Ísak Hörður Harðarson fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1956. Hann lést í faðmi dætra sinna á Landspítalanum 12. maí 2023.
Foreldrar hans voru Hörður Þór Ísaksson, f. 31.3. 1934, d. 29.6. 1986, og Hildur Sólveig Ísleifsdóttir, f. 8.7. 1934, d. 28.12. 1969. Ísak ólst upp hjá föðurforeldrum sínum á Snorrabraut. Þau voru Mensaldur Ísak Jónsson, f. 13.10. 1903, d. 6.9. 1989, og Ida Jensen, f. 3.6. 1912, d. 20.12. 2002. Hálfsystkin Ísaks eru Natan Þór Harðarson, f. 17.5. 1960, Ægir Þór Harðarson, f. 13.8. 1961, og Ida Harðardóttir, f. 18.11. 1962.
Fyrrverandi eiginkona Ísaks er Ólöf Garðarsdóttir, f. 29.6. 1959. Dætur þeirra eru: 1) Katla, f. 11.7. 1984, gift Guðlaugi Hávarðarsyni, f. 4.6. 1981. Sonur þeirra er Styrkár, f. 5.7. 2011. 2) Guðrún Heiður, f. 14.1. 1989, gift Sveini Steinari Benediktssyni, f. 7.7. 1981. Dóttir þeirra er Dýrfinna, f. 3.7. 2014.
Ísak Harðarson lauk stúdentsprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1977, hann nam um stund íslensku við Háskóla Íslands og tók próf í sjúkraliðun. Ísak sendi frá sér sína fyrstu bók, ljóðabókina „Þriggja orða nafn“, árið 1982 og síðan hefur hann gefið út fjölda ljóðabóka, smásagnasöfn, skáldsögu og endurminningabók auk þess sem hann var mikilvirkur þýðandi. Ísak hlaut Rithöfundaverðlaun Ríkisútvarpsins árið 1994 og hann var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2011 fyrir bók sína „Rennur upp um nótt“. Síðasta verk hans, smásagnasafnið „Hitinn á vaxmyndasafninu“, kom út árið 2021. Ísak vann ýmis störf meðfram ritstörfum, meðal annars á heilbrigðisstofnunum og við akstur strætisvagna. Ísak var þekktur fyrir frumlegt myndmál í ljóðum sínum og sterkan trúarþráð en hann virtist ofurnæmur fyrir straumum samtímans. Þótt viðfangsefnin hafi oft verið alvarleg og myrk þá voru verk hans oftar en ekki full af hugmyndaauðgi, húmor og von.
Útför Ísaks fer fram frá Neskirkju í dag, 24. maí 2023, klukkan 13.
ÍSAK HARÐARSON
Það eru orðin fjörutíu ár síðan ég kynntist Ísaki Harðarsyni, það var
semsagt árið 1983. Ég hafði reyndar haft veður af honum árið áður, þegar
verðlaunaljóðabók hans, Þriggja orða nafn, barst mér í hendur og ég las af
miklum áhuga, eða áfergju væri nær að segja. Mér fannst með ólíkindum hvað
þessi maður, sem var aðeins fimm árum eldri en ég, hafði mikil tök á
ljóðforminu þegar í sinni fyrstu bók, og hvernig hann náði utan um ýmsa þá
hluti sem erfitt er að koma í orð, ekki síst á okkar dögum, þegar
óendanleikinn þrengist um ellefu hugtök á sólarhring einsog segir í einu
af síðari ljóðum hans.
Eftir að við höfðum hist þróaðist vinátta okkar hratt, og þau voru mörg
kvöldin þegar ég gekk eftir gamla hitaveitustokknum sem liggur ofan við
Bústaðaveginn, áleiðis til Ísaks og Ólafar á Byggðarendanum. Sjálfur átti
ég þá heima í Neðstaleiti, sem á þessum tíma, veturinn 1983-4 var rétt að
rísa sem hverfi hrárra nýbygginga. Þau eru minnisstæð þessi kvöld á
Byggðarendanum, og við tókum upp á ýmsu. Þó hvorugur okkar Ísaks væri
músíkant, ekki einusinni neitt í námunda við það (að minnsta kosti ekki
undirritaður), gátum við setið heilu kvöldin saman við gamla píanóið sem
þau áttu, og samið fjórhent allskyns vitleysu af fingrum fram, líklega í
anda Keith Jarretts, sem Ísak hélt mikið upp á og spilaði oft fyrir mig. En
þarna sátum við semsagt við píanóið, að semja. Á eftir var Genesis oft sett
á fóninn, uppáhaldshljómsveit Ísaks, og í ljósi þess sem síðar varð hafði
nafn sveitarinnar nánast forspárgildi fyrir ævi hans.
