Dröfn Vilhjálmsdóttir matarbloggari á Eldhússögum skrifaði um þorskhnakka með sætum kartöflum og pistasíusalsa. Uppskriftin hefur slegið í gegn hjá þeim sem hana hafa prófað.
Gott er að bera fram með sætkartöflumús.
Þorskur með pistasíusalsa
- 600 g þorskhnakkar eða þorskflök
- salt og pipar
- 3-4 msk. pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur)
- 3 msk. sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu
- 1 msk. ólífuolía
- 1 dl fersk steinselja, söxuð
- 1/4 – 1/2 rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað
Aðferð
- Ofninn hitaður í 220°
- Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar.
- Pistasíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu blandað saman í skál og dreift yfir fiskinn.
- Bakað í miðjum ofni við 220° í um það bil 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki.
Sojasmjörsósa
- 3 msk. smjör
- 1 skarrottulaukur (hægt að nota 1/2 rauðlauk), saxaður fínt
- 1 hvítlauksrif, saxað fínt
- 1 tsk rautt chili, saxað fínt
- 2-3 msk. sojasósa
- 1 msk. steinselja, söxuð smátt
Aðferð
- Smjör brætt í potti og hitað við fremur vægan hita í um það bil 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu.
- Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram.