Grillað lambaprime með pækluðum perlulauk og sítrónu- og graslauksolíu
- 1 lampaprime
- 1 paprika
- 1 kúrbítur
- 1 gulur kúrbítur
- Steikar- og grillkrydd frá Íslandsnauti
- grillsósa frá Guy Fieri
- 2 góðar lúkur af spínati
Pæklaður perlulaukur
- 2 dl eplaedik
- 1 dl sykur
- stjörnuanís
- kanilstöng
- kardimommur
- svartur pipar
- 4-5 perlulaukar
- Sjóðið upp og slökkvið þá undir. Látið kólna í rólegheitum og þá er laukurinn tilbúinn. Skerið hvern lauk í tvennt.
Sítrónu- og vorlauksolía
- 3 vorlaukar
- 2 radísur
- 1 sítróna
- ólífuolía
- salt
Aðferð:
- Skerið vorlaukinn og radísurnar niður í þunnar sneiðar. Rífið sítrónubörkinn yfir. Saltið og hellið vel af ólífuolíu yfir. Blandið saman með gaffli.
- Skerið prime-ið eftir endilöngu og svo hvorn helming aftur eftir endilöngu. Skerið svo í sirka 2-3 cm bita.
- Leggið prjónana í bleyti nokkru áður þannig að það kvikni síður í þeim. Skerið niður papriku, kúrbít og gulan kúrbít og þræðið upp á prjón. Áætlað er að 2-3 bitar fari á hvern prjón.
- Leggið pinnana á disk og kryddið með grill- og steikarkryddinu. Penslið því næst vel af grillsósunni yfir. Að síðustu skal skvetta ólífuolíu yfir.
- Grillið á vel heitu grilli. Snúið reglulega og hafið í huga að prime þarf fremur mikla eldun.
- Þegar pinnarnir eru tilbúnir skal setja spínatið á steikarfat. Raða pinnunum ofan á og hella síðan sítrónu- og vorlauksolíunni yfir. Að síðustu skal setja pæklaða perlulaukinn yfir.