Gott meðlæti gerir allan grillmat betri. Þessi uppskrift er ein þeirra sem klikkar aldrei og við mælum heilshugar með.
Kartöfluostasprengja á grillið
- 900 g kartöflur skornar í báta
- 2 msk. extra virgin ólífuolía
- 1 tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. óreganó
- sjávarsalt
- nýmalaður svartur pipar
- 2 bollar rifinn mozzarellaostur
- 1 bolli rifinn parmesanostur
- fersk steinselja, söxuð
- þurrkaðar papriku- eða chiliflögur til skreytingar
Aðferð:
- Hitið grillið á miðlungsháan hita (eða ofninn á 210 gráður)
- Rífið niður fjóra stóra búta af álpappír – hver um sig 25 cm að lengd. Í stórri skál skal blanda saman kartöflum, ólífuolíu, hvítlauksdufti og óreganó. Kryddið vel með salti og pipar.
- Skiptið kartöflunum milli álpappírsarkanna. Brjótið hverja örk saman þannig að kartöflurnar séu alveg huldar. Lokið síðan samskeytum vel og vandlega með því að brjóta upp á þau.
- Setjið álpakkningarnar á grillið og eldið í 10-15 mínútur (sami tími í ofni).
- Takið af grillinu og opnið. Sáldrið ostinum yfir og lokið aftur. Setjið á grillið í 3-5 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn.
- Skreytið með steinselju og papriku- eða chiliflögum.