Svavar Geir Tjörvason fæddist 22. maí 1942 í Keflavík. Hann lést 11. júlí 2020. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Tjörvi Bjarni Kristjánsson sjómaður, f. 1.7. 1917, d. 24.6. 1971, og María Guðgeirsdóttir húsmóðir, f. 10.6. 1918, d. 26.1. 2007. Bræður Svavars eru Kristján, f. 14.1. 1941, og Sævar, f. 31.1. 1948.
Hinn 30.11. 1963 kvæntist Svavar Sóldísi Björnsdóttur, f. 22.6. 1944. Börn þeirra eru: 1) Hrafnhildur, f. 9.5. 1963, maki Guðmundur Óskarsson, f. 1960, börn þeirra: Aron Geir, f. 1995, unnusta Lillý Ösp Sigurjónsdóttir, og Tinna Björk, f. 1998. Börn af fyrra hjónabandi Guðmundar eru: Óskar Frank, f. 1982, og Auður Bryndís, f. 1988, d. 2009. 2) Kjartan, f. 5.4. 1966, maki Mai-Lill Pedersen, f. 1966, barn þeirra: Elin Rahel, f. 2001. 3) María, f. 17.2. 1970, maki Vilhjálmur S. Kjartansson, f. 1966, börn þeirra: Fanney Halla, f. 2000, Védís Katla, f. 2002, og Ásta Lovísa, f. 2006. 4) Bryndís, f. 27.7. 1979, barnsfaðir Sigurður Þór Erlendsson, f. 1974 d. 2018, börn þeirra: Týr Huginn, f. 2008, og Iðunn Freyja, f. 2009. Barn Sigurðar frá fyrra hjónabandi Thor Michael Delahanty f. 1997, núverandi sambýlismaður Tomas Hallqvist, f. 1973.
Svavar var borinn og barnfæddur Keflvíkingur, kominn af þurrabúðarfólki og sjómönnum. Þegar hann var 15 ára hóf hann nám við múrverk hjá Guðmundi Þengilssyni í Keflavík, hann lauk sveinsprófi og öðlaðist meistararéttindi. Svavar starfaði við múrverk alla sína tíð til eða til 67 ára aldurs, bæði hjá fyrirtækjum en einnig rak hann um tíma sitt eigið fyrirtæki og var í stjórn Múrarafélags Suðurnesja.
Svavar var ötull garðyrkjumaður ásamt konu sinni og af elju ræktuðu þau garðinn sinn við hús sitt Langholti 19 og hlutu tvívegis verðlaun fyrir hann. Í seinni tíð tók Svavar virkan þátt í heilsueflingu eldri borgara í Keflavík undir leiðsögn Janusar Guðlaugssonar með góðum árangri.
Svavar var mikill Keflvíkingur og vildi hvergi annars staðar vera.
Útför Svavars Geirs fer fram frá Keflavíkurkirkju 28. júlí og hefst athöfnin klukkan 13.
Af hverju grætur amma? Amma Svavars var rammskyggn og þegar
sambýlismaður hennar fórst í aftakaveðri 17. nóvember 1921 varð hún afar
myrkfælin. Eftir það sváfu börn hennar og barnabörn hjá henni í rúmi afans
í 24 fm tómthúsi kyntu með kolakabyssu líkt og lúkar í fiskibáti.
Vorið 1950 var komið að vistaskiptum, Svavar átti að taka við af nýfermdum
Kalla frænda sínum og verða næturgestur ömmu sinnar næstu árin. Ömmu sem
var áhrifavaldur og kenndi honum seiglu, að láta ekki deigan síga í
lífsins ólgusjó.
Hann var rétt nýbyrjaður í skóla og daglega gekk hann þangað frá ömmu
sinni. Farið var að hausta og þegar líða tók á nóttina gat orðið
nístingskalt í kotinu þrátt fyrir dúnsæng afans. En til að honum yrði ekki
kalt reis amman árla úr rekkju hvern morgun og bætti kolum á kólnandi
glóðir ofnsins. Þegar Svavar vaknaði og fékk sinn árbít var orðið hlýtt og
notalegt í kotinu. Hann lagði síðan af stað í skólann, kvaddi ömmu sína og
hún bað Guð að gæta hans.
Lífshlaupið ræðst stundum ef ekki oft af fyrstu leikjum lífsskákarinnar.
Lengi býr að fyrstu gerð! Þetta var á þeim tíma sem börn voru aðgreind og
raðað í bekki eftir getu þar sem A kom á undan B. Stundum var Svavar úti
á þekju, skynjaði illa fljúgandi, stökkvandi stafina, og kennararnir sögðu
að hann ætti heima á öðru plani. Á stuttum tíma var sjö ára hnokkinn
gengisfelldur í tvígang, færður líkt og sauðfé milli dilka úr A- í B-bekk
og úr B- í C-bekk. Þessar kaldrifjuðu móttökur í upphafi skólagöngu voru
álíka og að flokka börn í skreið eða gúanó, og hann spurði sig síðar hvað
hann hefði til sakar unnið til að eiga þessa aftöku skilið. Nokkuð sem sat
í honum og hans líkum alla ævi líkt og opið sár sem aldrei grær. Rúmri
hálfri öld síðar kom í ljós útbreidd les- og ritblinda í móðurlegg hans sem
stóð fyrst og fremst bóknámi pilta fyrir þrifum.
