Trausti Adamsson fæddist á Akureyri 8. apríl 1934. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð 6. apríl 2022.
Foreldrar hans voru Sigurlína Aðalsteinsdóttir húsmóðir og Adam Magnússon húsa- og húsgagnasmiður. Systkini Trausta eru Lilý Erla f. 1933, Aðalheiður f. 1939 og Reynir f. 1948.
Þann 31.12.1956 giftist Trausti Moniku Margréti Stefánsdóttur f.1938.
Þau eignuðust 5 börn. 1)Fjóla Sigurlína f.1955, í sambúð með Sveinbirni Jónssyni f.1956. Börn Fjólu frá fyrra hjónabandi eru Margrét Jónsdóttir f.1974, Emma Björk Jónsdóttir f.1978, Steindór Kristinn Jónsson f.1982, Elfa Berglind Jónsdóttir f.1986 2)Stefán f.1959 í sambúð með Svanhildi Sigurgeirsdóttur f.1957, börn Stefáns og Hjördísar Áskelsdóttur f.1960 - d.2010 eru Monika Margrét f.1978, Halldór Áskell f.1987 og Svala Hrund f.1988
3)Erna Sigurbjörg f.1964 gift Hauki Ármannssyni f.1961 dætur þeirra eru Rut f.1980 og Harpa f.1992
4)Adam f.1968 giftur Önnu Maríu Guðmann f.1966, börn þeirra eru Þórey Lísa Þórisdóttir f.1995, Trausti Lúkas f.2002, Breki Mikael f.2004
5)Örn f.1975 giftur Elsu Björg Pétursdóttur f.1979, börn þeirra eru Pétur Orri f.2007 og Bjarki Fannar f.2010
Trausti ólst upp á Akureyri en dvaldi mörg sumur á Kálfaströnd í Mývatnssveit sem drengur. Hann gekk í Gagnfræðaskóla Akureyrar og fór síðan í Iðnskólann á Akureyri og lauk þaðan Húsasmíði. Með honum í húsasmíðinni var góður vinur hans Gunnlaugur Traustason. Eftir að hafa smíðað sér bát samhliða vinnu við húsasmíðar, fóru þeir á samning hjá Skipasmíðastöð KEA og fengu réttindi til bátasmíða. Trausti byggði sér verkstæði á Óseyri og vann við bátasmíðar fram til 1977 en snéri sér þá aftur að húsasmíðum ásamt Stefáni syni sínum. Á efri árum smíðaði Trausti fjölmargar klukkur í Borgundarhólmsstíl eftir teikningum frá föður sínum.
Útför Trausta fer fram frá Glerárkirkju 29.apríl klukkan 13.
Þegar ég rifja upp 27 ára viðkynningu og síðan vinskap við Trausta
Adamsson er ég fullur þakklætis og virðingar fyrir mannkostum hans.
Árni bróðir minn og ég höfðum fest kaup á 20 tonna eikarbát með það að
markmiði að blása nýju lífi í skipið. Þó ekki til fiskveiða, heldur til að
sigla honum við strendur Íslands í faðmi fjölskyldna okkar og upplifa
náttúruna, nú að segja frá nýju sjónarhorni.
Við fengum ábendingu um að Trausti gæti gert það sem við hefðum í huga.
Þegar ég spurði hann hvort hann væri til í tuskið með okkur bræðrum var
svarið þetta: Já, ég skal gera það. Skemmtilegasta sem ég hef gert er að
byggja báta.
Lítum stuttlega yfir sögu tréskipasmíða í landinu á 20. öld. Um 1930 hvöttu
stjórnvöld til þróunar skipasmíða í landinu og reyndin varð sú að næstu
áratugi óx tréskipaiðnaði slíkur fiskur um hrygg að hann varð samkeppnisfær
við skip frá Danmörku, Svíþjóð, Noregi og Norður-Þýskalandi og það
styrkjalaust.
Svo gerðist hið óumflýjanlega þegar græðgisvæðingin náði nýjum hæðum.
Þjóðin hafði náð að stöðva lítt heftar veiðar erlendra togskipa innan
fiskveiðilögsögu sinnar og norsk-íslenska síldin var úr sögunni um svipað
leyti. En við sátum ein þjóða að landgrunninu. Í kringum 1970 hófst
gegndarlaus skuttogaravæðing Íslendinga á botnfisktegundir okkar.
Ekki liðu mörg ár þar til stjórnvöldum varð ljóst að sjálfsstjórn okkar á
fiskimiðunum leiddi af sér grafalvarlega ofveiði og við því varð að
bregðast.
Lykilorðin urðu minnkum flotann. Settur var á stofn 1990 opinber
úreldingarsjóður, hverjum falið var að greiða fiskiskipaeigendum fyrir að
selja skipin úr landi eða eyðileggja þau. Afleiðingin varð sú að nú tóku
hin einstöku menningarverðmæti, eikarskip íslenskra fiskimanna, að rjúka í
reykjarstrókum út í loftin blá.
