Ragnar fæddist í Reykjavík 21. september 1940. Hann lést á Hrafnistu í Keflavík 30. desember 2018.
Foreldrar hans voru Henrik W. Ágústsson, prentari og prentsmiðjustjóri í Reykjavík, f. 19. mars 1905, d. 11. nóvember 1966, og Gyða Þórðardóttir, talsímakona í Reykjavík, f. 19. febrúar 1910, d. 25. maí 2003.
Systkini Ragnars voru: Nanna Guðrún hjúkrunarfræðingur f. 13. júní 1938, d. 16. janúar 1998, og Þórður Ágúst prentari f. 27. júní 1942. Uppeldissystir Ragnars var Guðrún Björgvinsdóttir en þau voru systkinabörn og hún var alltaf sem systir okkar systkinanna, f. 10. september 1931, d. 29. nóvember 1978.
Eftirlifandi kona Ragnars er Jórunn Erla Stefánsdóttir sjúkraliði, f. 28. júní 1948. Þau gengu í hjónaband hinn 17. febrúar 1990. Faðir hennar var Stefán Júlíus Ísaksson, f. 2. júní 1915 á Raufarhöfn, d. 15. desember 1991, verkamaður í Reykjavík. Móðir hennar var Sigurbjörg Jóhannesdóttir, f. 4. mars 1914 á Akureyri, d. 12. júlí 1973, húsfreyja.
Ragnar ólst upp í Reykjavík. Hann lærði prent hjá föður sínum í PÁS prentsmiðju og vann við fagið stærsta hluta ævi sinnar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
Eg veit einn
að aldrei deyr:
dómur um dauðan hvern.
(Úr Hávamálum)
Ragnar æsku vinur minn og ferðafélagi fór á vit forfeðra sinna þegar sólin
var að byrja nýtt ár svo hann nær því fullum byr inn í nýtt sólarár og hver
veit nema á hinum forna fley goðana sem kallaður er Sólfara.
Ragnar var ekki nema 78 þegar hann kvaddi og ekki er langt síðan við vorum
að ferðast saman félagar á nýjum heimaslóðum hans eftir langa búsetu í
Noregi.
Það var gleði að fá þig heim aftur Ragnar minn. Þú varst kátur og hress
fullur af orku eftir skemmtilegt ferðalag fyrir nokkrum árum. Við gömlu
félagarnir höfðum þá haldið hópinn þá í meir en 60 ár og fórum í okkar
árlegu ferð og tókum við Reykjanesið enda vissum við að þú varst fróður á
þeim bæ.
Áhugi á ferðalögum kviknaði þegar við vorum unglingar í Prentsmiðju föður
Ragnars fyrir óralöngu og þar var mikið spekúlerað og skrafað um staði sem
okkur langaði að sjá svo reiðhjól, skellinöðrur og mótorhjól urðu
fararskjóttar okkar í byrjun. Þegar þið bræður Þórður og þú eignuðust
splunku nýjan Landróver voru oft kátir strákar með fullan bíl af vistum og
ferðagræjum og Ljómi ekki sparaður enda eins og Kadilak í okkar augum á
þeim tíma já hann var ferða Katilakkinn en þá var gleðin annað en I fónar
og tölvur. Gleðin var náttúran sjálf í öllu sínu veldi og hún var stundum
dálítið grimm og svo aftur góð en sama hvað þá kunnum við að njóta
hennar.
Það má segja að Ragnar hafi oft verið aðal hvatinn af ferðum okkar en þá
var hann búinn að lesa sig til um skemmtilega staði og ferðir annarra og ef
okkur leist á þá var slegið til pakkað og farið af stað.
Árin þróuðust en við félagarnir kölluðum þá bræður ýmist Ragnar og Þórður
eða Þórð og Ragnar en þeir voru sem einn og aldrei nefndir nema báðir. Já
hópurinn stækkaði og inn bættust Austurbæingar og sem var engan vegin
samkvæmt sáttmálanum en Austur- og Vesturbæingar voru í stríði á þeim árum
en við létum það ekki trufla ferðalöngun okkar.
Já svo komu Laugnesingar og Fossvogsbúar og ferðirnar urðu lengri og
strangari svo við sáum að það var orðið nauðsynlegt að kaupa
sameiginlega almennilegar ferðagræjur sem voru svo geymdar í miðstöð
klúbbsins sem var Prentsmiðja þeirra feðga en faðir þeirra bræðra var
mikill hvata maður okkar á fyrstu árunum enda mikill ferðamaður
sjálfur.
