Hrefna Gísladóttir fæddist á Hofsósi 27. ágúst 1921. Hún lést 5. nóvember 2021 á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka.
Hrefna var dóttir Önnu Þuríðar Pálsdóttur, f. 1. janúar 1902, d. 23. desember 1986, og Gísla Benjamínssonar, f. 8. júní 1891, d. 19. mars 1976.
Systkini hennar voru Svafa, f. 10. desember 1924, d. 26. apríl 2021; Hjalti, f. 26. janúar 1930, d. 8. ágúst 2011; og Hólmfríður Rósa (Lilla), f. 28. janúar 1944.
Hinn 16. júní 1951 giftist Hrefna Ögmundi Hannessyni, bónda í Stóru-Sandvík í Flóa, f. 3. apríl 1918, d. 28. nóvember 1984. Foreldrar hans voru Sigríður Kristín Jóhannsdóttir frá Stokkseyri og Hannes Magnússon bóndi í Stóru-Sandvík. Synir Hrefnu og Ögmundar eru Gísli, f. 4. desember 1951, d. 29. september 2014, Magnús, f. 21. mars 1955, og Ari Páll, f. 17. nóvember 1956.
Hrefna ólst upp hjá foreldrum sínum á Svalbarði á Hofsósi en varði stórum hluta æskuáranna á Ingveldarstöðum í Skagafirði hjá föðursystur sinni. Hrefna flutti til Reykjavíkur 1940 til að stunda nám við Kennaraskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 1942. Eftir námið kenndi hún í skóla St. Jósefssystra í Hafnarfirði 1942-1945 og einnig í Ísaksskóla 1945-1946. Sumarið 1946 sigldi hún til Svíþjóðar og lærði handavinnukennslu. Hrefna kenndi við barnaskólann á Selfossi 1946-1951, þar til hún flutti til Stóru-Sandvíkur og tók þar við búi. Hrefna bjó í Stóru-Sandvík 1951-2009, á Selfossi til 2015 og svo á hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka.
Útförin fer fram í dag, 19. nóvember 2021, frá Selfosskirkju klukkan 14 að viðstöddum nánustu aðstandendum. Hægt verður að fylgjast með útförinni í streymi í gegnum heimasíðu Selfosskirkju.
Hlekk á streymi má finna á:
Minningarathöfn verður haldin síðar.
Hægum föstum skrefum fikraði hún sig yfir móðuna miklu á allra heilagra/ sálna messu. Þegar himnarnir og heimarnir mætast og létt er að skipta um svið. Þar sem ástvinirnir bíða endurfundanna. Það gefur augaleið að margt af samferðafólki hennar er farið, þegar rúmlega 100 ára ferðalagi Hrefnu lýkur hér á jörð.
Það eru líka tímamót hjá Stóru-Sandvíkurfjölskyldunni þar sem Hrefna fer
síðust tengdabarna og barna Sigríðar Kr. Jóhannsdóttur, f. 1873, og
Hannesar Magnússonar, f. 1868.
Ég minnist Hrefnu, kennslukonunnar hávöxnu, grönnu með þykkt ljóst hár og
toppinn yfir enninu rúllaðan upp og festan með spennu, með rólegt festulegt
yfirbragð. Hún var fyrsta kennslukonan við nýbyggðan barnaskóla á Selfossi
1946. Fyrir voru Sigurður Eyjólfsson skólastjóri og Leifur Eyjólfsson sem
kom 1943. Hrefna kenndi þá yngstu börnunum. Skólaárið 1947-1948 kenndi hún
mér, 12 ára gamalli, handavinnu. Síðan höfum við fylgst að meira og minna
alla ævi.
Hrefna ólst upp á Hofsósi hjá foreldrum sínum, Önnu Pálsdóttur og Gísla
Benjamínssyni, ásamt systkinunum Svöfu, Hjalta og Hólmfríði fóstursystur.
Ég sá í minningargrein um Önnu móður hennar að heimili foreldranna hefði
verið opið fyrir ungum og öldnum sem einhvers þurftu við. Sem sagt göfugt
og gefandi fólk í samfélaginu. Þar hefur eplið ekki fallið langt frá
eikinni. - Hrefna talaði oft með mikilli hlýju um Margréti frænku sína sem
bjó á Ingveldarstöðum í Hjaltadal. Þar dvaldi hún mörg sumur, leið vel og
fékk þar líka nóg að lesa. Hugur hennar stóð snemma til mennta. Eftir að
hafa unnið t.d. í síld á Siglufirði og verið kaupakona á Grjótnesi á
Melrakkasléttu fór hún til Reykjavíkur í Kennaraskóla Íslands og lauk prófi
1942. Hún kenndi í Hafnarfirði 1942-1945 og við Ísaksskóla 1945-1946. Þá
fór hún til Nääs í Svíþjóð á handavinnunámskeið. Hún var vandvirk og mikil
hannyrðakona.
Hulda Runólfsdóttir, uppalin í Hlíð í Gnúpverjahreppi, kenndi með Hrefnu í
Hafnarfirði. Hrefna réð sig í kaupavinnu að Hlíð 1945. Haustið 1946 fór hún
að kenna á Selfossi. Í Hlíð eignaðist hún vinkonu, Ragnheiði, dóttur
hjónanna þar, og hélst sú vinátta meðan báðar lifðu. Þær voru saman í
saumaklúbbi á Selfossi ásamt Margréti Helgadóttur mágkonu Ragnheiðar,
Margréti systur Sigurðar skólastjóra, Jóhönnu frá Fljótshólum, Jóhönnu
Bjarnadóttur og Karenu konu Hjalta Gestssonar. Flestar tengdar Hlíð (og
Litlu-Sandvík).
Eins og áður sagði kenndi hún mér í barnaskólanum. Ég man að frændur mínir
Jóhann og Sigurður, kankvísir í Vikuriðjunni í Stóru-Sandvík, báðu mig að
skila kveðju til kennslukonunnar - þeir voru að glettast við Ögmund - sem
brosti í kampinn!
Hinn 16. júní 1951 giftist Hrefna Ögmundi föðurbróður mínum, Hannessyni, f.
3. apríl 1918, d. 28. nóvember 1984. Ég man þegar Ögmundur flutti hana heim
að Sandvík á Gamla-Stormi, heimilis-vörubílnum, árgerð 1934 eða 1935. Síðar
eignuðust þau drossíu með Sigurði, bróður Ögmundar. Þeir skiptust svo á
þegar til kom að nota bílinn annan hvern sunnudag með fjölskyldum
sínum!
Það var mikið gæfuspor fyrir Stóru-Sandvíkurheimilið þegar Hrefna kom. Það
vita allir sem þekkja til að hún gekk inn í stóra fjölskyldu sem var
hávaðasöm og ólík henni að mörgu leyti, en gagnkvæm virðing og kærleiksbönd
þróuðust brátt. Hún deildi íbúð, eldhúsi og eldavél með tengdamóður sinni
og fjölskyldu hennar í 10 ár. Þá var mikill gestagangur í
Stóru-Sandvíkurhúsinu, m.a. hélt Hjalti Gestsson, ráðunautur
Búnaðarsambands Suðurlands, þar námskeið fyrir unga menn í febrúarmánuði ár
hvert 1951-1955. Nemarnir voru í fæði í íbúðum Ara Páls og Ögmundar en
kennt var og gist á rishæðinni. Maður getur rétt ímyndað sér að lítið
prívatlíf hafi verið fyrir ungu konuna með litlu drengina sína. Aldrei
haggaðist Hrefna. Hún tók alltaf fallega á móti gestum og naut öll
Sandvíkurættin þess. Hún mjólkaði, fór út að raka, og gaman var þegar hún
kom í rófugarðinn og við sungum slagara alla leiðina heim á vagninum.
Hrefna lagði mikla vinnu og alúð í blómsturgarðinn, sem Jón H. Björnsson
landslagsarkitekt hannaði að beiðni Magneu systur Ögmundar, og Axel
Magnússon, garðyrkjumaður í Hveragerði, vann með Ögmundi o.fl. Síðast vann
Hrefna í garðinum komin yfir nírætt. Hrefna afhenti Ara Páli syni sínum
búið 1986, tveimur árum eftir lát Ögmundar.
Hrefna og Sigríður systir mín, nágranni hennar, sem lést 2008, áttu fallegt
vináttusamband meðan báðar lifðu. Upp úr aldamótum flutti Hrefna í
Grænumörk 2 á Selfossi þar sem hún tók virkan þátt í starfi eldri borgara.
Meðal annars málaði hún mikið og fallega á postulín sem hún gaf mér og
mörgum öðrum. - Eftir áfall og heilsubrest flutti hún á Sólvelli á
Eyrarbakka árið 2015. Þar leið henni vel allt til loka. Vil ég þakka
starfsfólkinu þar fyrir kærleiksríka umönnun Hrefnu vinkonu minnar.
Bið ég afkomendum og ástvinum Hrefnu blessunar Guðs sem vakir yfir
öllum.
Rannveig Pálsdóttir.