Bjarni Andrésson fæddist í Ásgarði í Dalasýslu 24. júní 1938. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 2. apríl 2020. Foreldrar hans voru Andrés Magnússon bifreiðastjóri, f. 29.10. 1904, d. 26.6. 1962, og Jóna Sigríður Sigmundsdóttir, f. 3.7. 1908, d. 2.8. 1989. Systkini Bjarna voru Erna Kristín Andrésdóttir, f. 21.10. 1934, d. 30.8. 1936, Sigmundur Magnús Andrésson, f. 14.8. 1939, Guðrún Sigurbjörg Andrésdóttir, f. 21.11. 1942, d. 24.11. 1942.
27. október 1963 kvæntist Bjarni eftirlifandi eiginkonu sinni Sigrúnu Helgu Guðlaugsdóttur, f. 7.8. 1942, frá Stóra Laugardal í Tálknafirði. Foreldrar Sigrúnar voru Guðlaugur G. Guðmundsson, f. 29.1. 1900, d. 28.2. 1988, og Hákonía J. Pálsdóttir, f. 4.8. 1907, d. 24.5. 1998. Börn Bjarna og Sigrúnar eru: 1) Stúlka Bjarnadóttir, f. 11.6. 1964, d. 11.6. 1964, 2) Andrés Bjarnason, f. 8.6. 1965, maki Kristjana Pálsdóttir, f. 1.5. 1960, börn þeirra: a) Sigrún Helga, sambýlismaður Andrei Cristea, dóttir þeirra Alexandra, b) Andrea Ruth og c) Agla Bettý, 3) Björk Bjarnadóttir, f. 2.9. 1967, maki Sölvi Steinarr Jónsson, f. 2.5. 1957, börn þeirra: a) Bjarni, sambýliskona Katrín Viktoría Leiva, dóttir þeirra Aþena Þöll, b) Jón Steinar, c) Ösp, unnusti Piero Raisi, og d) Hákon Ingi, 4) Jens Bjarnason, f. 3.12. 1969, maki G. Sigríður Ágústsdóttir, f. 24.1. 1974, börn þeirra Una Mattý, Ágúst, Hekla Björk og Bjarni Gunnar, 5) Hilmar Bjarnason, f. 8.6. 1973, maki Anna Björk Sverrisdóttir, f. 22.4. 1971, börn þeirra Sindri Már, Katrín Unnur og Konráð.
Bjarni ólst upp í Ásgarði og síðar í Búðardal hjá foreldrum sínum, hann lauk námi í vélsmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík og fluttist til Tálknafjarðar eftir nám og hóf þar störf hjá Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar við vélgæslu. Áður en Bjarni hóf rekstur Vélsmiðju Tálknafjarðar síðar Skandi, sem varð hans ævistarf, sinnti hann ýmsum störfum, svo sem akstri rútubíla og sjómennsku. Samhliða rekstri Vélsmiðju Tálknafjarðar hóf hann útgerð með vini sínum Ársæli Egilssyni og réðust þeir félagar í smíði á togaranum Sölva Bjarnasyni BA-65 sem sjósettur var á Akranesi 1980 og gerður var út frá Bíldudal.
Bjarni var settur slökkviliðsstjóri á Tálknafirði og sinnti þeirri skyldu sinni í mörg ár ásamt ýmsum störfum fyrir sveitarfélagið.
Bjarni hafði mikinn áhuga á flugi, hann lét gamlan draum rætast á fimmtugsaldri, hann tók próf einkaflugmanns og var stofnfélagi í flugklúbbnum BYR og naut þess að fljúga um landið í góðum félagsskap.
Eftir að Bjarni lauk störfum dvöldu þau hjónin á Tálknafirði á sumrin og í Reykjavík á veturna þar sem þau nutu nærveru fjölskyldunnar.
Útför Bjarna fer fram í Fella- og Hólakirkju 16. apríl 2020.
Kveðjustund. Við vitum það öll að okkur er gefinn takmarkaður tími í þessu
lífi. Við vitum að á endanum þurfum við að kveðja. Þegar við svo fáum
vitneskju um að tíminn sé farinn að styttast hjá ástvini teljum við okkur
vera undir það búin að kveðja af því að við vitum að svona er lífið,
tíminn er takmarkaður. En svo rennur stundin upp og við erum ekki tilbúin.
Það er ekkert sem undirbýr okkur undir brotthvarf ástvinar úr lífi okkar,
sama hver aðdragandinn er. Missirinn er aldrei eins því sporin sem
viðkomandi skilur eftir í okkar lífi eru einstök líkt og manneskjan sjálf.
