Kolfinna Sigrún Guðmundsdóttir fæddist í Reykjavík 13. desember 1953. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 13. nóvember 2023.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Hagalín Kristjánsson, f. 14. október 1926, d. 14. ágúst 1974, og Elín Guðjónsdóttir, f. 18. júní 1931, d. 10. maí 2003.
Systkini Kolfinnu eru: Kristján, f. 1. nóvember 1949, kvæntur Hildi Hermannsdóttir; Barði, f. 21. febrúar 1951, d. 23. október 1987; María, f. 14. júní 1957, gift Jóni Heiðari Guðjónssyni; Haraldur, f. 28. júní 1958, d. 28. júlí 2008.
Kolfinna giftist 29. ágúst 1976 Hlöðveri Sigurðssyni, f. 29. ágúst 1946. Dætur þeirra eru: 1) Elín Guðný, f. 22. apríl 1986, gift Sæmundi Maríel Gunnarssyni, f. 18. júní 1982, börn þeirra eru: Hlöðver Gunnar, f. 7. júní 2013, og Kolfinna Rósa, f 19. október 2014. 2) María Peta Hagalín, f. 11. september 1988, gift Magnúsi Aldan Guðlaugssyni, f. 17. maí 1991, börn þeirra eru: María Rós, f. 6. janúar 2011, Haraldur Elí, f. 30. maí 2014, Andrea Mist, f. 22. ágúst 2014, Magnús Aldan, f. 5. mars 2020, og Barði Aldan, f. 30. maí 2021. 3) Kolfinna Hagalín, f. 6. ágúst 1990.
Kolfinna fæddist á Vesturgötu 35 í Reykjavík en fluttist fimm ára gömul með fjölskyldu sinni að Básenda 6 þar sem hún sleit barnsskónum. Kolfinna og Hlöðver hófu búskap árið 1974 og bjuggu fyrst um sinn á Sólvallagötu 66 í Reykjavík. Árið 1987 fluttust þau í Hamrahverfið í Grafarvogi þar sem þau bjuggu sér og dætrum sínum heimili í 30 ár. Síðustu sex árin hafa þau hjónin búið í Leirvogstunguhverfi í Mosfellsbæ ásamt dætrum sínum og fjölskyldum.
Kolfinnu var kaupmannseðlið í blóð borið en starfsferill hennar hófst í Krónunni í Mávahlíð í verslun foreldra hennar. Kolfinna og Hlöðver unnu mikið saman á þeim tæpu 50 árum sem þau fengu saman. Fyrst um sinn voru þau í sjoppurekstri, síðar stofnuðu þau fiskvinnsluna Humal. Fóru til Bandaríkjanna og lærðu kertaskurð og opnuðu verslunina Blóm og kerti. Þau stofnuðu Hlöllabáta árið 1986 og sinntu þeim rekstri til ársins 2012 þegar þau seldu. Kolfinna var sælkeri mikill og hafði gaman af því að útbúa góðan mat og í gegnum tíðina tók hún að sér að sjá um veitingar í veislur fyrir vini og kunningja.
Síðasta verkefni Kolfinnu var rekstur fjölskyldunnar á Litlu kaffistofunni við Suðurlandsveg.
Útför Kolfinnu verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 27. nóvember 2023, klukkan 13.
Ég er þakklátur í dag! Það hljómar kannski furðulegt þar sem ég fylgi
Kollu frænku til grafar í dag. Konu sem ég hef alltaf litið á sem þriðja
uppalandann minn.
Ég er vissulega sorgmæddur og hef verið frá því hún kvaddi okkur þann
13.11. 23. En aðallega er ég þakklátur fyrir að hafa átt næstum 50 ár af
kærleik, hlátri, samtölum, kennslustundum, vináttu og öryggistilfinningu
með Kollu frænku.
Kolla var einungis tvítug þegar ég fæddist, held að frá því að hún hafi séð
mig fyrst hafi hún ákveðið að elska mig og að ég yrði uppáhaldið
hennar.
Þar sem að Kolla var bæði þrjósk og fylgin sér, skipti hún aldrei um skoðun
og stóð við þessa ákvörðun sína næstu 50 árin. Ég fékk aldrei að hafa það á
tilfinningunni að ég væri ekki hennar uppáhalds. Í rúmlega áratug var ég
einn um Kollu frænku og hún var barnlaus og ég var hennar uppáhalds allt.
Ég eyddi ómældum tíma hjá henni og Hlölla á Sólvallagötunni í pössun eða
bara af því að hana langaði að hafa mig hjá sér. Þegar ég var að verða
unglingur komu dætur þeirra Hlölla í heiminn, fyrst Ella svo Mæja og loks
Kolla littla hver á eftir annarri og Kolla frænka átti orðið sín eigin
börn.