Ég er afskaplega þakklátur fyrir að þessi tónlist sem við börðum saman
(ekki óviðeigandi orðalag um meðferð okkar á nótnaborðinu) skuli ekki hafa
verið tekin upp, en það breytir ekki því að við skemmtum okkur konunglega.
Önnur kvöld tókum við upp á því að yrkja saman í línustrikaða stílabók,
órímuð ljóð þar sem annar byrjaði og hinn kláraði, til skiptis. Það er
sömuleiðis mjög þakkarvert að þessi ljóð skuli hafa týnst, og ég ætla rétt
að vona að þau finnist ekki uppi á rykþrungnu háalofti einhverntíma. Slíkt
er hinsvegar aldrei jafn öruggt og með mismunandi kórrétta tóna sem flögra
út í loftið og koma aldrei aftur ef ekkert upptökutæki grípur þá. Þennan
vetur vorum við svo hvor í sínu lagi að vinna að ljóðabókarhandritum, sem
komu síðan út vorið eftir, samtímis og hjá sama forlagi, meira að segja með
samræmdu útliti. Bók Ísaks var hið fræga Ræflatestamenti, sem hefur
réttilega hlotið sérstakan sess í bókmenntasögunni.
Vinátta okkar hélt áfram að blómstra, og einnig síðar, þegar þau hjónin
fluttu á Kleppsveginn. Þar orti Ísak við lítinn glugga á fjórðu hæð, og þar
var hann nógu hátt uppi til að komast um síðir í samband við skapara
sinn. Eftir að hann hitti Guð strjáluðust aðeins samfundir okkar, það var
einsog hann væri meira sjálfum sér nógur um félagsskap eftir trúarreynslu
sína. Ég hafði fullan skilning á þessari upplifun hans út af fyrir sig, en
hafði þó sjálfur ekki orðið fyrir neinu slíku, og það takmarkaði ögn
samskipti okkar á þessum tíma. Það komu tímabil þar sem við hittumst fremur
strjált, þótt báðir fylgdust grannt hvor með öðrum úr fjarlægð. Ísak var
ekki auðveldasti vinur í heimi, það skal strax tekið fram, og sjálfsagt var
ég það ekki heldur, og vissulega gat hvesst hressilega á milli okkar. Við
jöfnuðum þó ávallt slíkt á endanum, þótt nokkur tími gæti liðið.
Eftir nokkurt skeið þar sem við höfðum hist fremur lítið tókum við aftur
upp þráðinn, þá var Ísak orðinn einn, og búinn að kaupa sér rauðan
sendibíl, sem hann fór á um landið og svaf í og orti. Hann ók honum jafnvel
um borð í Norrænu og ferðaðist um Færeyjar, sér til mikillar ánægju. Við
Óskar Árni Óskarsson og hann tókum upp á því að fara hálfsmánaðarlega í
kvöldferðir á þessum sterkrauða sendibíl (sem var hvergi nærri nýr, fremur
en aðrir bílar sem Ísak hafði eignast, mér hefði þótt eitthvað
ósamrýmanlegt við að sjá Ísak á splunkunýjum bíl, hann hafði mun meiri
áhuga á hverjum splunkunýjum degi lífsins en véltækni) og skoða nágrenni
Reykjavíkur, hvort sem var að vetri eða sumri. Það voru eftirminnileg
kvöld, sérstaklega man ég eitt þeirra, þar sem við stóðum þrír undir
bragandi norðurljósahimni við Hvaleyrarvatn. Þá fann maður að Ísak var í
sínu elementi með Guð sinn logandi yfir sér og allar stjörnurnar, sem
voru honum ávallt hugleiknar þar sem hann hafði frá unga aldri stundað
stjörnuspeki, og vann raunar um tíma fyrir sér með því að gera stjörnukort
fyrir fólk. Að sumu leyti minnti hann dálítið á sögupersónuna í Drag plóg
þinn yfir bein hinna dauðu eftir Olgu Tokarczuk, þar sem sú sem segir frá
er altekin af stjörnuspeki og dýrum. Og talandi um Dýrahringinn; Ísak
átti lengi einhvern þann sérkennilegasta kött sem ég hef fyrirhitt, og
