllum eignum

sínum og flytja til Íslands til að kveðja sitt fólk. Mánuðurinn sem

pabbi átti hér heima var honum dýrmætur og eins fyrir okkur systkinin

og vinina. Ég átti margar stundir þar sem ég sat við hlið hans og við

ræddum gömul mál og ný. Á þessum tíma fann ég hvað virðing mín og

væntumþykjan fyrir honum óx með hverjum degi. En svo fór að hann fann

að hann átti ekki mikið eftir, skipulagði sína eigin jarðaför og

lagðist til hvíldar. Í dag er ég fyrst og fremst glaður yfir að hafa

þá mynd af föður sem veitir mér hlýju og ró. Honum er ég þakklátur

fyrir að kenna mér visku um fyrirgefningu, fordóma og auðmýkt.

Starfsmönnum Landspítalans bæði á Hringbraut og á líknardeild vil ég

þakka fyrir góða umönnun á meðan hann dvaldi þar.