Við Miðjarðarhafið hafa menn löngu uppgötvað að fátt á betur við lambakjöt en óreganó, sítróna og hvítlaukur. Við mælum með lambafile en það má líka nota aðra bita, s.s. kótilettur. Með þessu höfum við pilaf úr örlitlum pastabitum í staðinn fyrir að gera klassískt pilaf úr hrísgrjónum. Því miður er Orzo-pasta yfirleitt ekki fáanlegt hér á landi en litla stafapastað eða “alphabet”-pasta gerir sama gagn.
Blandið saman í matvinnsluvél, takið helminginn frá til að bera fram sem sósu og látið kjötið liggja í leginum í um það bil hálftíma eða svo. Takið úr kryddleginum og grillið í 2-3 mínútur með fituhliðina upp. Snúið við og grillið fitumegin í smá stund til að fá stökka puru. Passið ykkur á að brenna ekki puruna, grillið varlega fitumegin. Slökkvið á einum brennara og eldið áfram á óbeinum hita þar til að kjötið hefur náð þeirri eldun sem að þið viljið. Látið kjötið standa við stofuhita í allt að fimm mínútur eftir að það er tekið af grillinu.
Pasta Pilaf
Sjóðið pasta. Það er fínt að setja smá kjúklingakraft út í vatnið.
Hitið olíu á pönnu og mýkið lauk og gulrætur ásamt chiliflögunum. Eftir nokkrar mínútur er hvítlauknum bætt út á. Mýkið áfram í 2-3 mínútur á miðlungshita.
Blandið pasta saman við ásamt fetaosti, steinselju, sítrónusafa og ólífuolíu. Bragðið til með salti og pipar.
Uppskrift: vinotek.is