„Ég er ferlega hrifin af osta-og skyrkökum. Þær eru svo fljótlegar og einfaldar, smakkast líka guðdómlega. Oreo kexið er í sérstöku uppáhaldi hjá mér og ég held að flestir séu sammála um að þessar kexkökur séu þær allra bestu, það smakkast allt betra ef það er Oreo í því. Ég hef smakkað margar tegundir af Oreo ostakökum og mér þykja þær allar góðar, ég var ekki búin að smakka Oreo í skyrkökum og ákvað því að prófa mig áfram í skyrkökugerðinni. Kakan tókst sérdeilis vel til, bauð upp á hana í eftirrétt eitt kvöldið og við vorum öll sammála um að kakan væri stórgóð. Skyrkökur henta sérstaklega vel sem eftirréttur að mínu mati, þær eru svo léttar og góðar,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir sem bakaði dásamlega Oreo skyrtertu á dögunum.
Eva Laufey notar 20 sm bökunarform en kakan er fyrir 4-6.
Botn
320 g Oreo kexkökur
100 g smjör
Aðferð:
1. Fóðrið formið að innan með filmuplasti, látið plastið ná upp á barmana. (það þarf ekki endilega að nota filmuplast en mér finnst oft betra að ná kökunni úr forminu með því að nota plastið.) Myljið kexið í matvinnsluvél. Blandið smjörinu saman við og þrýstið kexblöndunni á botn og upp með börmum á bökuformi. Kælið á meðan að þið útbúið fyllinguna.
Fylling
1 peli rjómi
1 stór dós vanillu skyr
3 tsk vanillusykur
1 msk flórsykur
5 Oreo kexkökur, muldar
Aðferð:
1. Þeytið rjómann og leggið til hliðar. 2. Hrærið saman skyrinu, vanillusykrinum og flórsykrinum 3. Blandið rjómanum saman við skyrblönduna og hrærið vel í. 4. Myljið niður nokkrar Oreo kexkökur og bætið saman í lokin. 5. Hellið blöndunni ofan í kökubotninn og kælið í lágmark 2- 3 klukkustundir. Ég læt stundum matarlím í kökuna því hún á það til að renna svolítið, það er bara smekksatriði.
Ofan á
100 g hvítt súkkulaði
nokkrar Oreo kexkökur
Aðferð:
1. Bræðið hvítt súkkulaði og dreifið yfir kökuna, skerið nokkrar Oreo kökur í tvennt og skreytið kökuna að vild. Dreifið smá kökumylsnu yfir, þá verður kakan enn fallegri.
Þessi kaka er af einföldustu gerð eins og þið sjáið á uppskriftinni hér fyrir ofan, það tekur enga stund að búa hana til og hún smakkast mjög vel. Ég er hrædd um að þessi kaka verði oft á boðstólnum hjá mér á næstunni.
HÉR er hægt að lesa matarblogg Evu Laufeyjar.