Það er enginn annar en Sindri Guðbrandur Sigurðsson, yfirkokkur á Silfra Restaurant, sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem er með þeim vandaðri sem sést hefur. Hér erum við með ævintýralega fágaða samsetningu hráefna og þú slærð sannarlega í gegn ef þú býður upp á þessa snilld.
Grilluð Unagi bleikja, spergilkál með reyktu skyri og hnetu kryddblöndu,sýrður skarlottulaukur og grilluð smágúrka með steinseljuolíu.
Aðferð: bleikjan er roðflétt og skömtuð niður í 3-4 bita. Grillið þarf að vera mjög heitt þegar fiskurinn fer á. Bleikja hefur mjög stuttan eldunartíma og vill maður ekki hafa hana lengur en 1 mínútu á hvorri hlið. Unagi sósan er pensluð yfir fiskinn rétt í lokinn til að karamella sykurinn.
Unagi
Aðferð: allt er sett saman í pott og soðið niður ¼ og kælt. Sósan á að vera eins og sýróp.
Aðferð: spergilkálið er skorið og soðið í sjóðandi vatni í 45 sek og sett svo beint í kalt vatn. Það gerir það að verðum að við náum fram fallegum grænum lit og verndar það frá því að brenna áður en það verður orðið eldað á grillinu.
Spergilkálið er síðan dressað uppúr olíu, salti og ediki og grillað á öllum hliðum. Þegar það er tekið af grillinu er því dýft í reykta skyrið og síðan í fræblönduna.
Grilluð smágúrka
Gúrkurnar eru dressaðar með olíu,salti og ediki og grillaðar allan hringinn síðan skornar í tvennt og marineraðar í steinselju olíu í 30 mín minsta kosti. Þær eru bornar fram kaldar.
Steinseljuolía
Aðferð: Steinselja og olía er sett saman í blandara í 2 mínútur í botni og síðan sigtuð í gegnum fínt sigti eða tusku.
Hnetu kryddblanda
Aðferð:
Allt er sett á bakka nema turmerik og ristað á 150 gráum í 15 mínútur eða þannig að heslihneturnar eru orðnar gullin brúnar. Þegar blandan er orðin köld er allt sett saman í matvinnsluvél og unnið fínt.
Reykt skyr
Aðferð: Allt er blandað saman í skál.
Sýrður skarlottulaukur
Aðferð: Skrælið laukinn og skerið þunnt. Edik, sykur og vatn er sett í saman í pott og fenginn upp suða. Þegar suðan er kominn upp er laukurinn settur út í og potturinn plastaður. Gott er að leyfa þessu að vera allavega í leginum í minnsta kosti 2 klst.