Einkaþjálfarinn Ásthildur Björnsdóttir útbjó mjög girnilega hafraklatta sem slógu í gegn heima hjá henni.
- 2 vel þroskaðir bananar - stappaðir
- 1 stórt epli – rifið niður
- 3-4 bollar haframjöl
- 2 egg
- 2 msk kanill
- 2 msk chiafræ
- 3 msk kókosmjöl
- ¼-½ bolli möndlumjólk (rétt til að bleyta í deiginu)
- hreint hunang eftir smekk – (sett á klattana þegar þeir eru bakaðir)
Aðferð:
- Öllu blandað vel saman.
- Deigið þarf að vera þannig að þú getir mótað litlar kúlur og flatt þær út á bökunarplötunni.
- Of þurrt – bættu við meiri mjólk – of blautt bættu við meira haframjöli.
- Bakað í ofni í um 15 mín við 200 gráður.
- Þegar yfirborðið er orðið þurrt – taktu þá klattana út úr ofninum og settu pínu hunang yfir hvern og einn klatta – magn fer eftir smekk – ég setti ca ¼ tsk – mjög gott – en líka hægt að sleppa því.
- Klattarnir settir aftur inn í ofn og bakað í nokkrar mínútur í viðbót.
HÉR er hægt að fylgjast með Ásthildi en hún bloggar á Smartlandi Mörtu Maríu og deilir oft fáránlega góðum og hollum uppskriftum.