Þó svo að færi aldrei á milli mála að Kolla frænka sæi ekki sólina fyrir
stelpunum sínum og ættu hjartað hennar skuldlaust þá leið mér aldrei eins
og það væri á minn hlut, hjartað hennar einfaldlega stækkaði og ég fékk
áfram að vera hennar. Kolla skilur eftir stórt skarð sem verður aldrei
fyllt, enda þekki ég ekki lífið án hennar. En ég hugga mig við það að ég á
50 ár af minningum sem ég mun geyma hjá mér alltaf.
Ég er búin að komast að því að ég kann ekkert að semja minningargrein.
Þegar ég sest niður til að skrifa, þá fer ég að velta því fyrir mér af
hverju ég finn til svona mikils saknaðar? Kolla frænka er bara nýfarin og
síðustu árin hafa oft liðið of langur tími milli samtala hjá okkur.
Það var ekki alltaf þannig, en fyrir 12 árum flutti ég til Danmerkur og
eins og gengur og gerist breyttust næturheimsóknir í myndsímtöl og
heimsóknir með allt of löngum millibilum.
Þegar ég hugsa til baka og reyni að muna eins langt aftur og ég get koma
upp í hugann á mér minningar um Sólvallagötuna og baðkarið. Að fara í bað
hjá Kollu frænku var áskorun þegar að ég var lítill. Hún kenndi mér að
baðið ætti að vera það heitt að manni mætti svima aðeins. Og ef húðin væri
ekki rauð þegar maður kom upp úr þá hefði baðið ekki verið nógu heitt og í
dag vil ég hafa það þannig. Í minningunni var ekki mikið af barnadóti á
Sólvallagötunni, sem skipti ekki máli því það mátti leika sér með allt sem
Kolla og Hlölli áttu (líka fína dýra dótið). Ég man eftir litabókum og að
Kolla kenndi mér að lita og halda mér innan línanna á meðan við hlustuðum á
Villa Vill eða ef að Hlölli fékk að ráða þá hljómaði hinn kóngurinn Elvis.
Villi Vill og Elvis það er lýsandi fyrir þau hjónin ótrúlega ólík en
meistarar bæði tvö. Kolla tók mig með í vinnu hvar sem hún var, hvort sem
það var fiskibolluverksmiðja, sjoppa, blómabúð eða bátagerð og alltaf fékk
maður að vinna með. Að vinna gáfulega var eitt af því sem að hún
innprentaði í mig og lagði áherslu á að vera með verkvit, sem er eitthvað
sem pabbi hélt svo áfram með. Svolítið eins og þau hafi lært það frá sömu
manneskjunni.
Alveg sama hvað Kolla var að gera þá tók hún mig með og lét eins og við
værum að gera það saman. Ef við vorum dugleg þá leigðum við spólu, fengum
kók og lakkrísrör. Svo horfðum við öll þrjú ég Kolla og Hlölli á mynd fram
eftir kvöldi (yfirleitt eitthvað sem ég annars hefði aldrei fengið að sjá).
Það er eitthvað sem ég man svo vel, það er hversu mörg fullorðin samtöl ég
upplifði sem krakki því mér var aldrei ýtt til hliðar hjá Kollu. Ef ég
skildi ekki eitthvað var það útskýrt. Hún var aldrei að koma fram við mann
eins og krakka bjána. Þegar ég var mjög ungur, það ungur að ég vildi láta
lesa fyrir mig fyrir svefninn kom í ljós að það voru heldur ekki neinar
barnabækur á Sólvallagötunni. Kolla tók þá bara upp á því að lesa fyrir mig
Sannar sögur og Eros eða bara það sem hún var að lesa hverju sinni.
Mínar uppáhaldsminningar frá Sólvallagötunni eru kvöldin þar sem að vinir
Kollu og Hlölla komu í heimsókn, sem gerðist oft. Hlölli var á fullu í AA á
þessum tíma en Kolla í Al Anon og voru þau orðin ansi vinmörg á þessum
tíma. Oft kom góður hópur af allskonar fólki sem var afar ólíkt en átti það
sameiginlegt að vera búið að taka ákvörðun um að breyta lífinu og að hafa
gaman. Það fylltist eldhúsið af skemmtilegu fólki sem sat og borðaði, drakk
kaffi, reykti og reyndi að láta hvort annað fara að hlæja. Ég hef verið
svona 8 eða 9 ára gamall þarna og ég dýrkaði þennan hóp af fólki. Ég vildi
fá að vera með og ég fékk það (eins og flest sem ég vildi hjá Kollu). En
þegar að klukkan var orðin margt, þá var búið um mig með því að sækja allar
sængur í húsinu og gert hreiður á eldhúsgólfinu svo ég gæti verið með fram
á nótt eða þangað til að ég lognaðist út af út frá hláturssköllum og góðum
sögum. Enn þann dag í dag er þetta með því betra sem ég geri, sitja fram
eftir inni í eldhúsi með góðu fólki og grínast.
Ég var orðin svo mikill góðkunningi þessa hóps að þegar að þau fóru öll á
Broadway til að sjá ungfrú Ísland keppnina, þá vildi þannig til að ég var í
helgargistingu hjá Kollu og Hlölla. Það koma aldrei annað til mála að ég
færi annað í pössun, og var ég því settur í fínni föt og tekin með á
Broadway. Kolla græjaði þetta allt með Óla Laufdal sem fannst þetta ekkert
mál þrátt fyrir að ég væri meira en áratug of ungur. Þarna fékk ég að
skottast um bæði baksviðs og innan um fína fólkið eins og ég ætti staðinn,
þannig leið mér oftast með Kollu frænku eins og ég ætti staðinn.
Þegar að ég varð aðeins eldri og flutti með fjölskyldunni í nokkur ár til
Noregs kom ég gjarna heim á sumrin og var þá hjá Kollu og Hlölla. Þar var
alltaf best að vera og ég eignaðist vini í vesturbænum sem ég á enn þá í
dag.
Á unglingsárunum þegar að ég fór að verða uppreisnargjarn og að gera
allskonar vitleysu var alltaf hægt að fara til Kollu þegar að fullorðna
fólkið var of heimskt til að skilja mann. Ég gat talað við hana um allt
og ekkert. Hún bara skildi mig og leyfði mér að vera ég. Maður gleymdi
einfaldlega að hún væri þá orðin ein af fullorðna fólkinu. Alveg sama hvort
um var að ræða glappaskot eða sigra þá var hún í mínu horni. Fyrst til að
fagna, fyrst til að fyrirgefa og fremst með útrétta hjálparhönd.
Ég get ekki ímyndað mér að hún hafi alltaf haft tíma fyrir heimsóknirnar
frá mér sem oft byrjuðu í kvöldmat og enduðu eftir allt of marga kaffibolla
löngu eftir að allir aðrir voru farnir að sofa. En Kolla gaf sér tíma og
hlustaði á mig full af áhuga og eftirtekt.
Ég vann mikið fyrir Kollu þegar að ég varð eldri, þegar hún og Hlölli
opnuðu hvern Hlöllabáta staðinn á fætur öðrum. Ekki endilega af því að
vinnan væri svo skemmtileg meira því að vel unnið verk fyrir Kollu var
betra en vel unnið verk fyrir nokkurn annan. Ég man vel eftir mörgum nóttum
á hinum og þessum stöðum sem voru að fara að opna á morgun og allir aðrir
farast úr stressi, svefnleysi og þreytu. Þá áttum við Kolla það til að líta
hvort á annað, brosa og segja: Nú er gaman! Það er eitthvað sem frænka mín
smitaði mig af, að vinna undir pressu er gaman.
Sjálfsagt verður ekki fundin duglegri manneskja en Kolla frænka eða meiri
nagli. En það sem kannski einkenndi hana var að það gat verið svo rosalega
gaman í vinnunni, hún naut þess að vinna mikið og fara í heitt bað á eftir
og láta líða úr sér.
Þegar að ég og Hildur vorum að byrja að slá okkur saman og vorum búin að
fara í gegnum bíó- og vídeókvöldstímabilið okkar þá kom tímabil þar sem að
við áttum það til að fara til Kollu í kaffi á kvöldin og sitja fram eftir
lengi og spjalla um allt og ekkert. Það var mér mikilvægt að þær myndu
kynnast vel og yrðu vinkonur. Það kom svo á daginn að þegar að Hildur varð
ólétt þá var Kolla efst á lista yfir þá sem máttu vita á eftir foreldrum
okkar. Kolla spilaði líka stóra rullu í brúðkaupinu okkar þegar að breyta
þurfti öllu viku fyrir brúðkaup þá var gott að hafa Kollu með.
Þegar að frumburðurinn Kristján Gabríel kom í heiminn var Kolla mætt fyrst
af öllum upp á fæðingardeild, það að verða pabbi var stórt fyrir mér og þá
var það stórt fyrir henni. Þegar að Kolla fékk Kristján í fangið sá ég á
henni að hún væri búin at taka sömu ákvörðun og þegar ég fæddist. Hún myndi
elska hann og hann yrði líka uppáhalds, á þeirri stundu var það mér meira
virði en allt annað.
