Pálína Margrét Stefánsdóttir fæddist 12. febrúar 1925. Hún lést 20. september 2019.Útför Pálínu fór fram 4. október 2019.
Pála frænka, Pálína Margrét Stefánsdóttir, sem lést aðfaranótt 20.
september síðastliðinn, hátt á 95. aldursári, var jarðsett í dag. Hún var í
miðju systkinahópsins á Hvalskeri við Patreksfjörð, sem fæddist á
fyrrihluta síðustu aldar, hún fædd 1925. Þau voru fimm systkinin frá
Hvalskeri, og sú eina eftirlifandi nú er móðir mín, Arnfríður Ásta. Það
atvikaðist þannig að faðir hennar lést langt fyrir aldur fram, einungis 51
árs 1942, í miðju stríðinu, og eftir stóð móðir hennar með fimm börn, fædd
á árunum 1921 til 1934 og bújörð í skuld. Ég hef á stundum gluggað í
stílabók frá föður hennar, hvar hann tíundar m.a. búskap og tíðarfar. Þar
kemur glöggt fram hversu þröngt var í búi þegar Pála og systkini hennar
voru að alast upp. Það þurfti allar hendur á dekk til að hafa í sig og á og
halda sjálfstæðinu. Þar að auki var Hvalsker stoppistöð almenningssamgangna
þeirra tíma frá Rauðasandi á Eyrar og það kom alveg fyrir að fólk sem átti
ekki athvarf annars staðar stoppaði endanlega á Hvalskeri og eyddi síðustu
árunum þar í skjóli Hvalskershjóna. Kaupfélögin sem kennd voru við
Rauðasand höfðu líka starfsstöð eins og það myndi heita nú til dags, gott
ef ekki höfuðstöðvar, á Brandarstöðum rétt vestan Hvalskers og því fylgdi
umstang fyrir heimafólkið á Hvalskeri. Skólaganga var með farskólahætti
þess tíma. Þess utan gat Pála stundað nám í Tónskóla Þjóðkirkjunnar um
skeið. Þetta var sum sé umhverfið sem mótaði Pálu frænku. Pála kynntist í
Reykjavík eiginmanni sínum, honum Herði, Hadda frænda (sem var reyndar
ekkert skyldur okkur en var kallaður Haddi frændi samt, enda frændi í þess
orðs bestu merkingu) og þau bjuggu lengst af á Digraneshæðinni í Kópavogi.
Þau fluttu þangað úr húsnæðisleysinu í Reykjavík (jú, það var skortur á
íbúðarhúsnæði í Reykjavík líka þá) í sumarbústað efst á hæðinni og stækkuðu
hann og bættu með eigin handafli og hugkvæmni enda Haddi afskaplega
handlaginn maður. Bústaðurinn var þá nánast úti í sveit og þótti þetta ekki
vænlegt til frambúðar að aðrir töldu, en Pála spurði bara á móti hvar fólk
héldi að framtíðarbyggingarland væri. Pála og Haddi voru sum sé eiginlega
frumbyggjar þess tíma og langt á undan hefðbundinni þjónustu sveitarfélaga
en þetta kom nú allt saman með tíð og tíma. Bústaðnum fylgdi stór lóð og
nóg pláss fyrir hænur og kartöflur og rabarbara og ýmislegt í þeim dúr sem
kom sér vel. Og þar var sko nóg af villiköttum, sem áttu aldeilis hauka í
horni þar sem Pála og Haddi voru og ég er viss um að allir hvæsikettirnir
og þangbröndurnar hafa beðið í ofvæni eftir Pálu með
hafnargrautarskálarnar fullar til að launa henni velgjörðirnar hér í den.
Það voru líka aðrir villikettir sem höfðu í seli hjá Pálu og Hadda í
Garðshorni en þessir eiginlegu kettir. Þegar systkinabörn Pálu vestur á
fjörðum komust á legg og fóru að sækja sér menntun syðra vorum við ansi
mörg sem bjuggu í kjallaranum hjá Pálu og Hadda í mislangan tíma og þar að
auki voru ýmsir aðrir sem höfðu þar bústað. Alltaf var nóg pláss.
Digranesvegur 112 var sum sé með líkt stoppistöðvarhlutverk og Hvalsker
hafði. Þar voru líka haldnar hinar ýmsustu útskriftarveislur fyrir
ættingjana og selkjötspartý og ég veit ekki hvað. Og þar höfðu bæði amma og
Stella frænka síðustu stoppistöð í þessari vist. Þegar fræðingar nútímans
höfðu líka áttað sig á hvar byggingarland framtíðarinnar var, og fóru að
ásælast lóðina þeirra Pálu og Hadda þá seldi Pála ekki bara lóðina og
húsið, heldur líka útsýnið, og þau hjón fluttu í íbúð á Kópavogsbrautinni,
hvar þau bjuggu til æviloka og þar heima lést Haddi árið 2006. Þar bjó Pála
svo ein og án heimilishjálpar nema allra síðustu árin, sjálfstæð kona sem
ekki gat hugsað sér að vera upp á aðra komin og fór aldrei í varanlega vist
á hjúkrunarheimili þó hún hafi nú litið inn á svoleiðis stofnanir öðru
hverju síðustu árin. Pála og Haddi eignuðust 2 dætur, Valborgu, sem lést
langt fyrir aldur fram fyrir 3 árum, og Kristínu. Rétt eins og sú
sjálfstæða kona Kristrún í Hamravík var ekki par sátt við skapara sinn þá
var Pála ekki par sátt við veikindi og andlát Valborgar en tók því af
æðruleysi. Á sínum yngri árum tók hún þátt í starfi Framsóknarflokksins í
Kópavogi, tók þátt í stofnun Samkórs Kópavogs, tók þátt í að safna fyrir
Kópavogskirkju, og var almennt mjög samfélagslega sinnuð. Hún fór oft á
tíðum á tónleika með sinfóníunni og hlustaði á tónlist og bjó til súpur með
píkant smag og borðaði osta og bergði á rauðvíni á síðkvöldum löngu áður
en það varð móðins og hún átti það til að reykja vindil með. Pála var ekki
það sem í dag kallast langskólagengin, en hún var mjög vel menntuð, vel
lesin, fylgdist með og las dagblöðin lengst af og hafði skoðanir á
hlutunum. Það var aldrei komið að tómum kofanum hjá henni Pálu. Arnfríður
Ásta og Ari úr Ásgarði á Patró biðja fyrir kveðjur til Pálu og allra
afkomenda hennar og fjölskyldna þeirra.
Eygló Aradóttir.