Gufusteiktur lambaskanki með kartöflumauki

Hráefni

  • 2 msk ólífuolía
  • 4 lambaskankar (leggir)
  • salt og nýmalaður pipar
  • 500 ml vatn
  • 2 laukar
  • 2 hvítlauksgeirar
  • 100 g gulrætur smátt skornar
  • 50 g rófur
  • 50 g sellerí
  • 1 grein garðablóðberg og 1stk lárviðarlauf

Fyrir 3–4

Lambaskankar eða leggir eru bragðmikill og gómsætur matur ef þeir eru rétt matreiddir. Yfirleitt er best að elda þá lengi við fremur vægan, rakan hita, þ.e. gufusteikja þá eða pottsteikja, og það er einmitt gert hér.

Aðferð

Hitið ofninn í 165°C. Hitið olíuna í víðum, þykkbotna potti sem þolir að fara í ofninn, kryddið skankana vel með pipar og salti og brúnið þá á öllum hliðum. Skerið laukana í sneiðar, setjið þá á milli skankanna og hellið vatninu yfir. Kryddið með lárviðarlaufum, hitið að suðu, leggið lok yfir og setjið í ofninn. Látið malla í 2 1/2 klst. Afhýðið á meðan gulrætur og rófur og skerið sveppina í helminga eða fjórðunga. Setjið þá út í og steikið í 15-20 mínútur í viðbót. Látið malla í 10-15 mínútur. Smakkið soðið, bragðbætið með pipar og salti eftir þörfum og berið kjötið fram með lauknum, grænmetinu og soðinu. Með þessu er líka gott að hafa t.d. ofnbakaðar kartöflur eða kartöflustöppu bragðbætta með t.d. hvítlauk.

Uppskrift: Eldum íslenskt

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert