Grillað lamb með basil og chili

Lamb er hægt að krydda á óteljandi vegu áður en það er grillað. Hér er það chili og basil ásamt hvítlauk og sítrónu sem mynda kryddlöginn. Það er hægt að nota lærissneiðar, sirloin eða kótilettur.

  • 1 dl ólífuolía
  • 1 lúka basilblöð
  • 4 hvítlauksgeirar, pressaðir
  • safi úr 1/2 sítrónu
  • 1 fínt hakkaður rauður chilibelgur eða 1 tsk chiliflögur
  • salt og pipar

Grófsaxið basil, saxið chili og pressið hvítlauksgeirana. Blandið saman við olíuna og sítrónusafann í fati ásamt sjávarsalti og nýmyldum pipar.

IMG 9677 200x200c Grillað lamb með basil og chili

Veltið lambasneiðunum upp úr leginum og látið liggja í um 2 klukkustundir. Grillið.

Berið fram með t.d. góðu kartöflusalati en uppskriftir má finna hér. Það er líka hægt að hafa með kartöflubita ofnbakaða í ólífuolíu og kryddum og síðan grísku jógúrtsósuna Tzatziki.

Kröftugt og ungt rauðvín með t.d. hið frábæra Trivento Golden Reserve Syrah.

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert