Tískubók Evu Daggar Sigurgeirsdóttur er komin út og var henni fagnað með gleði og glens í Eymundsson í Austurstræti í gær. Það að Eva Dögg gefi út sérstaka tískubók því hún er innmúrað tískugúru og hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar í meira en 20 ár. Hún lærði tísku- og markaðsfræði í Bandaríkjunum og síðan þá hefur hún starfað sem stílisti, hjálpað konum að koma lagi á fataskápinn sinn og svo rekur hún tíska.is.
Eva Dögg var klædd í nýjustu tísku þegar hún fagnaði bókinni, gullkjól frá Ted Baker sem hún keypti í Lundúnum. Gullið er aðalmálið í dag eins og sést á síðum tískublaðanna.