Sigtryggur Sigurðsson fæddist í Reykjavík 1. mars 1946. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 2. desember 2014.
Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir húsmóðir, f. 14. maí 1913, d. 28. mars 2004, og Sigurður Sigtryggsson, f. 25. október 1913, d. 5. júní 1987. Sigtryggur ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík og bjó þar alla tíð. Sigtryggur lærði málaraiðn og starfaði sem málarameistari með eigið fyrirtæki. Hann stundaði íþróttir sem ungur maður, einkum glímu, og var sigursæll í þeirri grein.
Vann hann oftar en einu sinni Grettisbeltið, einnig sjö sinnum Skjaldarglímu Ármanns og varð glímukóngur Íslands.
Skákin var honum hugleikin og stundaði hann hana alla tíð. Hann var mikill bridsspilari og tók þátt í mörgum keppnum og var í landsliðinu í brids. Sigtryggur var ókvæntur og barnlaus.
Útför Sigtryggs fer fram í Neskirkju í dag, 15. desember 2014, og hefst athöfnin kl. 15.
Kveðja frá Smámeistaraklúbbnum
Sigtryggur Sigurðsson var einn af stofnendum Smámeistaraklúbbsins
haustið 1963 ásamt undirrituðum, Jóhannesi Birni, Gunnari Inga, Jóni
Guðmari og Snorra Þorvalds. Sigtryggur var fremstur meðal jafningja og
rúllaði okkur hinum upp enda geysilega sókndjarfur og lét vaða á súðum eins
og Bragi Kristjáns. Hann réðst á kónginn af álíka hörku og Skagamenn á
markið í gamla daga nema hvað Sigtryggur var auðvitað innvígður KR-ingur!
Æfingar fóru fram á Barónsstíg 49/51 hjá undirrituðum, Hverfisgötu 32 hjá
Jóhannesi, Laugalæk 1 hjá Guðjóni Magg og síðast en ekki síst á Melhaga 9,
æskuheimili Sigtryggs. Keppnisharka Sigtryggs var með ólíkindum og þegar
móðir hans kom með ljúffengt bakkelsi inn í skáksalinn handa soltnum
smámeisturum varð hún að vera snögg til þess að trufla ekki einbeitingu
sonarins!
Hann sagði líka frá ýmsum viðureignum sínum á fjálglegan hátt t.d. þegar
hann mátaði Geirlaug kyrfilega í horninu! Ógleymanlegt er einnig þegar
þeir Sigtryggur og Helgi Hauksson guðuðu á gluggann á Barónsstíg 51 um
miðnæturskeið haustið ´65, nýkomnir af skákæfingu hjá Taflfélaginu. Þeir
tjáðu undirrituðum þau stórtíðindi að Sigtryggur hefði lagt alla
andstæðinga sína að velli í tvígang m.a. Sigga Jóns og sjálfan Inga R!
Þegar þeir Siggi og Ingi R. voru að fara yfir skák sína og Sigtryggur kom
með fyrirspurn um betri leik í stöðunni svaraði Ingi R stráklingnum:
Varstu að tala við mig! Vert er að geta þess að Helgi Hauks var á þessum
tíma áhaldavörður hjá Taflfélaginu sem kom sér oft vel ef vantaði töfl og
klukkur á smámeistaramótum!
Með tíð og tíma bættust fleiri í hópinn og smámeistarar náðu góðum árangri
á skákmótum; a.m.k. þrír félagar okkar tefldu í Landsliðsflokki Jón G.
Briem, Bragi Halldórsson sem varð meira að segja Norðurlandameistari í
hraðskák ´71 og Harvey Georgsson, hinn mikli meistari, sem einnig tefldi í
Alþjóðlega Reykjavíkurmótinu 1972 og náði þá jafntefli við stórmeistarann
Raymond Keene. Jón Múli sagði í hádegisfréttum daginn eftir: Jafntefli
gerðu Englendingarnir Harvey og Keene! Þá tefldi Jóhannes Björn á
Evrópumóti unglinga 1969 í Hollandi og var jafnan nefndur Hollandsfarinn
eftir það og Sigtryggur gaf honum nafnið Johnny Ludvigs! Jóhannes tefldi
um sæti í Landsliðsflokki við öðlinginn Stefán Þormar en tapaði naumlega.
