Páll Dalmar var fæddur í Reykjavík 30. júní 1952. Hann lést 4. september síðastliðinn á Sct Marie Hospice í Vejle í Danmörku.

For­eldr­ar Páls Dalmars  voru Kon­ráð Óskar Sæ­valds­son, f. 21. júní 1924, d. 5. apríl 2012, og Alice Dalm­ar Sæ­valds­son, f. 12. júlí 1919, d. 12. október 1992.

Systkini Páls eru Linda Louise Kon­ráðsdótt­ir, f. 17. ágúst 1950, Kon­ráð Stefán Kon­ráðsson f. 19. des­em­ber 1956. Hann lést 11. janú­ar 2019. Konráð Stefán var kvænt­ur Al­dísi Ágústs­dótt­ur, f. 4. ágúst 1948, d. 5. mars 2009. Hálf­syst­ir Páls var Anna Karólína Kon­ráðsdótt­ir, f. 18. apríl 1946, d. 27. febrúar 2017. Móðir henn­ar var Magnea Vil­borg Þórðardótt­ir.

Eig­in­kona Páls Dalm­ars er Alice Bjerrgård Kon­ráðsson. Þau gengu í hjónaband 1984. Þau bjuggu í Dan­mörku. Þeirra son­ur er Hans Christian Dalm­ar. Hann á tvo syni. Alice á einn son frá fyrra sambandi.

Páll á Sæv­ar Briese­meister úr fyrra hjóna­bandi. Sævar á þrjú börn og eitt barnabarn. Dóttir Páls er Telma Steingrímsdóttir. Hún á þrjú börn.

Páll bjó í Reykja­vík, á Seltjarn­ar­nesi og síðan  í Danmörku frá því seint á áttunda áratugnum. Hann ólst upp í Njörvasundinu og í Fells­múl­an­um í Reykja­vík.

Bálför Páls fer fram 16. september klukkan 11:30 að dönskum tíma, 9:30 að íslenskum tíma, í Vestre Kapel, Silkeborgvej 40 í Horsens.

Það rignir af krafti haustið 1956 í Reykjavík. Gengur á með vindhryðjum sem lemja allt sem á vegi þeirra verður. Við erum nýflutt í húsið sem varla er þó fullgilt hús. Kjallarinn er reyndar búsetuhæfur en hæðin að myndast fyrir ofan og risið ekki komið á dagskrá. Ég er í stífluframkvæmdum. Veghefillinn nýfarinn um Njörvasundið og nægt efni í vegkantinum. Móbrúnir lækir renna eftir götunni og ég veiti þeim að lóninu sem ég er að útbúa niðri á lóðinni. Mér gengur illa að hemja vatnið og fá það til að vera kyrrt innan stífluveggjanna sem sífellt molna niður og vatnið flæmist um allt.

Sæll, á ég að hjálpa þér? segir rödd sem ég heyri út undan mér. Já, það væri gott að fá hjálp, segi ég og stari í rigninguna og sé móta fyrir strákpeyja sem stendur úlpuklæddur og í vaðstígvélum uppi á götunni. Þá næ ég í hjólbörurnar og skófluna, segir hann og fer en kemur að vörmu spori akandi hjólbörum sem eru rauðar og gular á litinn og úr tré. Nú fer að ganga betur og varnargarðarnir hækka fljótt og við hemjum vatnið og stórt lón tekur að myndast. Þetta eru fyrstu kynni okkar Páls, æskuvinar míns, sem bjó í Njörvasundi 40.

Þessi morgunstund í rigningunni varð upphaf að ævilangri vináttu okkar. Þarna voru slegnir tónar sem hljómuðu alla tíð í okkar samskiptum.

Æskan, tímakennslan, barnaskólinn og gagnfræðaskólinn, þar vorum við bekkjarbræður og samstarfsmenn jafnt í náminu sem prakkarastrikunum. Við fengum hjálp til skiptis á heimilum okkar í dönskunni og í stærðfræðinni. Reyndum að lauma okkur í mat þegar eitthvað gott var á borðum hjá öðrum hvorum okkar. Við unnum saman í mörg sumur á unglingsárunum og fórum út á lífið saman og fengum að fara í þrjúbíó á sunnudögum og stundum fimmbíó með pabba Páls. Tókum landsprófið saman en eftir það fórum við hvor í sinn skólann. Páll í Hamrahlíðina og ég í Kennaraskólann.

Páll og fjölskylda hans fluttu nokkru áður í Fellsmúlann og síðar á Unnarbrautina. Dagleg samskipti okkar urðu þá ekki með sama móti og áður. Við hittumst þó oft um helgar og hringdum stundum hvor í annan þess á milli. Ég gat alla tíð leitað til Páls. Hann var hjálpsamur og mikill gæðadrengur.

Árið 1976 fæddust fyrstu börnin okkar.

En ekki gengur allt eins og maður óskar helst og verkefni tilverunnar eru mörg og af margvíslegum toga. Páll og Rie konan hans skildu að skiptum og hún fluttist til Danmerkur og þá fór Páll líka. Hann vildi fylgja syni sínum eftir og þá varð vík milli vina en við heimsóttum hvor annan á þessum árum og eftir að Páll hóf samband með Alice 1980 vorum við gestir á heimilum hvor annars í nokkur skipti. Símtölin voru mörg á þessum Danmerkurárum Páls.

Þegar Kristín mín veiktist kom Páll frá Danmörku til að styðja mig og kveðja hana á sjúkrahúsinu þar sem hún lá banaleguna. Síðan fór hann aftur og lífið hélt áfram og færði gleði og sorgir eins og gengur og gerist.

Páll og Alice áttu saman einn dreng, Hans Christian, sem í dag á tvo drengi með sinni konu. Sævar á þrjú börn og eitt barnabarn. Páll eignaðist eftir sextugt dóttur, Telmu, sem þá var komin á fimmtugsaldurinn. Hún á þrjú börn. Þau náðu að kynnast nokkuð. Páll kom síðast til Íslands í janúar 2019. Stefán bróðir hans lá þá banaleguna á sjúkrahúsi. Linda systir þeirra býr á dvalarheimilinu Fellsenda í Dalasýslu.

Við Katrín fórum til Danmerkur núna í ágúst og dvöldum þar í 10 daga. Við heimsóttum Pál eins oft og mögulegt var. Hann raulaði lag eitt skiptið sem við komum: Even the bad times are good, sönglaði hann og spurði mig svo: Önsi, manstu hverjir sungu þetta? Nei, ég mundi það ekki. Tremeloes, sagði hann og brosti út í annað. Páll var þá orðinn mjög veikur og þessi duglegi og sterki maður varð að lokum að játa sig sigraðan. Hann lést 4. september á fögrum síðsumardegi á Sct. Marie Hospice. Nánasta fólkið hans var hjá honum þegar hann kvaddi.

Veistu ef þú vin átt
þann er þú vel trúir
og vilt þú af honum gott geta.
Geði skaltu við þann blanda
og gjöfum skipta,
fara að finna oft.
(Úr Há­va­mál­um)

Eiginkonu, börnum, barnabörnum, systur og vinum Páls sendum við Katrín innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Páls Dalmars Konráðssonar, míns kæra vinar.

Pétur Önundur Andrésson.