„Lífið sem grænmetisæta er einfaldara en ég hélt að það yrði. Nú eru tvær vikur liðnar og ótrúlegt en satt, þá saknar þessi kjötæta kjöts bara ekki hætishót. Í vikunni gerðum við grænmetiskarrírétt með hrísgrjónum, kartöflurétt með strengjabaunum og linsoðnum eggjum, pasta með eggaldintómatsósu og svo þennan ljúffenga rétt - fylltar crepes. Þessum rétti svipar aðeins til annars sem ég gerði hér um árið, sjá hérna, þar sem ég gerði sjálfur ríkottaostinn. Sem er í raun ofureinfalt,“ segir Læknirinn í eldhúsinu, Ragnar Freyr Ingvarsson.
„Þetta er dálítið „rich“ réttur sem ég held að sé allt í lagi þar sem ekkert kjöt er á boðstólunum. Alla jafna er líka óþarfi að hafa tvo ofnbakaða rétti saman - hvað þá báða með osti - en stundum er maður bara fullur löngunar sem verður að sinna, og svo var geitaosturinn kominn á tíma.“
Hráefnalisti
Fyrir pönnukökurnar
1 bolli hveiti
1/2 tsk salt
1/2 lyftiduft
1 msk jómfrúarolía
1 egg
1 bolli mjólk
salt
Fyrir fyllinguna
200 g sveppir
4 púrrulaukar
3 hvítlauksrif
2 msk smjör
250 g ríkottaostur
salt og pipar
Fyrir bechamélsósuna
500 ml mjólk
30 g smjör
30 g hveiti
salt og pipar
100 g västerbottenostur
Byrjið á því að hræra í pönnukökurnar. Betra er að vinna með þunnt deig.
Steikið síðan kökurnar og leggið til hliðar.
Skerið púrruna í sneiðar.
Steikið með smátt skornum lauk, niðurskornum sveppum og hvítlauk þangað til þetta fer að mýkjast.
Setjið grænmetið í skál ásamt ríkottaostinum og blandið vel saman.
Smyrjið á pönnukökurnar og rúllið upp.
Leggið í ofnskúffu.
Næst er að huga að bechamélsósunni. Hitið mjólkina í potti. Bræðið smjör í öðrum potti og hrærið hveitið saman við. Hellið mjólkinni varlega saman við smjörbolluna og hitið að suðu. Sósan þykknar fljótlega eftir að það fer að krauma varlega í henni. Raspið niður ost og hrærið saman við bechamélsósuna.
Hellið yfir pönnukökurnar.
Það er aldrei rangt að raspa yfir meiri ost.
Bakið í 25-30 mínútur við 180 gráður þangað til að osturinn verður fallega brúnn.
Papríkurnar eru eins einfaldar og hugsast getur. Skerið í helminga, penslið með hvítlauksolíu og kryddið með salti og pipar. Myljið geitaostinn yfir.
Bakið í 30 mínútur við 180 gráður.