Gunnar Birgisson Kópavogsjarl var grjótharður hraðskákmaður og settur í
sérstakar æfingabúðir hjá smámeisturum til þess að berja á þeim hörðustu
og gerði það!
Sigtryggur sagði að mestu skilið við taflið þegar fram liðu stundir og
sneri sér að brids og varð einn besti bridspilari landsins og margfaldur
Íslandsmeistari með sveit sinni. Þá varð hann snemma glíminn og ákaflega
sigursæll. Sigtryggur var ekki að tvínóna við hlutina heldur hlóð hann
andstæðingum sínum jafnan á mettíma enda heyrðist um árabil Stigið
Sigtryggur vann á öldum ljósvakans þegar glímumótum var lýst. Stefið varð
seinna frægt í einu sönglagi Þursaflokksins.
Margar skemmtilegar minningar koma upp í hugann við leiðarlok. Þegar
smámeistarar fengu sér pylsu og kók í Hagavagninum og voru að ljúka við
eina með öllu var Sigtryggur búinn að sporðrenna 3-4 enda mikill á velli og
þurfti staðgóða næringu. Sigtryggur vann til verðlauna á Skákþingi Íslands
1964. Hann hringdi í mig og bað mig að taka við verðlaunum í hans stað þar
sem hann ætti ekki heimangengt. Það var auðvelt að verða við þeirri bón en
fyrsti maður sem mætti í Breiðfirðingabúð var auðvitað Sigtryggur enda 1.
apríl! 1966 héldu nokkrir smámeistarar í Þórsmerkurferð um
verslunarmannahelgi á Willis ´53 Ísraelsjeppa. Í ferðinni vorum við
Sigtryggur, Steini Steingríms, smámeistari og ef mig misminnir ekki Snorri
Þorvalds. Við lögðum af stað vel nestaðir í mat og drykk og ókum Þrengslin
austur vegna þess að löggan beið á Kambabrún til að góma ungmenni sem voru
á leið á útihátíð og gerði áfengi upptækt. Komumst síðan klakklaust yfir
Krossá inn í Langadal og gæddum okkur á skrínukosti mæðra vorra. Við minni
spámenn drukkum límonaði með kæfubrauðinu en glímukappinn renndi
hangiketsflatkökum niður með óblönduðum sjeníver! Það þótti okkur
hraustlega gert. Engin taflmennska var iðkuð á svæðinu nema ef vera skyldi
að einhverjir hróksleikir hafi verið leiknir í kjarrinu!
Sigtryggur Sigurðsson var stórbrotinn karakter, stundum hrjúfur og snöggur
upp á lagið en fyrir innan skrápinn sló hjarta úr skíra gulli. Hann var
skarpgreindur, vel lesinn og ágætlega að sér í fornsögunum enda sjálfur
fornmaður í besta skilningi þess orðs. Sigtryggur var sjálfkjörinn
formaður hátíðarnefndar á 50 ára afmæli Smámeistaraklúbbsins haustið 2013
þar sem blásið var til skákmóts með þátttöku smámeistara auk tveggja gesta
af eldri kynslóð meistara; þeirra Jóns Kristinssonar og Jónasar
Þorvaldssonar sem tefldu í ólympíuliði Íslands í Varna í Búlgaríu 1962.
Sigtryggur var skákstjóri þar sem hann var búinn að leggja taflmennina á
hilluna. Af meðfæddum höfðingsskap bauð hann til herlegrar matarveislu að
móti loknu. Í veislunni rifjuðu menn upp skemmtileg atvik yfir taflborðinu
og hermdu sögur af kostulegum kynjakvistum meðal skákmanna í gegnum
tíðina.
Smámeistarar kveðja góðan félaga og þakka Sigtryggi Sigurðssyni ljúfa
samfylgd og trausta vináttu.
Gunnar Finnsson.