Svo byrjuðum við flestir í Björgunarsveit slysavarnarfélagsins Ingólfs sem
var skemmtileg reynsla en þar fengum við að spreyta okkur bæði á landi og
sjó. Það voru líka mörg björgunar afrek, týndar rjúpuskyttur og ýmis slys
og það var ekki ósjaldan sem við urðum við að henda öllu frá okkur til að
fara í björgunarleiðangra svo við skiljum vel fórnir björgunarsveitarmanna
í dag. Yfirleitt voru vinnuveitendur skilningsríkir en auðvita setti þetta
skarð í rekstur fyrirtækjanna.
Já svo stelpurnar en við höfðum aldrei mátt vera að því að spá í þær enda
þeim ekki bjóðandi í svona stráka/karlaklúbb og við oft ekki álitslegir á
þessum ferðum okkar, drullugir upp fyrir haus á mótorhjólatímabilinu og
lyktandi eins og skunkar enda ekki mikið um sturtur á hálendinu svo það var
og oft gantast í tjaldbúðunum okkar að kveldi ferðadags með orðið alýfát
og menn voru fljótir að koma sér í svefnpokana og renna rennilásnum upp.
Lesið alýfát afturábak þá skiljið þið þetta.
Ævintýrin voru óendanleg. Vestfirðir á mótorhjólum áður en vegakerfið var
komið. Þórsmerkurferðir þar sem við lentum í ævintýri sem fáum verður sagt.
Öræfaferðirnar um páska stundum í 25° frosti áður en brýr þar sem ísinn
brotnaði undan fargi bílanna svo kom ævintýrið við Snæfellsjökull sem er
hulið leyndarmál eins og Snæfellsjökullinn sjálfur.
Já svo allar Björgunarsveitarferðirnar og landsmöt á þeirra vegum sem voru
líka ævintýri eftir ævintýri en svona gæti maður talið upp endalaust upp og
ekki má gleyma 13 daga gönguferðinni hringinn í kring um nyrsta kjálka
vestfjarðanna.
Já stelpurnar komu og vildu komast í hópinn og ein plataði okkur og sagðist
vera vinkona eins félaga svo við aumkuðumst og breyttum reglunum á staðnum
en síðar kom á daginn að sá félagi þekkti varla stúlkuna. Síðar kom í ljós
að okkur fannst hún dálítið einmanna en auðvita vorum við ekki að abbast
upp á vinkonu félaga okkar. Reglum breytt og ferðamunstrið breyttist enda
sáum við það það var bara gaman að hafa ferðafélaga frá hinu kyninu enda
var þessi umrædda stelpa virkilega viðkunnaleg. Í dag ráða þær ferðum
klúbbsins. Ha, Ha.
Jepparnir tóku alveg yfir og stelpurnar reyndu líka en alla vegana fórum að
vera hreinir og snyrtilegir enda engin miskunn þegar þær reyna að ná völdum
og ekki nema einn sjens fyrir okkur og í stað þess að éta sviðahausa og
naga kjöt af beinum elduðu þær góðar máltíðir svo engin kvartaði enda engar
voru þær engar Femínistur eða rauðsokkur sem komust í þennan klúbb.
Strákar urðu menn og urðu eldri, giftust sínum heittelskuðu og eignuðust
börn og buru og þá aftur stækkaði hópurinn og börn okkar sem höfðu alist
upp við þetta umhverfi og við félagarnir og nú hafa þau sama munstur og við
og sína vini og ferðafélaga og njóta sín. Hvað er yndislegra en að hafa
tilgang í lífinu.
Ragnar það sem þú byrjaðir á með lestri bóka hefir þróast og allir okkar
afkomendur minnast ferðalaganna með okkur sem skemmtilegasta tímabil í
uppvextinum. Já þegar byrjuðu þá vorum við rétt ornir unglingar.
Kannski til gamans en þar sést að máltækið ungur nemur það gamall temur en
ég lánaði elstu dóttur minni sem var rétt yfir tvítugt ferðajeppa minn,
stóran 4x4 Ford van sem var ekkert merkilegt en henni langaði til sýna
kærasta sínum landið.
Síðar frétti ég að hún hefðir farið beint upp á Sprengisand og yfir svo
gæsavatnaleiðina, grjóthálsinn einbíla og engir símar á þeim tíma yfir
óbrúaðar jökulsárnar inn í Herðubreiðarlindirnar og hélt svo áfram eins og
allt þetta væri bara eðlilegt já fyrir rúmlega tvítuga stúlku.
Ragnar nú ert líka brautryðjandi hópsins með þína hinstu för til framandi
staða en mig grunar að það sé þó ekki hinsta för þessu jarðríku okkar þótt
í annarri vídd.
Við Guðrún viljum votta Jórunni þinni og Þórði bróður og fjölskyldu hans
samúð okkar og samúðarkveðju frá Gömlu Skolla vinum þínum.
Valdimar Samúelsson.