Gott nautakjöt getur ekki klikkað og hér erum við með danskt hágæðakjöt frá Royal Crown sem þykir hreinasta afbragð. Meðlætið er heldur ekki af verri endanum og er boðið upp á ostafyllta sveppi og dýrindispiparsósu, auk grillaðs grænmetis.
Flókið er það ekki enda engin ástæða til.
Grillað nauta rib-eye með fylltum sveppum og piparsósu
- Nauta rib-eye steikur
- Sérvalin piparostasósa
- Grillað rótargrænmeti
- Rauð paprika
- Saus Guru BBQ-sósa
- SPG-krydd
Aðferð:
- Kryddið kjötið áður en það fer á grillið og gætið þess að það sé við stofuhita.
- Grillið það á hvorri hlið í nokkrar mínútur og lækkið síðan undir. Penslið með BBQ-sósu. Mikilvægt er að leyfa kjötinu að hvíla vel að grillun lokinni áður en það er skorið.
- Grillið grænmetið á meðalhita þar til það er tilbúið. Sveppirnir þurfa lengri tíma en margur myndi halda í fyrstu og það sakar ekki að pensla þá með góðir ólífuolíu.
- Berið fram með piparostasósu og njótið.