Hér gefur að líta uppskrift sem sómir sér vel í hvaða matarboði og veislu sem er enda erum við að tala um hreinræktaða keppnisuppskrift! Íslenskt lambakjöt er hér í aðalhlutverki og fyllir það hlutverk einstaklega vel.
Vorlaukssósa með jalapenó-pipar
- 1 búnt vorlaukur
- 1 jalapeno-pipar, skorinn í tvennt langsum
- hnefafylli basilíka
- 40 ml sítrónusafi
- ½ – 1 tsk. sjávarsalt
- 125 ml ólífuolía
- 3 msk. jógúrt, hrein
Agúrkusalat og sýrður rauðlaukur
- 1 agúrka, skorin í þunnar lengjur
- 2 msk. dill
- 1-2 msk. ólífuolía
- u.þ.b. ½ tsk. sjávarsalt
- u.þ.b. ⅛ tsk. svartur pipar, nýmalaður
- 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
- ½ sítróna, safi nýkreistur
- 1 tsk. sumac
Lamba-shawarma
- 1 heill hvítlaukur, toppur skorinn af
- 2 msk. ólífuolía
- 2 sítrónur, safi og börkur rifinn fínt
- 1 tsk. paprika
- 1 tsk. kummin
- 1 tsk. kóríander, malaður
- ½ tsk. kanill
- 2 tsk. sjávarsalt
- u.þ.b. 1 tsk. svartur pipar, nýmalaður
- 1.5 kg lambalæri, úrbeinað
- 2-3 límónur, skornar til helminga
- 8 -10 lítil flatbrauð
- 250 g grísk jógúrt
- ½ – 1 msk. sriracha-sósa, eða önnur ósæt chili-sósa
Leiðbeiningar
Vorlaukssósa með jalapenó-pipar
- Grillið vorlauk og jalapenó á háum hita þar til hráefnið hefur fengið á sig góðan lit, u.þ.b. 5-7 mín. Setjið yfir á bretti og skerið smátt, látið í skál.
- Hrærið saman við basilíku, sítrónusafa, salti og ólífuolíu. Hrærið jógúrt saman við og bragðbætið sósuna með salti.
Agúrkusalat og sýrður rauðlaukur
- Setjið skorna agúrku í skál og blandið saman við dilli, ólífuolíu, ¼ tsk. salti og ⅛ tsk. pipar, setjið til hliðar.
- Setjið skorinn rauðlauk í litla skál og blandið saman við sítrónusafa, sumac-kryddi og ¼ tsk. af salti, hér er gott að nota fingurna til að nudda kryddinu saman við laukinn. Látið standa í a.m.k. 5 mín. áður en borið er fram.
Lamba-shawarma
- Hitið ofn í 200°C. Dreypið ólífuolíu yfir hvítlaukinn og pakkið honum inn í álpappír. Bakið hvítlaukinn í 1 klst. eða þar til hann er mjög mjúkur. Látið kólna örlítið og kreistið því næst hvítlaukinn úr hýðinu yfir í skál.
- Stappið hann með gaffli og hrærið saman við sítrónubörk, sítrónusafa, papriku, kummin, kóríander, kanil, 2 msk. af ólífuolíu, 1 tsk. af salti og ½ tsk. af pipar.
- Setjið kjötið yfir í djúpt fat og hellið kryddblöndunni yfir, nuddið vel yfir allt kjötið. Leggið filmu yfir og kælið yfir nótt. Takið kjötið úr kæli og látið ná stofuhita fyrir eldun.
- Hitið grill og hafið á miðlungsháum hita. Grillið kjötið í u.þ.b. 15 mín. á hvorri hlið eða þar til kjarnhitinn er 51°C – 54°C. Setjið kjötið yfir á bretti, leggið álpappír yfir og látið hvíla í a.m.k. 10 mín. áður en það er skorið.
- Setjið límónur á grillið og látið sárið snúa niður, grillið í nokkrar mín. Penslið flatbrauð með örlítilli olíu og grillið í nokkrar sek. á hvorri hlið. Setjið jógúrt í skál og hrærið saman við chili-sósu. Skerið kjötið í þunnar sneiðar og berið fram með flatbrauði, agúrkusalati, sýrðum rauðlauk, grískri jógúrt og grilluðum límónum til að kreista yfir.