Plokkfiskur að hætti Úlfars

Hráefni

  • 900 g þorskflök
  • 100–200 g kartöflur
  • smjörbolla eða sósu.ykkni
  • 1 stk. meðalstór laukur
  • 1/2 lítri mjólk
  • 1 tsk. karrí
  • salt
  • 2 msk. pipar
  • 2 msk. kalt smjör

Aðferð

Sjóðið kartöflurnar, afhýðið og skerið í bita. Roð- og beinhreinsið þorskflökin, skerið þau í bita og sjóðið; látið suðuna koma upp og slökkvið síðan undir hellunni og látið standa á meðan sósan er útbúin, í um 10 mín. Útbúið smjörbolluna. Athugið að í staðin fyrir þorsk má nota ýsu eða lúðu.

Afhýðið og saxið lauk og setjið í pott ásamt mjólk, karríi og salti. Hitið að suðu og jafnið síðan með smjörbollu eða sósu.ykkni. Takið hluta af sósunni frá en bætið fiskinum út í sósuna í pottinum ásamt soðnum kartöflum og hrærið gætilega saman við. Ef plokkfiskurinn er of þurr má bæta því sem tekið var frá af sósunni út í. Kryddið með pipar eftir smekk, sumir vilja mikinn pipar en aðrir minna, og setjið svo kalt smjör út í til að fá mýkri áferð. Plokkfiskinn má líka gratínera í ofni með því að setja hann í smurt eldfast mót og setja hollandaise- eða béarnaisesósu og rifinn ost yfir. Uppskrift af béarnaisesósu er hér við hliðina. Bakið réttinn í ofni við 200°C, í um 3 mín. eða þar til hann verður gullinbrúnn.

Uppskrift: Hagkaup

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka