Árni Sigurðarson fæddist í Reykjavík 7. janúar 1977. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 18. nóvember 2012. Foreldrar Árna eru Sigurður Árnason krabbameinslæknir, f. 10.4. 1949, og Helga Erlendsdóttir, lífeindafræðingur og klínískur prófessor, f. 5.12. 1949. Foreldrar Sigurðar voru Árni Böðvarsson, f. 15.5. 1924, d. 1.9. 1992, og Þórunn Ágústa Árnadóttir, f. 29.7. 1906, d. 8.11. 1997, en foreldrar Helgu voru Erlendur Einarsson, f. 30.3. 1921, d. 18.3. 2002, og Margrét Helgadóttir, f. 13.8. 1922, d. 2.8. 2010. Systkini Árna eru 1) Þorgerður Sigurðardóttir læknir, f. 19.12. 1971, gift Sveinbirni Dagnýjarsyni guðfræðingi, f. 15.1. 1970. Börn þeirra eru Einar Tómas, f. 1999, Helga Ísold, f. 2002, og Hilma Soffía, f. 2010. 2) Margrét Ágústa Sigurðardóttir lögfræðingur, f. 16.11. 1983, sambýlismaður Ólafur Sigurjónsson, nemi og múrari, f. 16.7. 1977. Dóttir þeirra er Matthildur Helga, f. 2010. 3) Sigurður Orri Sigurðarson flugnemi, f. 23.4. 1990, unnusta hans er Hulda Long, nemi í flugumferðarstjórn, f. 22.12. 1990. Árni kvæntist 7. ágúst 2004 æskuástinni, Ínu Ólöfu Sigurðardóttur kennara, f. 15.10. 1976, en þau hófu samband sitt í september 1994. Ína er dóttir hjónanna Sigurðar Sigurðssonar húsgagnasmíðameistara, f. 26.4. 1950, og Svölu Sigurgarðarsdóttur, f. 31.3. 1950. Bræður Ínu eru 1) Sigurður Stefán Sigurðsson rafeindavirki, f. 14.8. 1974, í sambúð með Jagodu Maríu Optolowicz þýðanda, f. 10.3. 1971, dætur Jagodu eru Melkorka Guðbjörg, Mollý Ingibjörg og Hanna Þóra, f. 1999. 2) Bjarmi Freyr Sigurðsson húsgagnasmiður, f. 6.4. 1983. Árni og Ína eignuðust þrjú börn: Marín, f. 19. apríl 2002, d. 19. apríl 2002, Selmu Lind, f. 26. maí 2003, og Sigurð Bjarma, f. 9. maí 2007. Fyrstu mánuði ævi sinnar bjó Árni, ásamt foreldrum sínum og eldri systur, á Seyðisfirði en haustið 1977 flutti fjölskyldan búferlum til Svíþjóðar, þar sem foreldrarnir stunduðu nám og störf, lengst af í Uppsölum. Síðsumars 1983 flutti fjölskyldan heim til Íslands og bjó í fyrstu á Tómasarhaga en síðar í Faxaskjóli þar sem foreldrar Árna búa enn. Árni stundaði grunnskólanám í Melaskóla og Hagaskóla en lauk síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1997. Frá þriggja ára aldri var Árni staðráðinn í að verða flugmaður. Hann hóf flugnám samhliða menntaskóla og lauk einkaflugmannsprófi 1996. Atvinnuflugmannsprófi lauk hann 1999. Árni vann hjá Flugmálastjórn Íslands árin 2000-2004 og frá 2004 starfaði hann sem flugmaður hjá Icelandair uns hann lét af störfum vegna veikinda haustið 2010. Árni ólst upp í Vesturbæ Reykjavíkur en flutti ásamt eiginkonu og börnum á núverandi heimili þeirra í Klausturhvammi í Hafnarfirði haustið 2007. Útför Árna Sigurðarsonar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 30. nóvember 2012, og hefst athöfnin klukkan 13.

Þú varst fádæma gleðigjafi, gamansamur og gráglettinn.

Þú varst með góða nærveru og fagmaður fram í fingurgóma.

Þú varst fyrirmynd í leik og starfi, smekkvís og kurteis.

Þú varst umfram allt góður félagi.

Þín veður sárt saknað mikli snillingur.

Votta aðstandendum samúð frá hjartarótum.

Jóhann Engilbertsson.