Í dag er komið að kveðjustund. Þegar ég kvaddi Bjarna tengdapabba daginn
fyrir heimsóknarbann á Landspítala var það hversdagsleg kveðja, þessi
hefðbundna sjáumst aftur kveðja ... en við sáumst ekki aftur. Mig langar
því að skrifa nokkur kveðjuorð til hans. Bjarni var einstakur maður. Allt
frá því ég kynntist honum, fyrir 23 árum, hef ég borið gríðarlega virðingu
fyrir honum. Hann var fróður, staðfastur, rökræðinn, verklaginn, framsækinn
í hugsun, tækjaáhugamaður, rólegur, jákvæður, umhyggjusamur, traustur og
einstaklega góður maður bara svona rétt til að telja upp brotabrot af
hans góðu eiginleikum. Sporin sem hann skilur eftir í lífi okkar eru
ótalmörg. Kaffispjall, matarboð, bíltúra-innlit, samvera á Tálknafirði og í
Gaukshólum - allt voru þetta hversdagslegar athafnir sem í dag öðlast nýja
merkingu og verða að dýrmætum minningum. Sum sporin sem hann skilur eftir
eru dýpri en önnur. Eitt slíkt er flugtúrinn - það var ekki hversdagsleg
athöfn. Ætli þetta hafi ekki verið með fyrstu skiptunum sem ég fór í
heimsókn til Tálknafjarðar. Bjarni flaug með okkur Hilmar frá Reykjavík og
vestur. Áður en hann lenti vélinni mjúklega á Patreksfjarðarvelli flaug
hann yfir Miðtúnið á Tálknafirði þar sem tengdamamma beið okkar, lét hana
þannig vita að við værum alveg að koma. Mögnuð upplifun og yndisleg minning
sem gleymist seint. Þessi flugtúr er skýrt dæmi um hversu mikið traust ég
bar til Bjarna strax í upphafi. Fyrir ferðina snerist minn eini
stressfaktor um það hvort ég gæti keypt maskara fyrir vestan ef ég skyldi
nú gleyma mínum fyrir sunnan (!). Ég veit, gefur ekki bestu myndina af mér
en ég var ung ... ja, ok yngri - en sko, málið er að ég hafði aldrei
áhyggjur af því að fljúga í lítilli rellu með honum. Ástæðan er svo
ofureinföld - hann bar þetta djúpstæða traust utan á sér og að sjálfsögðu
flaug hann líka listavel. Það var hans helsta einkenni að gera hlutina
vel og af vandvirkni. Já, sporin sem Bjarni skilur eftir sig eru mörg og
hvað greinilegust þegar kemur að Hilmari, syni hans. Samband þeirra feðga
var einstakt og það var ósjaldan sem síminn var tekinn upp til að leita
ráða hjá pabba eða bara til að spjalla og fá annað sjónarhorn. Missir
Hilmars og fjölskyldunnar er mikill. Mig langar að telja upp fleiri
minningarbrot því þau eru svo ótalmörg morgunte á Tálknafirði,
tækjaáhuginn og allt það jákvæða sem honum fylgdi, hádegisfréttir í botni -
en það væri bara til að reyna, í lengstu lög, að fresta hinni óumflýjanlegu
stund sem nú er runnin upp, kveðjustundinni. Elsku tengdapabbi, takk fyrir
allar dýrmætu stundirnar. Þær létu nú ekki mikið yfir sér margar hverjar en
það eru einmitt þær sem mér þykir svo vænt um og skilja eftir sig fallegar
minningar. Ég veit að það var ætíð hápunktur sumarsins hjá Sindra Má,
Katrínu Unni og Konráði að heimsækja afa og ömmu á Tálknafirði þá var
lífið svo einfalt og svo ljúft því það snerist um það sem gefur lífinu
gildi nærveru og samveru með þeim sem okkur þykir vænt um. Það er þeim
erfið lífsreynsla að þurfa að kveðja þig, afa sinn, með svona stuttum
fyrirvara og á þessum fordæmalausu tímum sem nú eru. Ég ætla að halda mig
við okkar síðustu kveðju, þessa hversdagslegu sjáumst aftur kveðju - því að
ég mun sjá þig aftur og aftur í öllum þeim minningabrotum sem ég er svo
endalaust þakklát fyrir að eiga. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Elsku
tengdamamma, Andrés, Björk og Jens mínar dýpstu samúðarkveðjur til ykkar og
fjölskyldna ykkar. Það er undarlegt að kveðja ástvin á tímum samkomubanns
og fjarlægðar og mikið tekið frá fjölskyldu og vinum í sorgarferlinu. Það
er því von mín að þegar þessu undarlega ástandi er lokið þá munum við koma
saman og fagna lífinu með þakklæti í huga. Þakka fyrir lífið og stundirnar
sem við áttum með Bjarna, því þakklætinu eru engin takmörk sett.
Anna Björk Sverrisdóttir.