Dómhildur Eiríksdóttir fæddist 15. júní 1934. Hún lést 29. ágúst
2021. Útför Dómhildar fór fram 11. september 2021.
Dómhildur hefur kvatt þessa jarðvist, hljóðlega og virðulega eins og
henni var eiginlegt.
Frá því á barnsaldri vissi ég hver þau voru Dómhildur frænka og hennar
maður Finnbogi Magnússon, góð tengsl voru milli pabba og þeirra hjóna, eins
við Sigureyju móður hennar og Þorvald fóstra hennar.
Pabba þótti vænt um þessa bróðurdóttur og þótti til þess koma hve skörulega
hún rak sitt stóra heimili, ól upp sjö börn, fæddi þau og klæddi og
stjórnaði almennt séð aðgerðum stærri sem smærri eins og títt er með konur
sjómanna, ekki síst þeirra sem langdvölum eru fjarri heimilum sínum.
Fyrstu minningar mínar um heimsókn til Dómhildar og fjölskyldu eru talsvert
gamlar.
Þá fékk ég að fara með pabba vestur á Patreksfjörð og lá leiðin í
Stúkuhúsið sem þá var heimili Dómhildar og fjölskyldu. Þetta var þá mikið
ferðalag og hefur sannarlega ekki verið farið án áríðandi tilefnis,
forfrömun mikil að fá að fara í slíkt ferðalag. Þó þetta sé í dag
fljótfarið var slík ferð þá alvöru ferðalag sem tók með erindunum lungann
úr degi.
Þarna urðu fyrstu kynni af ýmsu tagi, frænka sjálf, elsta dóttirin Kristín,
bakaríið á Patreksfirði og ... kóngabrjóstsykur.
Síðar spauguðum við Dómhildur stundum með þennan kóngabrjóstsykur og
minningarnar sem honum tengdust. Það var á milli okkar.
Húsbóndinn var á sjó sem endranær og kynntist ég honum ekki fyrr en löngu
síðar og varð með okkur gott trúnaðarsamband sem var mér bæði kært og
dýrmætt.
Mér þótti frænka mín falleg kona og fín, dökk á hár sem húð. Útlit hennar
var áreiðanlega alla tíð eilítið framandi í hópi okkar litlausra
norðurálfubúa.
Dómhildi var sannarlega svo margt til lista lagt, hún naut þess þegar
tíminn fór að gefast, lesturs og hreyfingar eins og sunds og göngu. Að
ferðast innanlands og þá að renna fyrir fisk var henni unun og eins naut
hún þess að sækja heim sólrík og hlý suðræn lönd.
Hún fór ekkert hátt með að geta spilað á hljóðfæri né heldur að geta samið
ljóð. Það vissu aftur á móti allir að Dómhildur eldaði og bakaði mikið og
af góðri kunnáttu og naut þess að gefa fólki að borða. Að koma í eldhús
Dómhildar var eins og þar væri nýbúið að baka og að það væri rétt verið að
tilreiða veisluborð. Hún rak líka bílaleigu, hélt því áfram að Finnboga
sínum gengnum og hikaði ekki við fjallaferðir í allskonar færð á öllum
árstímum.
Dómhildur var fyrsta barnabarn ömmu okkar Henríettu. Hún var mikið yndi
ömmu og ekkert var of gott fyrir barnabarnið sem missti föður sinn aðeins
tveggja ára gamalt. Það er í raun engu líkara en amma hafi eftirlátið
stúlkunni hæfileika og eiginleika sem virðast hafa í báðum búið. Dómhildur
minntist ömmu Henríettu fallega og trúlega eitt fárra barnabarna hennar sem
mundi hana vel.
Gæfa Dómhildar hefur verið mikil á margvíslegan máta, jafnt elskaður
eiginmaður sem börn og allir afkomendur. Sorgir hennar hafa verið
illbærilega þungar þegar eiginmaður hennar féll fyrir illvígum sjúkdómi
aðeins rétt tæplega 53ja ára.
Dómhildur hefur átt langt og gott lífshlaup. Sterk kona sem elskaði mann
sinn, börn sín og alla sína takmarkalaust, var alltaf til staðar, alltaf
full elsku, gjafmildi og trúnaðartrausts.
Það hafa verið forréttindi að þekkja Dómhildi sem fullorðin manneskja,
kynnast konunni og sögunni hennar.
Af margra ættingja hópi er alltaf eitthvað um að maður finni fyrir sterkari
og raunverulegri skyldleika við suma en aðra. Skynjar blóðböndin. Þannig
var það með Dómhildi, hún var frænka.
Nú þegar komið var að kveðjustundu er útför Dómhildar gerð frá
Patreksfjarðarkirkju, heiðursvörður staðinn við kirkju.
Við nokkrar frænkur, Elsa Nína og Svanhvít Sigurðardætur ásamt
undirritaðri, sitjum með mönnum okkar, erum víðsfjarri en fylgjumst með
streymi frá útförinni, raulum svolítið ... upphátt eða í hljóði með
fallegum söng og erum þarna með skyldmennum okkar vestra og föðmum þau í
anda, hjartanlega.
Síðan setjumst við að kaffiborði og minnumst þannig frænku okkar, segjum
svolítið frá minningum okkar og sérkennilegum atvikum sem einkenna henni
stundina.
Hún er áreiðanlega komin heil í höfn í hinu fyrirheitna landi, þar sem hár
og myndarlegur skipstjóri beið á kæjanum eftir endanum.
Elsku Dómhildur, farðu vel, hafðu hjartans þakkir fyrir samfylgdina.
Samúðarkveðjur til barna, tengdabarna og annarra afkomenda og ástvina
Dómhildar.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Jensína Kristjánsdóttir.
Jensína Kristjánsdóttir