Valdís Sigurgeirsdóttir flugfreyja og matarbloggari á Ljómandi.is útbjóa girnilega piparmyntukökur sem bragðast dásamlega.
Botn:
2 1/2 dl möndlur
2 1/2 dl döðlur
1 msk kakóduft.
Myntufylling:
1 avókadó
3 msk fljótandi kókosolía
2-3 msk hlynsíróp
1 banani
1/2 tsk vanilla extraxt eða vanilludropar
5-10 dropar piparmyntuolía (eða dropar)
smá salt
Súkkulaði:
3 msk kakóduft
3 msk fljótandi kókosolía
2 msk hlynsíróp
„Ég sá þessa uppskrift í bók sem heitir Rawsome Vegan Baking og leist svo vel á að ég ákvað að prófa. Ég var ekki illa svikin og Edda mín 12 ára elskar hreinlega þetta nammi. Ég nota Young Living piparmyntuolíu og þá þarf ég ekki svona mikið heldur ca. 5 dropa því þeir eru sterkir. Það er hægt að nota hvaða piparmyntuolíu sem er, jafnvel piparmyntu extract. Prófið ykkur bara áfram. Ég bara elska Young Living vörurnar og finnst svo mikil snilld að nota þær í matargerð því ekki skemmir fyrir að þær hafa ákveðinn undrakraft,“ segir Valdís.