Amman man tímana tvenna, hafði orðið að ganga gegnum óvenjumiklar
þrengingar á langri ævi, misst maka sína í tvígang frá átta börnum, þurft
að segja sig á sveit og í kjölfarið glatað kosningaréttinum. Böl Bakkusar
hvíldi líkt og álög á yngri börnum hennar og hugarangur samviskubitsins gaf
henni engin grið, hvorki dag né nótt, hvert sem hún fór, lét hana aldrei í
friði. Út á við beit hún á jaxlinn og lét sem ekkert væri. En stundum
vaknaði Svavar á nóttunni þegar amma hans grét í hljóði með ekkasogum án
þess að mæla eitt einasta orð. Þegar amman skildi við hann á morgnana eftir
að hún bað Guð að blessa hann gekk hann í skólann með þetta góða veganesti
hennar en spurði sig: Af hverju grætur amma á nóttunni?
Svo Svavar hafði um margar leikfléttur hversdagsins að hugsa í lífsins
skák, ekki aðeins á leiðinni í og úr skóla heldur allt lífshlaupið. Og
líkt og allir lék hann alls kyns leiki í kaflaskiptri skák sóknar og
varnar. Framan af eignaðist hann konu og fjögur börn, byggði sér hús
samtímis sem hann lauk við sitt iðnnám um tvítugt og átti eftir að reisa
sér ævarandi minnisvarða í Reykjanesbæ og víðar sem meistari múrverksins.
Eflaust skipta þær byggingar þúsundum sem hann kom að á hálfrar aldar
starfsævi, lagði hönd á plóginn, setti sitt múraramark á, frá hvers konar
steypuvinnu, járnabindingum, hleðslu, múrhúðun, fínpússun, gólflögnum
og flísalögnum að alls kyns viðhalds- og viðgerðarverkefnum. Þarna reyndi
á lipurð í samskiptum, að hann gerði ekki mannamun, taldi ekkert eftir
sér, var greiðvikinn, ráðagóður, deildi sinni þekkingu og færni.
Miðtafl lífsins náði að mestu leyti til hins hefðbundna fjölskyldulífs og
vinnunnar en hann lét af störfum 67 ára. Fyrir rúmum fjórum árum urðu
furðuleg umskipti í lífi hans. Fyrir slysni axlarbrotnaði hann, sem átti
eftir að verða lán í óláni. Við innlögn komu hugsanlega fyrstu einkenni
þess sjúkdóms fram sem lagði hann síðar að velli. En þessi uppákoma
virkaði líkt og vítamínsprauta vitrunar, varð algjör viðsnúningur á
lífsstíl hans og fékk hann 74 ára til að snúa baki við sálufélaga sínum,
Bakkusi. Með þrautseigju og hjálp góðra vina vann hann sig smám saman upp,
stundaði reglulega líkamsrækt með þeim og náði að rétta úr kútnum.
Hvers virði er að eignast allt
í heimi hér,
en skorta þetta eitt
sem enginn getur keypt.
Hversu ríkur sem þú telst
hversu fullar hendur fjár
þá áttu minna en ekki neitt
ef þú átt engan vin.
(Ólafur Haukur Símonarson)
Þegar ekki sást lengur til lands, engin mið til að sigla eftir og lífið
lá beinlínis undir var þessi landtaka kannski hans stærsti og sætasti
sigur!
Synd að hann skyldi þurfa að játa sig sigraðan fyrir vægðarlausum sjúkdómi
þegar hann sá til sólar aftur. Í októberlok 2019 fékk hann eftir
ristilskoðun greiningu á þriðja stigs meininu sem átti eftir að draga hann
til dauða. Líkt og amman bar hann ekki sorgir sínar á torg, beit á jaxlinn
og var bjartsýnn á framhaldið þegar hann hitti félaga sína. Eflaust hafði
hann haft einkennin lengur sem ætti að vera okkur öllum áminning um að
fara í slíka skoðun fyrr en seinna.
Síðast þegar ég hitti hann laugardaginn 11. júlí var mikið af honum dregið,
hafði misst 20 kg, átti erfitt með mál en var með á nótunum, hlustaði,
kinkaði kolli og brosti þegar ég sagði honum ólíkindasögur af ömmu okkar.
Hann vissi hvert stefndi, og var æðru- og óttalaus þegar hann leit út um
gluggann og horfði píreygður út á himinlána. Rétt fyrir klukkan 17 var
hann orðinn örmagna á fimmaurabröndurunum, leit á mig með hálfopnum augum
eins og hann vildi segja mér eitthvað. Þegar ég lagði eyrað að vitum hans
heyrði ég hans síðasta orð: Sofa.
Og hann sofnaði svefni hinna réttlátu, sáttur við sig, sína, alla, og
kvaddi þetta líf klukkustund fyrir miðnætti.
Takk fyrir samfylgdina kæri bróðir!
Sævar Tjörvason.