Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson: "Bæn í Jesú nafni er ekki spurning um orðalag heldur hjartalag. Hún er æfing í trú og trausti, von og kærleika."

Hvernig er það, kannt þú ekki örugglega að biðja?

Það er einmitt það. Ég kann það nefnilega ekki og það sem meira er að ég veit varla hvað bænin er eða hvernig hún virkar.

Hitt er annað mál að ég gríp daglega til hennar og segja má að ég lifi í bæn. Ég get því vitnað um það af því að ég hef upplifað það sjálfur að mér finnst gott að hvíla í bæninni og meðtaka friðinn og lausnina sem hún veitir.

Ekki eins og innkaupalisti

Að biðja í Jesú nafni er ekki að viðhafa orðagjálfur eða að setja sig í ákveðnar stellingar. Og það er ekki að klína nafni frelsarans aftan við einhvern innkaupalista sem hugsaður er upp í nútíð út frá þröngsýnum þörfum.

Bæn í Jesú nafni er að biðja um vilja Guðs, hið góða fagra og fullkomna. Hugur Guðs, kærleikur, friður og náð er nefnilega meiri, dýpri og stórkostlegri en hugarafl okkar nær utan um. Hann sér lengra, dýpra og hærra en okkar augu og hugur.

Bæn í Jesú nafni er ekki spurning um orðalag heldur hjartalag. Hún er lífsstíll, spurning um hugarfarsbreytingu.

Ekkert betra

Mér finnst ekkert betra en mega treysta höfundi og fullkomnara lífsins fyrir draumum mínum, væntingum og þrám. Treysta honum fyrir áhyggjum mínum og biðja hann að bera þær með mér og jafnvel létta þeim af mér.

Það sem mestu máli skiptir er að Jesús hefur sjálfur boðist til að biðja fyrir okkur. Það er að segja þeim sem þiggja vilja. Þar sem hann bíður okkar á himnum ásamt kærleikans Guði sem líknar og læknar, reisir við og gerir alla hluti nýja.

Æfing í trú, von og kærleika

Bænin er æfing í trú og trausti, von og kærleika. Hún er kvíðastillandi og streitulosandi. Hún skerpir einbeitinguna, veitir huganum ró og hjartanu frið. Hún auðveldar ævigönguna og stillir okkur af svo markmið okkar verða skýrari.

Með bæninni tökum við að sjá okkur sjálf, umhverfi og samferðamenn í nýju ljósi. Bænin styrkir fjölskyldubönd. Samkennd vex. Umburðarlyndi og virðing eykst og umhyggjan dýpkar. Bænin er góð forvörn og besta áfallahjálpin. Hún er sem græðandi smyrsl. Henni fylgir uppörvun og hvatning til góðra verka.

Í bæninni drögum við að okkur fegurð lífsins sem sprottin er af ást Guðs.

Býðst til að anda á okkur

Höfundur og fullkomnari lífsins vill fá að anda á okkur. Móttökum anda hans og leyfum honum að leika um okkur, dag hvern. Biðjum að hvert okkar fótmál, andardráttur og æðarslag verði ein samfelld lofgjörð til lífsins. Sjálfum okkur til heilla og hamingju, samferðafólki til blessunar og þar með Guði til dýrðar.

Biðjum hann að tendra ljós í lífi okkar, sitt eilífa ljós sem aldrei slokknar. Ljós sem lýsir okkur veginn heim í himininn þegar yfir lýkur.

Bæn

Almáttugi eilífi Guð!

Miskunna þú mér. Vertu mér syndugum náðugur. Líknaðu mér og læknaðu mig og leyfðu mér að lifa í kærleika, friði og sátt við þig, sjálfan mig og alla menn. Gefðu að ég fái að vera farvegur kærleika þíns og fyrirgefningar, friðar og fagnaðarerindis. Fái að vera þér til dýrðar og fólki til blessunar.

Blessaðu fólkið mitt allt, sem ég nefni nú með nafni...

Vaktu yfir þeim, gefðu þeim frið í hjarta, verndaðu þau og varðveittu. Einnig legg ég öll þau mál sem upp í huga nn koma, áhyggjur mínar, væntingar, drauma og þrár í þínar hendur samkvæmt þínu boði í trausti þess að þú munir vel fyrir sjá.

Andaðu stöðugt á mig og yfirgefðu mig aldrei. Styrktu mig með mætti þínum og fylltu mig af anda þínum. Fylltu huga minn af orðum þínum svo hann verði skýr. Fylltu hjarta mitt af kærleika þínum svo það verði hreint og sál mína af lífi þínu svo ég eignist frið. Djúpan og varanlegan frið svo ég finni til öryggis og líði vel.

Alls þessa leyfi ég mér að biðja þig kvölds og morgna, um miðjan dag og jafnvel nætur, samkvæmt þínu boði. Í frelsarans, Jesú nafni. Amen.

Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

Höf.: Sigurbjörn Þorkelsson