Fyrir 4
Innkaupalisti fyrir 4 undir 2000kr.Sneiðið kjötið í teninga og þerrið, leggið síðan í skál ásamt sojasósu og smá matarolíu.
Setjið kartöflurnar yfir í suðu, gætið þess að sjóða ekki of lengi.
Skerið grænmetið í kubba sem eru u.þ.b. 2,5 cm á kant, og leggið til hliðar.
Þessu næst er grænmetið og kjötið þrætt á grillspjótin og kryddað með pipar og smá salti(ath að sojasósan er sölt).
Spjótin eru síðan steikt á grillpönnu í u.þ.b. 2 mín á hverri hlið.
Sósan er útbúin á meðan kjötið er á pönnunni. Blandið saman sýrðum rjóma, u.þ.b. 1 teskeið af svörtum pipar, flórsykrinum og smá salti.
Framreitt með kartöflusmælki og piparsósu. En einnig getur verið gott að láta smá ferskt salat fylgja með til að létta aðeins réttinn.
Uppskrift: Gott, hollt og ódýrt