Halldóra Pálsdóttir fæddist 16. nóvember 1935. Hún lést 2. september 2023.

Útför Halldóru fór fram 12. september 2023.

Elsku Krúttý mín.

Við fórum skyndilega saman upp á gjörgæslu og svo upp á lungnadeild og vorum að losna úr covid-einangruninni. Ég á seint eftir að gleyma því er ég var vakinn upp um miðja nótt til að koma og kveðja þig í hinsta sinn, elsku Krúttý mín. Ég veit að þú varst ekkert á þeirri leið að kveðja þennan heim.

Þú sem stóðst með mér í gegnum allt! Já allt, hvort sem það var súrt eða sætt. Þú sást um að ala upp börnin okkar á meðan ég dró björg í bú. Betri konu og móður hefði ég aldrei getað kynnst og tekur mig það mjög sárt að rita til þín kveðjuorð.

Fallega einbýlishúsið sem við byggðum með okkar höndum, öll ævintýrin sem við lentum í á lífsleiðinni, frábærar utanlandsferðir með þér og fjölskyldunni okkar.

Ég sakna þín óendanlega mikið, elsku fallega konan mín. Far þú í friði, fallega sál.

Þinn að eilífu,

Haddi (afi).

Hörður Adolphsson.