„Uppskriftin að þessum mjúku og bragðgóðu brauðbollum er svosem engin nýjung, þær hafa verið vinsælar í mörg ár og alltaf slegið í gegn. Það er því löngu orðið tímabært að þær fái sitt pláss hér á GulurRauðurGrænn&salt svo þið sem hafið ekki enn notið þeirra getið hér með gert það,“ segir Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari.
Kotasælubollur
550 g hveiti
150 g heilhveiti
1 tsk salt
1 tsk sykur
1 bréf þurrger
1/2 ltr mjólk
3 msk olía
lítil dós kotasæla