kisan stóð fyllilega uppi í hárinu á eiganda sínum sem algerlega einstök
lífvera, með karakter sem seint gleymist. Hver hefur vitað til þess að
venjulegur maður yrði þjóðskáld? spurði Jakobína Sigurðardóttir forðum, og
þessi orð mætti heimfæra á Ísak. Því með sínum hætti var hann raunverulegt
þjóðskáld, eitt fárra sem við höfum eignast á síðari tímum og standa undir
því nafni án þess að kikna vitundarögn. Fyrir mína parta er hann
einhverskonar hliðstæða við Matthías Jochumsson eða Hallgrím Pétursson á
okkar tíð. Menn geta verið sammála eða ósammála um þessa fullyrðingu eftir
atvikum - svona blasir þetta við mér. En Ísak var ekki bara ljóðskáld, hann
var líka frábær prósahöfundur. Fyrra smásagnasafn hans Snæfellsjökull í
garðinum er stórmerkileg bók, sem lumar á gersemum. Hitinn á
vaxmyndasafninu er sömuleiðis afburða verk. Kannski er þó ljóðabókin
Stokkseyri meistaraverk hans, þótt fleiri bækur mætti nefna til, þar á
meðal Rennur upp um nótt. Listinn gæti þó orðið nokkuð langur, því af mörgu
er að taka.
Eitt þeirra nútímaskálda sem Ísak hefur minnt mig á, er Hannes Sigfússon,
það voru einhver sérstæð og hálfdulin líkindi með þeim, þótt þeir væru
ólíkir menn að ýmsu leyti. Báðir voru þeir síðan stórsnjallir þýðendur, og
auðguðu íslenska þýðingarflóru mjög með framlagi sínu. En hvað sem því
líður að líkja Ísaki saman við önnur skáld, er nærtækast að segja að hann
hafi verið hann sjálfur, í raun engum líkur, hann kom einsog vígahnöttur
inn í íslenskar bókmenntir, og logaði þar skært og lengi.
Á síðustu árum komu þurrkakaflar í samskiptum okkar einsog stundum áður, en
síðustu misserin höfðum við aftur farið að umgangast hvor annan og vera í
stöðugu sambandi sím- og póstleiðis, og ég er þakklátur fyrir það. Það var
aldrei lognmolla í kringum Ísak, hann hafði sterkar skoðanir á hlutunum, og
vissi vel hvers hann var megnugur. En ég hafði á tilfinningunni síðari árin
að honum þætti sem fullmikið hefði hljóðnað um nafn sitt. Þó átti hann sér
alltaf sterkan lesendahóp sem fylgdi honum gegnum þykkt og þunnt og sá
snilligáfu hans.
Þótt þýðingar hans væru merkar, var ég alltaf að vona að hann gæti lagt þær
til hliðar um stund og einbeitt sér að frumsömdum verkum, og raunar talaði
hann um það við mig einhverntíma í vetur að hann hygðist gera einmitt það.
Eitthvað mun hann hafa átt í handraðanum af ljóðum þegar hann lést, og væri
forvitnilegt að sjá þann afrakstur á bók ef handritið hefur verið svo langt
komið. Hann sagði mér reyndar fátt eitt um það, og talaði að jafnaði lítið
um verk sín. Og hann var ekki gefinn fyrir að fara í fjölmiðla (hann
kallaði þá mjölfiðlur) og básúna út mikilvægi sitt.
Ég vil að lokum þakka Ísaki fyrir þá einstöku vináttu sem hann gaf mér
þegar best lét á milli okkar. Hann var margbrotinn maður og stór í sniðum,
og hann var líka stórskáld, eitt okkar stærstu skálda á hvaða tíma sem
miðað er við. En líf hans var flókið og oft á tíðum langt frá því að vera
auðvelt, stundum fannst manni að hann gerði sér erfiðara fyrir en
nauðsynlegt var, en hann fór alltaf sínar eigin leiðir, hvað sem á gekk.
Einhverntíma sagði Halldór Laxness: Stórskáld er maður sem hefur ratað í
miklar raunir, og þessi orð nóbelsskáldsins má vel heimfæra upp á Ísak
Harðarson.
Gyrðir Elíasson.