Sigurður Guðmundsson fæddist í Kaupmannahöfn 8. mars 1969. Hann lést í Lusaka, höfuðborg Sambíu, 19. apríl 2022.
Foreldrar hans eru hjónin Guðmundur Karl Sigurðsson, f. 20.2. 1945, og Laufey Brynja Einarsdóttir, f. 22.12. 1947. Systkini Sigga eru Arnar, f. 1.7. 1965, maki: Margrét Dóra Eðvarðsdóttir, f. 3.2. 1963; Guðrún Björk, f. 12.10. 1972, maki: Ólafur Hrafnsson, f. 14.10. 1969; Tinna Berglind, f. 29.3. 1974, maki: Konráð Vilhelm Bartsch, f. 10.8. 1971; Nanna, f. 19.6. 1977; Ragnhildur Rós, f. 14.12. 1981, maki: Ólafur S.K. Þorvaldz, f. 12.5. 1980; og Anna Gunndís, f. 23.2. 1983, maki: Einar Aðalsteinsson, f. 11.9. 1987.
Hinn 19. júní 2020 kvæntist Siggi heittelskaðri eiginkonu sinni, Njavwa Namumba, f. 3.4. 1992. Foreldrar hennar voru Martin Simumba, f. 27.1. 1961, d. 8.9. 2005, og Petronella Mukuka Simumba, f. 22.7. 1964, d. 7.1. 2007.
Siggi var áður kvæntur Jonnu Jónborgu Sigurðardóttur, f. 2.7. 1966.
Börn Sigga, sem hann átti með fyrri eiginkonu sinni, eru: Kolfinna Frigg, f. 1.3. 1998, Guðmundur Karl, f. 13.12. 1999, og Sjöfn, f. 14.2. 2006. Sonur Sigga og Njavwa er Óðinn Muzima Sigurðsson, f. 15.6. 2021. Stjúpbörn Sigga, börn Jonnu, eru: Selma Sigurðardóttir, f. 15.2. 1988, og Sigurður Halldór Eggertsson, f. 2.1. 1984.
Siggi ólst upp á Akureyri. Hann gekk í Lundarskóla og þaðan lá leiðin í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann lauk síðan stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. Hann fór þá í sína fyrstu heimsreisu af mörgum til Brasilíu, sem kveikti hjá honum ævintýraþrá sem leiddi hann í ferðalög um allan heim. Siggi vann lengi vel í verslun afa síns og nafna, Klæðaverslun Sigurðar Guðmundssonar á Akureyri, sem síðar hét Leikfangamarkaðurinn - Siggi Gúmm og var þá í eigu föður hans. Hann var umsvifamikill kaupsýslumaður og stofnaði sína eigin minjagripaverslun, The Viking, með tvær hendur tómar, sem á endanum urðu níu verslanir í heildina. Pólitík var honum hugleikin og sneri hann sér að bæjarpólitíkinni á Akureyri eftir að hafa verið harðgiftur Sjálfstæðisflokknum til fjölda ára og tók sæti sem bæjarfulltrúi Bæjarlistans á Akureyri.
Siggi var ævintýramaður af guðs náð, hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom, vinmargur, hjálpsamur, greiðvikinn og mikill dýravinur. Hann mátti ekkert aumt sjá og hefur gert ófá góðverkin sem fæstir vita af.
Langstærstan hluta ævi sinnar bjó Siggi á Akureyri en síðustu árin bjó hann í Lusaka í Sambíu.
Útför Sigga fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 9. júní 2022, klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju. Hlekkur á streymi: https://www.mbl.is/andlat
Elsku fallegi stóri bróðir og vinur.
Nú ert þú farinn á vit nýrra ævintýra og skilur eftir þig stórt skarð sem
aldrei verður fyllt. Penninn er þungur, erfitt og ósanngjarnt að þurfa að
skrifa þessi orð alltof snemma. Það er alveg óendanlega sárt að þú hafir
farið svona snemma frá okkur, það var svo margt sem þú áttir eftir að gera
og þú varst svo spenntur fyrir komandi tímum í Sambíu. Margir eiga sér
drauma en uppfylla þá aldrei. Það er ekki hægt að segja það um þig. Þú
varst hugmyndaríkur og bjartsýnn og framkvæmdir hluti sem flest okkar
dreymir aðeins um. Þú varst góður vinur og milli okkar ríkti kær vinátta og
traust. Ég mun sakna samtalanna okkar um allt og ekkert, grettumyndanna,
hlátursins og hrekkjanna þinna sem gerði líf okkar svo skemmtilegt. Þú
varst svo skemmtilegur og fyndinn, ótrúlega réttsýnn og með svo stórt
hjarta en á sama tíma svo lítið hjarta, máttir ekkert aumt sjá. Þótt þú
værir ekki spar á stóru orðin, gerðirðu svo mörg góðverk án þess að
krefjast neins í staðinn. Þú þurftir ekki að auglýsa það fyrir umheiminum
hvað þú værir góð sál. Þú gerðir frekar hlutina í skjóli nætur og þú einn
vissir hversu góðan mann þú hafðir að geyma. Þú varst hreinn og beinn og
ekkert fyrir kjaftæði. Sagðir hlutina eins og þeir voru en leyfðir öllum að
hafa sínar skoðanir. Þú hafðir þínar og hikaðir ekki við að bera þær á
torg. Ef þú skaust þig í fótinn, hikaðirðu heldur ekki við að taka það til
baka ef þú hafðir rangt fyrir þér, sem var auðvitað afar sjaldan. Ég veit
ekki hvað ég sagði oft við þig: Skrifaðu bók, þú ert svo frábær penni.
