Kryddlegið lamb með grískri jógúrtsósu

Lambakjötið i þessari uppskrift er bæði látið liggja í kryddlegi og síðan “röbbað” eða þurrkryddað með kryddblöndu áður en það er grillað. Lambalæri hentar best og það er hægt að nota þetta á heilt læri (gjarnan úrbeinað) sem síðan er grillað eða innralærisbita líkt og hér sem eru sneiddir niður og settir í pítabrauð.

Fleiri uppskriftir að lambakjöti má finna hér

Kryddlögurinn

  • 1 dl rósmarín
  • 4-5 vænir hvítlauksgeirar, pressaðir
  • safi úr einni sítrónu
  • 1 msk óreganó
  • 1 msk rósmarín
  • 1 tsk chiliflögur
  • salt og pipar

Blandið öllu saman og látið lambið liggja í kryddleginum í að minnsta kosti klukkustund. Gjarnan í ísskáp yfir nótt. Það er mjög þægilegt að setja kryddlöginn og kjötinn í frystipoka og snúa honum reglulega.

Þegar búið er að taka kjötið úr marineringu þarf að nudda það með kryddblöndunni.

Kryddblanda

  • 1 tsk paprika
  • 1 tsk “smoked paprika”
  • 1 tsk óreganó
  • 1/ 2 tsk Cayenne pipar
  • salt og pipar.

Blandið saman, nuddið í kjötið og grillið.

Sneiðið kjötið niður. Berið fram með grískri Tzatziki-sósu, salati, niðursneiddum lauk og tómötum. Með þessu hituð eða grilluð pítubrauð.

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert