Karen Lind Ólafsdóttir sigraði á síðasta ári í tveimur flokkum í krukkukeppni sem fram fer á Írskum dögum á Akranesi, með rauðrófuhummus og grænkálspestó.
Hátíðin verður haldin þetta árið 3-6. júlí, en laugardaginn, 5. júlí, er keppt er í krukkukeppninni í flokkunum ömmusultan, appelsínugulasta sultan, frumlegasta meðlætið í krukku og ferskasta chutneyið og eru matgæðingar sérstaklega hvattir til að mæta og spreyta sig.
Meðfylgjandi er verðlaunauppskrift Karenar Lindar frá því í fyrra af grænkálspestói.
Þetta pestó er örlítið rammara á bragðið en það hefðbundna vegna grænkálsins. En dásamlega bragðgott og hollt. Ljúffengt ofan á hrökkkex, sem meðlæti með kjöti eða bara eintómt!
1 búnt lífrænt grænkál frá Sólheimum (má vera spínat)
2 hvítlauksgeirar
100 g kasjúhnetur
4 msk. parmesen
1 lúka steinselja
1 lúka basilíka
3 dl kaldpressuð ólívuolía frá Kaja organic
1/2 tsk. salt
smá pipar
Allt sett í matvinnsluvél og blandað vel saman.
Nánari upplýsingar er að finna í dagskrá Írskra daga HÉR.