Þetta varð Trausta gríðarlegt áfall sem og öðrum tréskipasmiðum
þjóðarinnar. Þeim sem til þekktu var ljóst að þegar hinn sjálfbæri íslenski
skipasmíðaiðnaður var rotaður í einu höggi af lánastofnunum og ríkinu væri
verið að binda enda á þúsunda ára þróun í smíði tréskipa. Ekki bætti það úr
skák að nú dugði hinni nýju stétt bátasmiða hér stutt námskeið til að
öðlast réttindi til að smíða hinn nýja plastbátaflota þjóðarinnar.
Samanborið við að til að öðlast tréskipskipasmíðaréttindi þurfti fullt
iðnnám.
Mér finnst eins og gerst hafi í gær að þeir feðgar Trausti og Stebbi komu
til Húsavíkur til að leggja á ráðin með okkur bræðrum hvernig best færi á
að breyta fiskilest bátsins í allt í senn, borðsal, eldhús og hvílur - á
sjómannamáli kojur. Þessi heimsókn feðganna var um mitt sumar 1994 og þar
hófst margra ára samstarf um að gera fyrrverandi fiskibáta að
farþegaskipum.
Í okkar munni fengu þeir feðgarnir, og þar með talinn Addi, sæmdarheitið
proppar. Proppur er nákvæmur trétappi sem mikið magn er af í eikarbátunum.
Rétt settur proppur í skipi er augnayndi.
Mótleikur Trausta var þegar við mættum til starfa á Óseyrarverkstæði
þeirra. Þarna koma fernisbræður. Um fernisolíu varð okkur Húsvíkingum
tíðrætt því við notuðum þá náttúrulegu viðarolíu í ómældu magni.
Þeir sem manninn þekktu munu sjá hann fyrir sér með sitt fallega bros,
kryddað grallaralegri glettni.
Svona var Trausti. Alltaf vingjarnlegur, gæddur einstakri vinnugleði og í
raun hvers manns hugljúfi. Um sómamanninn Trausta munu áfram lifa margar
góðar sögur.
Nafntogaður og umsvifamikill bátasmiður á fyrri hluta 20. aldar hét Nói og
var hans athafnasvæði á Oddeyrinni. Um það leyti sem hugur þeirra Gulla og
Trausta snerist frá húsasmíðum til bátasmíða leituðu þeir til Nóa eftir
teikningum. Nói sagði þeim að þeir fengju engar teikningar hjá sér því hann
hefði þær allar í hausnum. Það varð þá til þess að þeir tóku að leita í
reynslubanka Nóa með því að vinna hjá honum og það varð þeim lærdómsríkur
skóli og svo fór að Nói tók að kalla þessa ungu menn Fyglingana sína en úr
hans munni var það virðingar- og vináttumerki mikið.
Faðir minn Sigurbjörn lagði verkefnum okkar ómælt lið um margra ára skeið.
Hann kunni vel að meta hið einstaklega skemmtilega skopskyn Trausta. Eitt
sinn sagði Trausti pabba frá því að í einni af helgarferðum þeirra Gulla og
Trausta með starfsmönnum sínum lá leið þeirra út á Flateyjardal. Þetta var
snemma sumars, sól skein í heiði og náttúran skartaði sínu fegursta. Í
hópnum ríkti mikil gleði og á þess tíma mælikvarða voru fararskjótum
leiðangursins flestir vegir færir og skyldi nú aka yfir vaðið á Jökulsá. En
þá kom babb í bátinn. Áin var í foráttuvexti og engan veginn bílfær. Nú
voru góð ráð dýr, hvað skyldi til bragðs taka?
Þetta er allt í lagi, sagði Trausti, við bara stökkvum yfir. Þá sagði
Reynir bróðir hans: Ertu vitlaus maður og ætlar þú þá að stökkva
fyrst?
Já, sagði Trausti og bætti við: Kemur þú ekki á eftir?
Trausti var mikið heljarmenni og lét sér fátt fyrir brjósti brenna. Nú
tók hann langt tilhlaup og stökk, en náði þó ekki nærri því út í miðja á,
sem náði honum upp undir hendur.
Hann buslaði til baka skellihlæjandi og samferðamönnum var stórlega
létt.
Þá spurði pabbi: En stökk þá ekki Reynir á eftir?
Nei, hann vildi ekki stökkva, hann var á strigaskóm, svaraði Trausti
skælbrosandi.
Við hjónin þökkum samfylgdina og munum geyma með okkur allar hinar góðu
minningar.
Hörður Sigurbjarnarson.
Hörður Sigurbjarnarson