Arabella Eymundsdóttir var fædd á Seyðisfirði 29.12.1939. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 27.9.2019. Foreldrar hennar voru Sigurborg Gunnarsdóttir, f. 9. apríl 1906, d. 22. nóvember 1983, og Eymundur Ingvarsson, f. 31. maí 1883, d. 9. júní 1959. Börn Sigurborgar og Eymundar eru Garðar, Hartmann, Stella Kristín, og Anna Erla.
Þann 27 febrúar 1960 giftist Arabella Baldvini Þorsteinssyni frá Neskaupstað. Foreldrar hans voru Þorsteinn Jakob Einarsson frá Miðbæ í Norðfjarðahreppi og Jarðþrúður Einarsdóttir frá Barðsnesi við Norðfjörð. Einkadóttir Arabellu og Baldvins er Linda Sigríður, fædd 25.11.1960. Fyrrverandi eiginmaður hennar er Samúel Ingi Þórisson, f. 1958. Börn þeirra eru: 1) Baldvin Arnar, f. 1979, í sambúð með Örnu Maríu Geirsdóttur en saman eiga þau soninn Huga Geir. Fyrir átti Baldvin Rebekku Ýri og Ísabellu Lind. Börn Örnu Maríu frá fyrra hjónabandi eru Viktoría Huld og Jörundur Ingi. 2) Valdís Rán, f. 1982, maki hennar er Guðjón Guðjónsson. Sonur þeirra er Samúel Ingi. 3) Arabella Ýr, f. 1987, maki Pedro Martins. Sonur þeirra er Tristan António en fyrir átti Arabella soninn Theodór Bjarna.
Þau hjónin Arabella og Baldvin bjuggu fyrst í Neskaupstað en fluttu þaðan til Seyðisfjarðar þar sem þau bjuggu allt fram til 1986 er þau fluttust búferlum til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu alla tíð síðan.
Útför Arabellu fór fram í kyrrþey 10. október 2019.
Elsku amma mín, með ólýsanlegri sorg í hjarta þá þarf ég að kveðja þig
að sinni. Ég veit ekki hvernig ég á að geta skrifað stutta grein um
minningar mínar um þig því þú hefur verið svo stór partur af lífi mínu alla
tíð. Allt frá því að ég fæddist höfum við nöfnurnar átt alveg einstakt
samband sem í gegnum árin hefur einkennst af mikilli vináttu og
trausti.
Elstu minningar mínar um okkur eru líklega frá því þið afi bjugguð í
Strandaselinu. Þar man ég eftir því að sitja úti á svölum að hengja upp
dúkkufötin mín eftir að hafa þvegið þau í rauða balanum. Ég man eftir
bókunum í náttborðinu sem þú last fyrir mig fyrir svefninn (Dúmbó var þar í
sérstöku uppáhaldi) og að hafa sofið uppi í á milli ykkar afa. Það var
eitthvað svo extra kósí! Þegar ég var orðin aðeins eldri, þá minnist ég
brauðbakstranna, handboltans, jólanna, Danmerkurævintýrisins og
sunnudagsmatarins (reyndar var matur alla daga, en extra góður á
sunnudögum). Ég minnist einnig spjallsins við eldhúsborðið, kasínu og
hversu óheyrilega gott það var að leggja sig á sófanum ykkar.
Á seinni árum, eftir að afi dó, brölluðum við ýmislegt. Það sem klárlega
stendur upp úr og ég er mjög þakklát fyrir er að þú hafir komist í
brúðkaupið okkar Pedro í Portúgal. Þrátt fyrir að þú hafir dottið og verið
hálfónýt mestallan tímann, þá talaðir þú oft um hversu gaman þér fannst að
hafa farið. Við töluðum stundum um það að þú myndir einn daginn flytja með
okkur fjölskyldunni til Portúgals og eyða síðustu ævidögunum í sólinni. Ég
er viss um að ef þú getur munt þú fylgja okkur þangað við hvert
tækifæri!
Þessi stutti tími sem þú varst veik var einn erfiðasti tími sem ég hef
upplifað en á sama tíma er ég svo þakklát fyrir að hafa fengið þann tíma
með þér. Í fimm mánuði hittumst við nánast á hverjum degi og náðum að
spjalla mikið saman. Sú minning sem mér stendur næst er þegar þú fékkst
loksins hjólastól og við komumst út í góða veðrið. Við röltum frá
Vesturgötunni þar sem þú bjóst hjá Valdísi síðustu mánuðina, niður á Café
París. Þar fékkstu loksins gott kakó en þig var búið að dreyma um það
lengi. Svo gengum við um allan bæinn og upp brattar brekkur, þar sem þú
hafðir miklar áhyggjur af því að ég væri að ofgera mér. Ég vissi það þá
jafnvel og núna að ég myndi aldrei gleyma þessum yndislega degi.
Ef ég ætti að velja eitthvað sem ég er þakklátust fyrir, elsku amma, er það
hversu yndisleg þú varst við börnin mín en Theodór var svo lánsamur að fá
að kynnast þér eins vel og hann gerði. Honum fannst alltaf svo gaman að
koma til þín í kósíkvöld og tók það jafnvel fram yfir leik með vinum. Ég
man þegar ég sagði þér frá því að ég væri ófrík að Tristani, þá sagðist þú
sko þurfa að lifa fram í mars til að ná að hitta hann. Þú gerðir nú gott
betur en það og lifðir nógu lengi til að hitta hann og hina tvo sem komu
svo árið eftir. Það gaf þér svo mikið að fá að hitta og kynnast þessum
krílum og þú talaðir um hversu mikið þú vonaðist til að fá að fylgjast með
þeim vaxa og dafna eftir að þú værir búin að kveðja. Ég vona það svo mikið
líka, og er nokkuð viss um að svo sé, þeir fá allavega að kynnast þér, ég
lofa þér því.
Elsku amma mín, til þess að klára þessa grein, verð ég að segja þér að þú
varst svo miklu meira en bara amma, þú varst trúnaðarvinkona mín og klettur
í einu og öllu. Þú tókst alltaf svari mínu og náðir að alltaf að hughreysta
mig. Daginn sem þú kvaddir var ég alltaf á leiðinni að hringja í þig, því
það er einmitt það sem ég var vön að gera ef mér leið illa eða eitthvað var
að, þá gat ég alltaf treyst á að þú værir til staðar.
Elsku amma mín, takk fyrir að vera mér alltaf svo góð og veita mér alltaf
öruggt skjól. Takk fyrir að hugga mig í þínum veikindum þegar ég átti að
vera að hugga þig, takk fyrir að koma og kveðja mig í draumi og takk fyrir
að elska börnin mín jafn mikið og þú elskaðir mig.
Þar til við hittumst á ný,
þín nafna,
Arabella.