Lime, chili og kóríander eru notuð í mörgum mexíkóskum réttum og þessi réttur er enginn undantekning. Það er mikið af chilipipar í þessu en það er ekkert að óttast. Ef hann er fræhreinsaður vel er hann ekkert hættulega sterkur þegar búið er að elda hann eða marínera með lime-safa.
Við byrjum á því að marínera nautakjötið. Það þarf ekki bestu vöðvana, fínt er að nota bita úr læri eða rumpi, frekar þunnt skorið.
Í maríneringuna þarf þetta hráefni:
1 laukur
3-4 hvítlauksrif
1 msk ferskur óregano, fínsaxað eða teskeið af þurrkuðu oregano-kryddi.
1 grænn chili, fræhreinsaður og saxaður
1 lúka kóríander, saxað,
1 tsk cumin
1 tsk cayenne-pipar
2 dl matarolía
Salt
Blandið öllu saman í skál og veltið kjötbitunum upp úr því. Best er síðan að setja þetta allt í góðan plastpoka og leyfa kjötinu að liggja í leginum í um 2-3 klukkutíma.
Á meðan gerum við Pico de Gallo sem er mjög vinsælt mexíkóskt meðlæti.
1 laukur
1 lúka ferskur kóríander, fínsaxað
1 lime
1 grænn chili-pipar, fræhreinsaður og fínsaxaður
2 tómatar, fræhreinsaðir og grófsaxaðir.
Salt
Blandið öllu saman í skál , pressið safann úr lime yfir, saltið skv. smekk og geymið.
Þegar kjötið er búið að liggja nógu lengi í leginu er það tekið upp og skellt á grillið eða steikarpönnuna. Ekki elda það of mikið, ca medium-rare hentar best í þennan rétt.
Hitið Tortilla-pönnukökur í ofni eða á grillinu. Smyrjið með sýrðum rjóma.
Skerið síðan kjötsteikurnar niður í minni bita og setjið á pönnkökurnar. Setjið ca. 2 matskeiðar af Pico de Gallo ofan á kjötið og lokið pönnukökunum.
Berið fram með Guacamole og hrísgrjónum.
Suður-Amerískt rauðvín á borð við Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon með eða bjór.
Uppskrift: vinotek.is