Árin liðu og lífið gekk sinn vanagang þangað til að við Hildur ákváðum að
flytja til Danmerkur með fjölskylduna í tvö ár fyrir 12 árum síðan. Ég sá á
Kollu að þessi hugmynd var ekki ein af hennar uppáhalds, en studdi hana
engu að síður. Við vorum ekki búin að vera lengi hérna úti þegar að Kolla
greindist fyrst með krabbamein. Á þeim tíma var það alvarlegt mál og
útlitið ekki gott. Kolla kom til Danmerkur til að fara í skanna og ég tók á
móti henni og eyddi degi með henni í Kaupmannahöfn, bara við tvö á röltinu.
Það var þrátt fyrir allt frábær dagur og enn betra kvöld. Við fórum yfir
allt og ekkert, ræddum sjúkdóminn og hvernig hún ætlaði að tækla hann. Ég
man að ég hugsaði að aumingja krabbinn ætti ekki séns í frænku mína á
þessum tíma. Enda var það raunin hún fór í meðferð til Noregs og af því að
það bar upp á páskum komu hún og Ella Guðný yfir til okkar yfir páskana og
eyddu tíma með okkur fjölskyldunni í dönsku sumarhúsi. Þarna var Kolla
veik, en full af baráttuhug. Það sýndi sig svo að meðferðin hafi virkað og
við tóku nokkur góð ár þar sem að hún og Hlölli náðu meira að segja að koma
í fermingu hjá Kristjáni hér í Danmörku sem okkur fannst ómetanlegt.
En einhvern veginn enda allt of margar krabbameinssögur bara á einn veg.
Kolla barðist fyrir áratug af lengra lífi en annars hefði getað verið. Hún
nýtti hann vel held ég. Fjölskyldan stækkaði, tengdasynir og barnabörn
bættust í hópinn sem hún elskaði að vera í kringum.
Síðustu árin hefur Kolla ásamt fjölskyldunni rekið Litlu kaffistofuna. Hún
hefur ásamt þeim reist við það fyrirtæki og unnið myrkranna á milli. En
þegar maður hugsar um það þá er það einmitt það sem frænka mín kunni best
við. Vera dugleg, vinna mikið, vera með fjölskyldunni. Þetta allt var á
kaffistofunni, vinna, verkefni og fjölskyldan.
Í síðustu ferðinni minni heim hitti ég Kollu eins og ég gjarna geri fyrsta
daginn minn á Íslandi. Hún var þá mikið veik og sagði mér hreint út að nú
væri komið að þessu, hún bara vissi það. Það voru nokkrir hlutir sem hún
ætlaði að klára fyrst og svo mætti það koma. Aðalatriðið var að mæta í
brúðkaup hjá Mæju og Magga og hafa gaman. Sem hún og gerði þrátt fyrir að
vera þjökuð af verkjum mætti hún og hafði gaman af, naut þess í botn ef
satt skal segja. Það var frábær dagur og góð minning inn í lífið að sjá
Kollu frænku svona glaða svona stuttu fyrir kveðjudaginn. Ég heimsótti
Kollu flesta daga á meðan ég var heima á Íslandi og er þakklátur fyrir að
hafa átt þann tíma með henni og vita að það er ekkert eftir ósagt milli
okkar. Ég veit, hún veit, við vissum hversu mikils virði við vorum hvort
öðru og það er ómetanlegt.
Og það er kannski þaðan sem þessi saknaðartilfinning kemur. Ég á eftir að
sakna þess að hafa það á tilfinningunni að þegar ég komi heim til Kollu að
það hafi verið akkúrat nákvæmlega það sem hana langaði. Hvenær sem ég kom
eða hringdi í hana lét hún mér alltaf líða eins og hún hafi verið að bíða
eftir mér og að ég væri akkúrat maðurinn sem hana langaði að hitta eða tala
við. Það er hæfileiki að láta öðru fólki líða svona.
Ég held ég geti ekki haft þetta lengra þó svo að ég eigi inni minningar sem
gætu fyllt bækur.
Kvöldið áður en ég fór aftur til Danmerkur og Kolla var komin inn á
spítalann fór ég til hennar og var hjá henni í nokkra stund og við föðmumst
og grétum saman. Við vissum bæði að héðan af myndum við aldrei sjást aftur.
Að ganga út um herbergisdyrnar frá henni er eitt af því erfiðasta sem ég
hef gert.
Ég held ég verði að enda þetta á síðustu orðunum mínum til hennar þar sem
ég hafði hvorki styrkinn eða hugrekkið til að kveðja konuna sem ég kann
ekkert að vera án.
Góða nótt Kolla og takk fyrir allt.
Gummi frændi.
Guðmundur.