Skrif þín vöktu athygli og komust oftar en ekki í blöðin, enda varstu með
frábært viðhorf til lífsins, þótt það hafi ekki verið þér alltaf auðvelt.
Þér leið oftast vel en þú áttir líka erfiðar stundir sem ég veit að tóku af
þér toll. Það voru ekki allir sem fengu að koma nálægt þér, en milli okkar
ríkti mikil vinátta, ég átti það til að skammast í þér og ég veit að þú
hlustaðir, alveg eins og ég hlustaði á þig. Þú vildir alltaf bæta þig og ég
vildi óska að ég gæti sagt þér núna hve vænt mér þótti um þig. Veit að þú
veist það en mig langar bara svo að segja þér það einu sinni enn. Faðma þig
og segja þér hvað mér finnst þú frábær, skemmtilegur, fyndinn og fallegur,
sem þú vissir svo sem alveg. Sendir mér reglulega sjálfsmyndir þar sem þér
fannst þú sjúklega sætur, enda varstu það, alltaf flottur í tauinu, enginn
karlmaður átti jafn mörg skópör og þú, eða föt ef því er að skipta. Þú
varst mikill safnari og ferðaðist um heiminn eins og hann væri þinn. Hann
var þinn leikvöllur og þú lést ekkert stoppa þig í að upplifa eitthvað
nýtt. Hvert sem þú komst naustu þess að vera til, en þú naust þess líka að
vera einn með sjálfum þér og horfa á heilu þáttaraðirnar. Vildi að við
gætum horft saman á næstu Yellowstone-seríu, veit að þú verður þarna með
mér. Börnin þín voru augasteinarnir þínir og þú varst svo stoltur af þeim.
Svo varstu svo ástfangin af elsku Njavwa og lífi ykkar í Sambíu. Svo margt
sem þú áttir eftir að gera þótt þú værir búinn að gera mun meira en flestir
sem lifa aðeins í 53 ár. Þegar þú komst síðast til Íslands, þá hringdirðu í
mig og sagðist koma eftir tvo daga, hvort þú fengir ekki gistingu eins og
alltaf. Að sjálfsögðu var það í boði, en nokkrum sekúndum seinna labbaðirðu
inn, þurftir bara að gera smá grín. Mér þykir svo vænt um þessa minningu.
Krakkarnir mínir eiga eftir að sakna Sigga frænda, skemmtilegasti frændinn
sem kenndi þeim að veiða, fór með þau í gullfiskatjörn og keypti handa þeim
flottasta dótið og gaf alltaf bestu gjafirnar. Ekki var það verra að þú
varst alltaf með seðla í vasanum, til að gleðja lítil hjörtu. Stóru börnin
okkar eru góðir vinir og litlu strákarnir mínir, sem aldrei gátu setið
kyrrir, þeir eru svo líkir þér, uppátækjasamir og skemmtilegir. Þú dýrkaðir
þá, enda sástu sjálfan þig í þeim. Gleymi því seint þegar þú skildir ekki
af hverju þú ættir ekki að halda á yngsta syni mínum undir skírn. Ég hefði
dregið þig suður að óþörfu, en það kom fljótt í ljós að þarna eignaðist þú
nafna, lítinn Sigga. Klökkur og stoltur varstu, elsku bróðir.
Vindur er búinn að vera hérna hjá mér og ég er svo glöð að ég get fengið að
hafa hann, rölta með elsku kraftmikla gaurinn þinn sem er alltaf með
slímugan bolta fyrir mann að kasta, gott fyrir okkur klígjugjörnu vinina.
Ég kúgaðist svo um daginn að ég ældi næstum, hló svo eftir það, því þú
hefðir gert nákvæmlega það sama. Þú varst mér svo góður. Þegar ég var
unglingur á vergangi, þá hýstirðu mig, hugsaðir um mig og hentir í mig
þúsundköllum. Alltaf til staðar fyrir litlu systur, í blíðu og stríðu. Ég
veit að þú treystir Óla til að sjá um mig eftir þinn dag. Milli ykkar var
góð vinátta og þið höfðuð gaman af veiðiferðunum ykkar og að tala um gráa
fiðringinn ykkar, mótorhjól.
Þú sagðir við mig í síðustu afmæliskveðju að þú myndir alltaf grípa mig ef
eitthvað bjátaði á, ég finn að þú ert enn til staðar og veit að þú munt
aldrei svíkja það loforð og grípa mig, alltaf.
Það er svo margt sem ég vil segja en sumt af því geymi ég fyrir mig, annars
er það efni í að minnsta kosti heila bók.
Ég lofa að halda vel utan um ástina þína, Njavwa, sólargeislana þína,
stolt og yndi, Kolfinnu, Guðmund, Sjöfn og Óðin. Ég verð alltaf til staðar
fyrir börnin þín eins og þau væru mín eigin.
Farðu vel elsku uppáhalds stóri bróðir minn, kæri vinur minn. Hjarta mitt
springur úr sorg en ég veit þú verður þarna til að grípa mig, alltaf.
Þín litla systir,
Ragnhildur Rós.